Árni Tómas Ragnarsson er látinn Árni Tómas Ragnarsson læknir lést 27. apríl síðastliðinn. 18.5.2026 07:34
Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir Lai Ching-te, forseti Taívan, segir þarlend stjórnvöld ekki munu grípa til aðgerða sem gætu leitt til átaka en á sama tíma muni þau ekki gefa eftir sjálfræði landsins. 18.5.2026 06:49
Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta K-listinn á Bolungarvík, Máttur meyja og manna, tapaði manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og þar með meirihlutanum. O-listinn Betri Bolungarvík hlaut 57,6 prósent atkvæða en K-listinn 42,4 prósent. 17.5.2026 10:57
Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Staðan er óbreytt í Sveitarfélaginu Stykkishólmur eftir kosningar en H-listinn er enn með fjóra menn og Í-listinn þrjá, þrátt fyrir að H-listinn hafi bætt við sig 5,5 prósenta fylgi. 17.5.2026 10:19
Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta D-listinn í Húnabyggð bætti við sig manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og á nú fimm sveitarstjórnarmenn af níu. Hann ræður þannig meirihluta. 17.5.2026 09:40
Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Oddviti Langanesbyggðar, Sigurður Þór Guðmundsson, var síðasti maður sem komst inn í sveitarstjórn í kosningunum í gær. Kosningarnar í Langanesbyggð voru óbundnar en þá eru engir framboðslistar lagðir fram heldur geta kjósendur kosið hvaða kjörgenga íbúa sem er. 17.5.2026 09:23
Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra Bretlands, segist munu sækjast eftir því að verða næsti formaður Verkamannaflokksins ef til formannskjörs kemur. Hann vill að Bretar gangi aftur í Evrópusabandið. 17.5.2026 07:53
Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Margt var í miðborginni í nótt en skemmtanahald fór vel fram, að sögn lögreglu. Þó var nokkuð um verkefni á vaktinni og 99 mál skráð í kerfi lögreglunnar. Þrír gistu fangageymslur í morgunsárið. 17.5.2026 06:38
Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Framfaralistinn í Flóahreppi hlaut 76,8 prósent atkvæða í kosningunum í gær og bætti við sig manni. T-listinn fékk 23,2 prósent atkvæða og einn mann kjörinn. 17.5.2026 06:22
Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ný Lindex verslun opnar í Kringlunni á morgun en öllum Lindex verslunum landsins var lokað þegar fyrri rekstraraðili hætti með umboðið, sem fór til S4S. Nýja verslunin verður opnuð í plássinu þar sem Next var áður, við hlið H&M. 15.5.2026 12:36