Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur

Lögreglan á Norðurlandi eystra var með mál til skoðunar þar sem aðskotahlutir voru taldir hafa fundist í súkkulaðistykkjum sem gefin voru börnum í gær í tilefni hrekkjavökunnar. Embættið bað fólk um að hafa varann á vegna þessa en við nánari athugun lögreglu kom í ljós að um var að ræða hrekk í Facebook-hópi. 

Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ís­land

Robert Irwin átti nokkra frídaga inni og gerði sér ferð alla leið frá heimalandinu, Ástralíu, og til Íslands til að svala ferðaþorstanum. Hann heimsótti Yoda-hellinn, Reynisfjöru og Seljalandsfoss ef marka má myndir sem hann birti frá ferðinni á samfélagsmiðlum.

Snerist upp í of­beldi þegar nóttin skall á

Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn.

Tveir hand­teknir með vopn í unglingapartíi

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en fangageymslur fylltust og útköll voru mörg. Meðal mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar var útkall vegna unglingapartís sem fór úr böndunum en tveir voru handteknir í öðru samkvæmi fyrir vopnalagabrot. 

And­lát í Breið­holti til rann­sóknar

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt en í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að þrír menn hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Einar og Sanna mæta á Sprengi­sand og ræða upp­sagnir

Páll Magnússon tekur á móti góðum gestum í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst að vanda klukkan 10 og stendur til 12 en hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan eða í sjónvarpi á Sýn. Meðal þeirra sem mæta í settið eru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins.

Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum

Það ætlaði allt um koll að keyra í nótt og má leiða líkur að því að hinir ýmsu hrekkjavökufögnuðir hafi ýtt undir hasarinn. Þá fór í það minnsta eitt unglingapartí úr böndunum og voru tveir kærðir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu sem og að bera vopn.

Reykur barst um sam­eign og vatn lak niður í næstu í­búðir

Síðasti bíll keyrði af vettvangi um klukkan eitt í nótt eftir að vinnu lauk við að reykræsta og hreinsa upp svæðið við fjölbýlishús í Norðlingaholti þar sem upp kom eldur á ellefta tímanum. Þá var einn fluttur á slysadeild og skoðaður vegna gruns um reykeitrun en sá virtist ekki hafa hlotið lífshættulega áverka að sögn varaslökkviliðsstjóra.

Hlýtt en vætu­samt veður í kortunum næstu daga

Víðáttumikil hæð vestur af Írlandi stjórnar veðrinu hjá okkur hér á Íslandi í dag en það hlýnar smám saman og svo gengur úrkomubakki inn yfir vesturhluta landsins í kvöld með samfelldri rigningu. Áttin verður suðlæg eða suðvestlæg og víða 5 til 13 metrar á sekúndu.

Sjá meira