Konur sem berjast fyrir jafnrétti verða oft fyrir aðkasti „Ég vona að lagasetningin sé innlegg í þá viðhorfbreytingu sem byggir á að konur geti tekið þátt í kynferðislegri háttsemi án þess að eiga á hætti að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Það er ekki bara áfall og kostnaður fyrir einstaklinga sem fyrir slíku verða, heldur samfélagið og þannig atvinnulífið,” segir María Bjarnadóttir lögfræðingur, en hún skrifaði greiningagerðina fyrir íslensk stjórnvöld sem ný lög um stafrænt ofbeldi byggir á. 25.2.2021 07:01
Ómetanlegt að geta þegið ráð frá sterkum leiðtogum „Fræðslan nýttist mér beint inn í mín störf hjá Men&Mice þar sem ég fékk snemma tækifæri til að þróast í starfi og þar kom reynslan úr stjórnarstarfi félagsins ekki síður að góðum notum. Enn fremur gaf UAK mér sterkt tengslanet, sem hefur leitt af sér ýmis tækifæri sem ég efa að hefðu annars staðið mér til boða,“ segir Sigyn Jónsdóttir, VP of Customer Care hjá Men & Mice um það hvernig henni fannst félagsskapurinn UAK, Ungar athafnakonur, nýtast sér með beinum hætti á sinni framabraut. 24.2.2021 07:01
Fimm einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að taka alvarlega „Þó að rafræn samvera geti sannarlega gert okkur nánari, getur hún einnig orðið til þess að við finnum fyrir meiri einangrun. Þegar við verjum mörgum klukkustundum á viku á Teams-fjarfundum eða Zoom-fyrirlestrum getur það leitt til rafrænnar þreytu,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. 23.2.2021 07:00
Uppskera ævintýralegan vöxt eftir margra ára baráttu og áföll „Í flestum tilfellum eru peningarnir horfnir um leið og það er búið að millifæra þá, en þó eru til undantekningar. Til dæmis var eitt tilfelli þar sem íslenskt fyrirtæki tapaði hundruðum milljóna en endurheimti stóran hluta peninganna vegna þess að glæpamennirnir gátu ekki tekið þá nógu hratt út heldu aðeins með lágum upphæðum í einu. En þetta er erfiðara vegna þess að lögregluyfirvöld hafa ekki bolmagn til að rannsaka nema stærstu málin,“ segir Ragnar Sigurðsson stofnandi og framkvæmdastjóri AwareGo öryggisvitundar. 22.2.2021 07:01
„Í Covid eru margir að láta gamla drauma rætast“ „Það vilja allir spila á hljóðfæri því músík gefur svo mikið,“ segir Arnar Þór Gíslason framkvæmdastjóri Hljóðfærahússins í Reykjavík og Tónabúðarinnar á Akureyri. 21.2.2021 08:01
,,Að vinna á Stöð 2 á upphafsárunum var algerlega mergjað“ Það urðu allir starfsmenn á upphafsárum Stöðvar 2 að frumkvöðlum segir Jón Örn Guðbjartsson, markaðs- og samskiptastjóri Háskóla Íslands, þegar hann rifjar upp skemmtileg fyrri störf. Í þeirri upprifjun skýrir hann líka út hvers vegna hann var kallaður kommúnistinn þegar hann vann í frystihúsinu á Þingeyri. Við Valdimar son sinn ræðir hann um ofurhetjur og með Krumma hundinum sínum hlustar hann á hljóðbækur. Í vinnunni stendur yfir undirbúningur að stafrænu stuði. 20.2.2021 10:00
„Skiptir mestu máli að viðskiptavinurinn er í fyrsta sæti” Vörumerki þarf að standa fyrir svo mörgu öðru en eingöngu útliti markaðsefnis. Það þarf að mynda sterka og jákvæða upplifun og endurspegla þá upplifun sem viðskiptavinir verða fyrir. Það þarf að njóta virðingar viðskiptavina. 19.2.2021 07:01
„Frábært vörumerki getur verið lítið þekkt á meðal almennings“ „Okkar markmið er sýna hvernig góð vörumerki líta út og að þau verði þannig leiðarljós fyrir önnur fyrirtæki sem vilja vinna markvisst í sínum vörumerkjum. Þegar við segjum góð, þá meinum við góð samkvæmt viðurkenndum hagnýtum og fræðilegum aðferðum. Og góð því þau skila eigendum sínum meiri hagnaði en ella og neytendum skýrum ávinningi,“ segir Friðrik Larsen formaður dómnefndar um valið Bestu íslensku vörumerkin 2020 sem fram fer þann 25.febrúar næstkomandi. 18.2.2021 07:00
Vöktun bóluefnis og mikil fjölgun starfsfólks framundan „Hugmyndin að Controlant kviknaði í Háskóla Íslands sem hluti af meistaranámi okkar. Controlant varð til í H1N1 árið 2009, eða Svínaflensunni eins og hún er kölluð. Þá var okkar tækni notuð til þess að verja og stýra dreifingu og hýsingu á bóluefninu á Íslandi,“ segir Gísli Herjólfsson framkvæmdastjóri Controlant um upphafið en fyrirtækið var stofnað af fimm félögum, sem ýmist þekktust úr æsku eða kynntust í háskólanum. 15.2.2021 07:00
„Ég leiðrétti hana og benti á að ég er ekki mamma mín“ „Ég myndi segja að kvenleggurinn í fjölskyldunni samanstandi af miklum fagurkerum. Við viljum allar hafa fínt í kringum okkur. Meira að segja amma er enn að, nú 92 ára og rétt nýbúin að láta mála hjá sér og skipta um gardínur,“ segir Hrund Kristjánsdóttir og hlær. Hrund rekur húsgagnaverslunina Línuna með eiginmanni sínum Ágústi Jenssyni húsasmíðameistara. Línan var stofnuð árið 1976 og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu. 14.2.2021 08:00