Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M Glæný könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka sýnir að Viðreisn rís umtalsvert. Á milli kannanna fer hún úr 13,8 prósentum upp í 16,2% og þar með er flokkurinn kominn upp fyrir Miðflokkinn og mælist næststærsti flokkur landsins. Könnunin er splunkuný og var tekin dagana 22. - 28 október. 28.10.2024 13:46
Flokkar sem sitji hjá séu ekki í stöðu til að setja skilyrði Leiðtogar ríkisstjórnarinnar eru bjartsýnir á að þingið nái að afgreiða fjárlög fyrir miðjan næsta mánuð. Forsætisráðherra segir að þeir flokkar sem ætli sér að sitja hjá við afgreiðslu málsins séu ekki í neinni stöðu til að setja skilyrði. 22.10.2024 19:38
Tæpur þriðjungur vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið Meirihluti þjóðarinnar, eða um 66 prósent, eru ánægð með stjórnarslitin samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Þá vilja flestir, eða um þriðjungur, að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar, leiði næstu ríkisstjórn og verði forsætisráðherra. 21.10.2024 19:41
Kosningapallborð: Kanónur kveðja Fyrsta formlega kosningapallborð fréttastofunnar fyrir alþingiskosningarnar verður helgað reyndum þingmönnum sem eru að kveðja sviðið og hafa tekið ákvörðun um að láta gott heita. 21.10.2024 13:07
Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ Leigubílstjóri, sem er innflytjandi frá Afganistan, varð fyrir fólskulegri árás í starfi í mánuðinum. Hann segist merkja skarpa breytingu í samfélaginu, nú sé rasisminn nær stjórnlaus og hann hræddur og kvíðinn fyrir hverja vakt. 19.10.2024 20:18
„Kennarar eru ekki eyland í kjarabaráttunni“ Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá SA segir að viðbótarhækkanir til kennarastéttarinnar geti raskað kjarasátt í landinu. Kennarar séu ekki eyland, fleiri hópar eigi eftir að klára sína samninga. Þá segir hann að samanburður einkageirans og hins opinbera sé snúinn því margir kostnaðarliðir, umfram laun, hvíli á herðum opinberra vinnuveitenda. 17.10.2024 12:02
Bjarneyjarstofa athvarf fyrir foreldra sem missa á meðgöngu Ný stofa fyrir fjölskyldur sem hafa misst börn á meðgöngu var opnuð á Landspítalanum í dag. Stofan hefur fengið nafnið Bjarneyjarstofa í höfuðið á Bjarneyju Hrafnberg ljósmóður sem hefur í meira en þrjátíu ár stutt foreldra í gegnum slíkan missi. 15.10.2024 20:01
Segjast ekki hafa fengið formlega kröfugerð frá kennurum Samninganefndir í kennaradeilunni komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara í morgun. Þetta var fyrsti fundur síðan boðað var til verkfalla sem eiga að bresta á í lok mánaðar. Formaður samninganefndar hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga segir kennara ekki hafa formlega lagt fram kröfugerð og formaður Kennarasambandsins segir yfirvofandi verkföll skerpa fókusinn hjá öllum. 15.10.2024 11:36
Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Í fyrramálið er mikilvægur fundur hjá Ríkissáttasemjara en umfangsmikil verkföll eru á dagskrá í lok mánaðar. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að enn beri mikið í milli en hann vonast til þess að deiluaðilar nái saman svo afstýra megi verkföllum. 15.10.2024 00:01
Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Atburðarásin hefur verið hröð í pólitíkinni síðustu sólarhringa og sérfræðingar varla haft undan að reyna að greina stöðuna. 14.10.2024 21:19