Vara við gífurlegri ógn frá Kína Ken McCallum og Christopher Wray, yfirmenn MI5, innanríkisöryggisstofnunar Bretlands og Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), vöruðu báðir við því í dag að mikil ógn stafaði af Kommúnistaflokki Kína. Ógnin sneri bæði að hagkerfum Bretlands og Bandaríkjanna og þjóðaröryggi ríkjanna. Þeir sögðu Kína einnig ógna bandamönnum ríkjanna í Evrópu og annars staðar í heiminum og að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða. 6.7.2022 22:01
Boris rak ráðherra sem bað hann um að segja af sér Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segist alls ekki ætla að segja af sér. Nú í kvöld rak hann ráðherrann Michael Gove úr ríkisstjórn sinni en Gove er sagður hafa beðið Johnson um að láta gott heita og segja af sér. 6.7.2022 21:23
Óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs Formaður FÍB óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs hér á landi. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 9,5 prósent í gær og aftur um rúm þrjú prósent í dag. Innlendar bensínstöðvar hafa flestar lækkað lítraverð sitt um tvær og hálfa krónu í dag. 6.7.2022 20:38
Sóttu slasaðar konur í Hvalfirði og á Snæfellsnesi Útkall barst til björgunarsveita á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag vegna konu sem hafði hrasað og slasað sig á fæti í Hvalfirði. Hún hafði verið á göngu í Síldarmannagötum innst í firðinum þegar hún slasaðist og gat hún ekki gengið. 6.7.2022 19:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinum við frá því hvernig höfuðstóll verðtryggðra lána getur margfaldast í verðbólgubálinu. Þannig getur höfuðstóll á algengri lásfjárhæð hækkað um allt að fjögur hundruð prósent á þrjátíu ára lánstíma. 6.7.2022 18:01
Glúmur og Karl Gauti sækja einnig um í Rangárþingi ytra Tuttugu og fimm sóttu um stöðu sveitarstjóra Rangárþings ytra. Fimm þeirra sem sóttu um drógu umsóknir sínar þó til baka. 6.7.2022 17:50
Skipar nýja ráðherra en stendur enn höllum fæti Boris Johnson, forsætisráðherra, Bretlands, skipaði í kvöld nýjan fjármálaráðherra og nýjan heilbrigðisráðherra eftir að báðir sögðu af sér í dag. Johnson er sagður eiga í miklum vandræðum innan Íhaldsflokksins og er ríkisstjórn hans sögð standa verulega höllum fæti. 5.7.2022 23:43
Björguðu hundi sem féll um tuttugu metra Björgunarsveitir á Sauðárkróki og Mývatni voru kallaðar út með stuttu millibili á áttunda tímanum í kvöld. Fyrsta útkallið sneri að hundi sem lenti féll um tuttugu metra fram af kletti í Skagafirði og hið seinna var vegna mótorhjólaslys við afleggjarann að Herðubreiðalindum. 5.7.2022 22:41
Stefna bandamönnum Trumps vegna sakamálarannsóknar í Georgíu Nokkrum af ráðgjöfum og bandamönnum Donalds Trump hefur verið stefnt vegna sakamálarannsóknar sem stendur nú yfir í Georgíuríki vegna viðleitni Trumps við að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020. Meðal þeirra sem búið er að stefna eru Rudy Giuliani, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, og Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður. 5.7.2022 22:15
Eins og þruma úr heiðskíru lofti Óvænt árás mávs á rottu á Kársnesi náðist á myndband í dag. Mávurinn steypti sér úr loftinu á miklum hraða og greip rottuna í gogginum. Rottan féll skömmu síðar aftur til jarðar. 5.7.2022 20:44