„Þau verða bara að tala saman“ Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún ætli að viðhalda veiðibanni á stórhvölum. Hún segist stefna á að taka ákvörðun sem fyrst en starfsmenn ráðuneytis hennar séu að vinna úr skýrslu sem birt var í gær um frávik við veiðar á hvölum. 29.8.2023 14:29
Reiði beinist að DeSantis Eftir að ungur rasisti myrti þrjár svartar manneskjur í Jacksonville í Flórída um helgina hafa margir reiðst Ron DeSantis, ríkisstjóra. Fyrir árásina hafði hann verið sakaður um að skapa andrúmsloft haturs gegn svörtum Bandaríkjamönnum og öðru þeldökku fólki og reiðin hefur aukist eftir árasina. 29.8.2023 13:29
Baldur's Gate 3: Mögulega heimsins besti hlutverkaleikur Baldur‘s Gate 3 er líklega besti Dungeons & Dragons leikur sem gerður hefur verið. Spilun hans er einkar skemmtileg og fjölbreytt. Í fljótu bragði man ég ekki eftir að hafa upplifað annað eins frelsi við að leysa úr verkefnum leiks og drepa skrímsli og drullusokka. 29.8.2023 11:13
„Almenningur á rétt á að þetta mál sé tekið fyrir hratt og örugglega“ Réttarhöldin í máli sérstaks saksóknara dómsmálaráðuneytisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, munu hefjast þann 4. mars á næsta ári. Þetta er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og tveimur sem Jack Smith, áðurnefndur saksóknari, hefur höfðað gegn honum. 28.8.2023 16:06
Sendir herforingjastjórn Níger tóninn Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að sendiherra landsins í Níger verði ekki kallaður heim, þó herforingjar sem tóku nýverið völd í landinu hafi krafist þess. Macron segir herforingjana ekki hafa umboð til að setja slíkar kröfur fram. 28.8.2023 13:53
Kynntu nýjan íslenskan leik á GamesCom Íslensku leikjaframleiðendurnir Joon Van Hove og Torfi Ásgeirsson kynntu nýjasta leik þeirra á GamesCom ráðstefnunni í Þýskalandi í síðustu viku. Leikurinn heitir Phantom Spark og er kappakstursleikur sem gefa á út snemma á næsta ári. 28.8.2023 12:11
Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út. 28.8.2023 11:19
Trump handtekinn í tugthúsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið formlega handtekinn í Fulton-sýslu í Atlanta í Bandaríkjunum. Þar hefur hann og átján bandamenn hans verið ákærðir vegna tilrauna þeirra til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í ríkinu árið 2020. 25.8.2023 00:02
Fresta frumsýningu Dune vegna verkfalls Forsvarsmenn Warner Bros hafa ákveðið að fresta frumsýningu kvikmyndarinnar Dune: Part Two um rúma fjóra mánuði vegna verkfalls leikara. Timothée Chalamet, Zendaya og aðrir leikarar geta annars ekki tekið þátt í að kynna myndina vegna verkfalls leikara. 24.8.2023 23:22
Deilt um gagnsóknina Bandarískir og úkraínskir herforingjar eru sagðir hafa deilt um framkvæmd gagnsóknar Úkraínumanna. Valerí Salúsjní, yfirmaður úkraínska hersins, segir hermenn sína nærri því að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa. 24.8.2023 22:33