Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn. 9.1.2021 10:00
Straumar og stefnur atvinnulífsins 2021 Atvinnulífið mun taka margt með sér frá árinu 2020 og það telst varla fréttnæmt í dag að fjarvinna er komin til að vera. En hver verða „trendin" árið 2021 og hvaða áherslur verða einkennandi fyrir atvinnulífið? 8.1.2021 07:01
Vill útrýma skömminni sem fylgir því að vera atvinnulaus „Skömm er tilfinning sem atvinnuleitendur hafa tekist á við mjög lengi tel ég og það er mjög mikilvægt að ræða þessa staðreynd“ segir Ásgeir Jónsson sem síðustu árin hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir fólk í atvinnuleit á vegum félagsins Takmarkalaust líf. Þessari skömm vill Ásgeir útrýma en segir það ekki auðvelt. 7.1.2021 07:01
Góð ráð fyrir fólk sem þolir ekki yfirmanninn Það getur verið erfitt að vera í vinnu þar sem þú þolir ekki yfirmanninn þinn. Þetta er þó algengari staða en marga grunar. Þannig sýna niðurstöður kannana Gallup í Bandaríkjunum að þar hefur um helmingur útivinnandi fólks hætt í einhverju starfi, vegna þess að það þoldi ekki yfirmanninn. Sömu sögu er að segja frá Evrópu þar sem hlutfallið mælist hærra, sem og í Asíu, Miðausturlöndunum og Afríku. 6.1.2021 07:01
Megrunarátakið í vinnunni Það þykir reyndar ekki vinsælt í dag að tala um ,,megrun“ og eflaust réttara að tala um lífstílsbreytingu. En í upphafi árs eru það þó margir sem hafa sett sér markmið um að léttast á nýju ári og þá er um að gera að huga að vinnudögunum og hvernig best er að huga að átakinu þar. 5.1.2021 07:01
Dæmi um persónuleg markmið í vinnunni 2021 Um áramótin setjum við okkur oft alls kyns markmið fyrir nýtt ár, ekki síst á sviði hreyfingu og hollustu. En það getur líka verið gott að setja sér persónuleg markmið fyrir vinnuna og hér eru dæmi um hvernig slík markmiðasetning gæti litið út. 4.1.2021 07:01
Atvinnulaus um áramót Heimsfaraldur, kreppur, bankahrun….. ekkert af þessu breytir því að áramótin eru ákveðin tímamót fyrir okkur. Þetta eru tímamótin þar sem við setjum okkur ný markmið, horfum bjartsýn fram á veginn og gleðjumst yfir því sem áunnist hefur. 30.12.2020 07:01
Að mæta til vinnu aftur eftir jólafrí: Úff! Það getur verið erfitt að vakna til vinnu eftir gott frí. Ekki síst þessa vikuna þegar vinna þarf mánudag til miðvikudags og þá aftur í frí. Tvær vikur af skertri vinnuviku og góðum fríum getur gert það að verkum að við finnum til ákveðinnar leti að þurfa að mæta aftur til vinnu. Úff! 28.12.2020 07:00
Mega skila notuðum nærfötum Fataiðnaðurinn færist smátt og smátt í umhverfisvænni framleiðslu og sífellt bætast við þeir framleiðendur sem taka á móti flíkum til að endurvinna. Nú hafa notuð nærföt bæst við því bandaríska vörumerkið Big Favorite hefur tilkynnt að viðskiptavinir geti skilað til sín notuðum nærfötum til endurvinnslu. 23.12.2020 07:01
Að kúpla sig frá vinnu og streitu um jólin Þegar líður að jólum finnum við hvernig tilhlökkunin eykst eins og lítið fiðrildi í maganum. Vissulega þarf að gera klára margt fyrir jólin, bæði í vinnu og jólastússi. En síðan taka frídagarnir við og þá er um að gera að njóta. 21.12.2020 07:01