Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist mein­laus

Óþekktur málmhlutur sem fannst í sjónum nærri Helsinki í Finnlandi virðist samkvæmt frummati vera „mjög gamall vélrænn hluti úr skipsflaki“. Lögreglan á svæðinu lokaði fyrir skipaumferð á svæðinu og var finnski herinn kallaður til aðstoðar eftir að tilkynning barst um að trektlaga hlutur hefði fundist í sjónum suður af eyjunni Kustaanmiekka.

Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina

Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu.

Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda

Leitarhópar hafa fundið brak úr sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í gær, laugardaginn 3. október, en sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Enn er leitað að eftirlifendum á svæðinu þar sem brakið fannst en það er undan strönd Nantucket, eyju í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum.

Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna.

Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax

Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið.

Breytingar á vetrar­opnun mið­stöðvarinnar í Kerlingar­fjöllum kynntar

Lokað verður fyrir almennar bókanir í Hálendismiðstöðina í Kerlingarfjöllum yfir vetrarmánuðina en áfram opið fyrir hópabókanir. Rekstrarstjóri segir breytinguna vera hluta af því ferli að sjá hvað virki best fyrir staðinn sem verði mannaður í allan vetur og því starfandi allt árið um kring.

Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir

Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 

Veittist að flug­stjóranum með öxi í til­raun til að fremja hryðju­verk

Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni.

Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza

Ungar konur sem fóru í ferð til Ibiza með Pilates-klúbbi World Class gagnrýna hvernig fulltrúar líkamsræktarstöðvarinnar brugðust við eftir að talið var að eldur hefði kviknað í skemmtibáti sem tekinn var á leigu á sunnudag.

Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber

Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu Arnarlandi í Garðabæ hafa margir hverjir lýst því að sprengingar á svæðinu finnist vel á heimilum sem skelfi öll. Þá heyrist ekki nægilega vel í hljóðmerkjum sem eigi að koma á undan og á eftir hverri sprengingu. Sprengistjóri segir að leitast sé við að valda sem minnstu ónæði en hann skilji vel að það sé ekki spennandi að hafa þetta í þéttbýli.

Sjá meira