

Jóhann Hlíðar Harðarson
Nýjustu greinar eftir höfund

Frönsk leikkona sakar Íslandsvinkonu um kynferðislega áreitni
Franska leikkonan Lucie Lucas hefur sakað spænsku leikkonuna Victoriu Abril og samstarfskonu sína til margra ára um kynferðislega áreitni og fullyrt að margir samstarfsmanna hennar hafi sömu sögu að segja. Victoria Abril fór með eitt aðalhluverkanna í mynd Baltasar Kormáks, 101 Reykjavík um aldamótin.

Valdamestu hjón Repúblikana í Flórída flækt í kynlífshneyksli
Maðurinn sem Repúblikanaflokkurinn í Flórída hafði valið til að leiða flokkinn í gegnum forsetakosningarnar á næsta ári hefur verið sakaður um að nauðga æskuvinkonu sinni. Hann hefur verið sviptur embætti, en segir ásakanirnar byggða á þvættingi. Hann og eiginkona hans hafi stundað kynlíf með konunni um margra ára skeið.

Íslenski Atlantshafslaxinn nærri útrýmingarhættu
Íslenski Atlantshafslaxinn er nálægt því að vera í útrýmingarhættu, í fyrsta sinn, meðal annars vegna sjókvíaeldis. Þetta kemur fram á nýjum válista Alþjóðlegu Náttúruverndarsamtakanna sem gefinn var út í vikunni.

Evrópusambandið setur lög um gervigreind
Evrópuþingi hefur náð samkomulagi við öll aðildarríki sambandsins um að sett verði lög um notkun gervigreindar og þróun hennar. Þetta er í fyrsta sinn sem ákveðið er að setja lög um gervigreind.

Tveir leyniþjónustumenn handteknir fyrir njósnir
Tveir starfsmenn spænsku leyniþjónustunnar hafa verið handteknir fyrir að selja ríkisleyndarmál til Bandaríkjanna. Spánverjar hafa rekið tvo diplómata við bandaríska sendiráðið í Madrid úr landi.

Mikil hægrisveifla á meðal ungs fólks í Evrópu
Uppgangur hægri öfgaflokka hefur verið mikill á síðustu misserum á meginlandi Evrópu. Ástæðan er ekki endilega andstaða við innflytjendur og þjóðernishyggja, heldur allt eins vonbrigði ungs fólks með ríkjandi stjórnmálaflokka.

Meirihluti íbúa Katalóníu vill ekki sjálfstæði
Áhugi Katalóníubúa á að lýsa yfir sjálfstæði og stofna sjálfstætt ríki fer þverrandi með degi hverjum. Mikill meirihluti ungs fólks vill að Katalónía verði áfram hluti af Spáni. Jóhann Hlíðar Harðarson

Best að búa á Spáni
Fólki sem flyst til annarra landa finnst best að búa á Spáni. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var á meðal fólks sem vinnur og starfar fjarri heimalandi sínu. Spænskar borgir raða sér í þrjú efstu sætin.

Er vinsælasta jólalag sögunnar stolið?
Tiltölulega óþekktur sveitasöngvari í Bandaríkjunum krefst þess að Mariah Carey greiði sér 20 milljónir dala í skaðabætur. Hann hafi nefnilega samið jólalagið All I Want For Christmas Is You sex árum áður en Mariah Carey gaf lagið út.

Á annað hundrað handtekin vegna barnaklámshrings
Lögreglan á Spáni hefur handtekið 121 einstakling sem eru grunaðir um aðild að risastórum barnaklámshring. Þetta er ein stærsta aðgerð gegn barnaklámi í sögu Spánar.