„Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. maí 2026 08:10 Watson var handtekinn á Grænlandi í júlí árið 2024, á grundvelli handtökuskipunar sem Europol gaf út fyrir hönd Japan. Hann var látinn laus í desember sama ár, eftir að stjórnvöld í Danmörku neituðu að framselja hann til Japan. Myndin er frá mótmælum í París, þar sem kallað var eftir lausn Watson. Getty/Richard Bord Stofnun Paul Watson boðar „Aðgerð 86“ í sumar, til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum, þar sem því er lýst með dramatískum hætti að fjögurra áratuga átök milli aðgerðasinna og „alræmdasta“ hvalveiðimanns Íslands, Kristjáns Loftssonar, séu enn á enda.
Samkvæmt tilkynningunni munu samtökin senda skipið Bandero hingað til lands til að hafa eftirlit með veiðum Hvals hf. Kristján Loftsson, eigandi fyrirtækisins, greindi frá því í apríl að lagt yrði til veiða í sumar, á sama tíma og Hafrannsóknarstofnun gaf út að ráðlagðar veiðar takmörkuðust við 150 langreyðar. Haft er eftir Robert Read hjá Captein Paul Watson Foundation UK að ef skip Hvals leggi frá höfn muni það ekki aðeins mæta gagnrýni og andstöðu, heldur verði gripið til „beinna aðgerða“. „Aðgerð 86“ vísar til þess atburðar þegar aðgerðasinnar sökktu skipunum Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkurhöfn. Sama ár hafði Alþjóðahvalveiðiráðið bannað hvalveiðar nema í vísindaskyni. Í tilkynningunni er vísað til þess að andastaða við hvalveiðar hafi aukist og að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafi sagt að frumvarp um bann við hvalveiðum verði líklega lagt fram á haustþingi. Þá hafi eftirspurn eftir hvalkjöti í Japan dregist saman. Haft er eftir Watson að hin áratuga löngu átök séu senn á enda. „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026,“ segir hann. Þá segir undir lok tilkynningarinnar að fyrir áhöfn Bandero sé Aðgerð 86 ekki bara enn ein aðgerðin, heldur sé um að ræða loka áskorun gegn iðnaði sem hefur varað áratugum lengur en sagan ætlaði.
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira