Dæmi um að börn komi heim með vopn úr sólarlandaferðum Tollurinn lagði hald á átján skotvopn á fyrstu átta mánuðum ársins sem er mun meira en fyrir ári. Dæmi eru um að börn komi með vopn heim úr sólarlandaferðum með fjölskyldunni. 6.9.2024 20:02
Söluhagnaður af ólöglegri sjónvarpssölu eldsneyti glæpahópa Rúm þrjátíu prósent Íslendinga nota ólöglega sjónvarpsþjónustu. Forstjóri norrænna samtaka um hugverkavernd segir söluhagnað af ólöglega streyminu meðal annars fara í að fjármagna skipulagða glæpastarfsemi eins og vændi, fíknefnasölu og smygl. 6.9.2024 19:40
Höfundalögin „þarfnast ástar“ til að virka Stjórnarformaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kallar eftir því ráðherra breyti höfundalögum á Íslandi og uppfæri til samræmis við nútímann. Allur hugverkaiðnaðurinn sé undir sem neyðist til að styðja sig við úrelt lög. Málaflokkurinn „þarfnast ástar,“ líkt og stjórnarformaðurinn komst að orði, einkar skemmtilega. 5.9.2024 13:36
Mega ekki leita að vopnum í töskum og fatnaði barnanna Vopnaburður grunnskólabarna og unglinga hefur aukist á síðustu árum segir formaður Skólastjórafélags Íslands. Enn uggvænlegri þróun hafi orðið nýlega í þá átt að ungmenni eru farin að beita vopnunum. Samfélagið sé komið á alvarlegan stað og nú þurfi að spyrna við fótum. 2.9.2024 20:00
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. 2.9.2024 11:45
Hefja gagngerar endurbætur á Friðarsúlunni í Viðey Framkvæmdir við gagngerar endurbætur á Friðarsúlu í Viðey eru hafnar. Skúli Helgason, formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs, segir í samtali við fréttastofu að Friðarsúlan sé þörf áminning um friðarboðskap, sérstaklega vegna þróun heimsmála undanfarin ár. 30.8.2024 15:31
„Teljum okkur vera að færa skólasamfélagið fram um marga áratugi“ Matsferill og aðrar þær breytingar sem til stendur að innleiða í menntakerfinu munu færa skólasamfélagið fram um marga áratugi. Þetta segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Hún segir matsferil munu nýtast kennurum og nemendum mun betur en gömlu samræmdu prófin gerðu. 30.8.2024 14:47
Hátt í hundrað manns með magakveisu eftir hálendisferðir Sóttvarnalæknir segist vita til þess að hátt í hundrað manns hafi fengið magakveisu á hálendinu síðustu daga en hluti hópsins hefur fengið staðfesta nóróverusýkingu. Vonir stóðu til að hópsýkingin, sem tengist ferðamannastöðum á hálendinu, væri yfirstaðin en sóttvarnalæknir segir að fólk sé enn að veikjast. 29.8.2024 13:13
Hinn grunaði ógæfumaður sem íbúar höfðu áhyggjur af Tengsl hins grunaða við hjón á áttræðisaldri sem fundust látin í Neskaupstað á fimmtudag, voru hvorki mikil né djúp eftir því sem lögregla kemst næst þótt enn sé unnið að því að upplýsa um þann þátt málsins. Niðurstöður krufninga munu liggja fyrir fljótlega. 27.8.2024 12:01
Skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu áfengis Svokölluð breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu á áfengi. Fylkingin hefur miklar áhyggjur af fyrirhugaðri áfengissölu í Hagkaupum sem á að hefjast á næstu dögum. 27.8.2024 10:59