Hefja formlega rannsókn á Biden Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í dag að opnuð yrði formleg rannsókn sem beinist að Joe Biden, forseta, og ætlað væri að kanna hvort tilefni væri til að ákæra hann fyrir embættisbrot. Rannsóknin á að beinast að viðskiptaumsvifum fjölskyldu Bidens. 12.9.2023 20:17
Vill að dómarinn stígi til hliðar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa lagt fram kröfu um að dómarinn Tanya Chutkan stígi til hliðar. Það á hún að gera á þeim grundvelli að hún hafi sýnt fram á óhlutlægni í garð Trumps. 11.9.2023 22:53
GameTíví: Stíga í spor Kevin Costner í Waterworld Strákarnir í GameTíví ætla að stíga í spor Kevin Costner í Waterworld í kvöld. Þeir ætla að spila „survival“ leikinn Sunken Land, sem gerist í heimi þar sem yfirborð sjávar hefur hækkað mikið. 11.9.2023 19:24
Kim í lest á leið til Pútíns Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, mun á næstu dögum funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Einræðisherrann er sagður vera lagður af stað til Valdivostok í Rússlandi á brynvarinni lest sinni. 11.9.2023 17:56
Lögðu einnig til að ákæra Lindsay Graham og fleiri Meðlimir svokallaðs ákærudómstóls í Georgíu í Bandaríkjunum lögðu til að töluvert fleiri yrðu ákærðir með Donald Trump fyrir að reyna að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Trump og átján aðrir hafa verið ákærðir en einnig var lagt til að Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, Kelly Loeffler og David Perdu, fyrrverandi öldungadeildarþingmenn, og Micheal Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, yrðu ákærð vegna málsins. 8.9.2023 16:49
Sjósettu kafbát sem borið getur kjarnorkuvopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður Kóreu opinberaði í vikunni nýjan kafbát sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Kóreumenn hafa lengi unnið að þróun slíkra kafbáta. 8.9.2023 15:10
Barist um Wagner-veldið Eftir að rússneski auðjöfurinn og stríðsherrann Jevgení Prígósjín dó í Rússlandi í síðasta mánuði hafa mismunandi fylkingar í Rússlandi barist um yfirráð yfir viðskiptaveldi hans. Barátta þessi fer fram í þremur heimsálfum en verðmætasti hluti veldis Prígósjíns var í Afríku. 8.9.2023 12:45
Tugir borgara féllu í árás hryðjuverkamanna í Malí Herforingjastjórn Malí segir að 49 borgarar og fimmtán hermenn hafi fallið í árásum hryðjuverkamanna í norðurhluta landsins í gær. Hryðjuverkamenn sem tengjast al-Qaeda eru sagðir hafa ráðist á ferju nærri Timbuktu og á varðstöð í Gao-héraði. 8.9.2023 10:57
Starfield: Stærsti leikur ársins er ekki sá besti en ég elska hann Fárra leikja hefur verið beðið af jafn mikilli eftirvæntingu og Starfield. Það er fyrsti leikur fyrirtækisins Bethesda, sem eru þekktastir fyrir Fallout og Elder Scrolls leikina, sem gerist í nýjum söguheimi í nokkra áratugi. 8.9.2023 08:47
Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður. 7.9.2023 19:10