Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. maí 2026 06:43 Þorgerður hvetur íslenska kjósendur til að vera meðvitaðir um það hvaðan þeir fá upplýsingar og að gera upp eigin hug varðandi áframhaldandi aðildarviðræður. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sakar einstaklinga og hópa innanlands sem utan um „hræðsluáróður“ í tengslum við boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Frá þessu greinir Guardian, sem hefur eftir Þorgerði að flokkar mótfallnir áframhaldandi aðildarviðræðum séu að nota aðferðir Nigel Farage og Ukip í aðdraganda Brexit; það er að dreifa falsupplýsingum. „Ég óttast að við stöndum frammi fyrir Brexit-augnabliki,“ sagði Þorgerður í samtali við Guardian. „Það væri að mínu viti hættuleg slóð að feta, þar sem stuðningsmenn Brexit höfðu frammi alls konar lygar.“ Þá varar hún við áhrifum frá Rússum og öðrum sem vilja freista þess að hafa neikvæð áhrif á umræðuna hér á Íslandi. Erlend afskipti og dreifing falsupplýsinga gætu mögulega haft áhrif á niðurstöðuna. Guardian segir ákvörðun stjórnvalda um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu meðal annars tilkomna vegna hótana Bandaríkjanna í garð Grænlands. Þorgerður segir í viðtalinu að sú alþjóðlega regla sem var grundvöllur öryggis og velsældar á Íslandi í áratugi sæti nú gríðarlegum þrýstingi og einnig gömul bandalög. „Þú kemur ekki fram við vini og bandamenn á borð við Grænland og Danmörku eins og Bandaríkin gerðu í upphafi þessa árs,“ segir hún en leggur þó áherslu á að samband Íslands og Bandaríkjanna væri enn traust. „Það að Ísland sé aðili Evrópusambandsins er ekki í mótsögn við að eiga í góðu sambandi við Bandaríkin. Annað útilokar ekki hitt,“ segir hún. Í frétt Guardian er vitnað í skoðanakönnun sem er sögð hafa verið framkvæmd fyrir utanríkisráðuneytið þar sem 42 prósent Íslendinga eru sögð fylgjandi því að hefja aftur aðildarviðræður en 39 prósent á móti. Guardian leitaði viðbragða hjá breska stjórnmálaflokknum Reform, sem stofnaður var af Nigel Farage. Farage var leiðtogi Ukip í aðdraganda Brexit. „Reform UK hefur engin tengsl við Ísland,“ sagði talsmaður flokksins. „Við óskum þeim góðs gengis í því að halda sig fyrir utan Evrópusambandið.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Brexit Evrópusambandið Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira