„Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn. 24.2.2026 12:21
Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Það er þungbært og erfitt að horfa upp á að enn geisi stríð í heimalandinu að sögn úkraínskra kvenna sem búa á Íslandi. Þær eru þakklátar fyrir stuðning Íslendinga, í hvaða mynd sem hann er, en á morgun eru fjögur ár síðan allsherjarinnráð Rússa í Úkraínu hófst. 23.2.2026 20:02
Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Árum saman hefur verið mikill skortur á rafvirkjum á Íslandi og enn frekari skortur er yfirvofandi ef ekkert verður að gert. Þetta segir formaður Félags kennara í rafiðngreinum. Helst þyrfti að útskrifa tvöfalt fleiri á ári en nú er gert, þörfin fari vaxandi með aukinni tækniþróun og sjálfvirknivæðingu á meðan fjármagn skorti til að efla iðnmenntun og fjölga í greininni. 22.2.2026 12:38
Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa Þrátt fyrir boðaðar úrbætur með Reykjavíkurmódelinu svokallaða í leikskólamálum þarf meira til að leysa úr húsnæðis- og mönnunarvanda að sögn leikskólastjórnenda. Fréttastofa leit við á þremur leikskólum í dag þar sem flutningar standa yfir, ýmist vegna eftirleiks af völdum myglu eða yfirvofandi þakviðgerða. 20.2.2026 21:33
Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. 20.2.2026 17:24
Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Nemendamótið er jafnan hápunktur skólaársins hjá nemendum í Verzlunarskólanum sem hafa í ár sett upp söngleik sem byggir á sögu eins þekktasta leikfangs í heimi. Verkið sem sló í gegn á hvíta tjaldinu fyrir ekki svo löngu hefur nú verið sett í íslenskan búning þar sem þekkt íslensk dægurlög fá meðal annars að njóta sín. 19.2.2026 20:03
Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Undirboð á fasteignamarkaði hafa aukist og hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu verði hefur farið vaxandi. Þá dregur úr verðþrýstingi á leigumarkaði þar sem leiguverð hefur í fyrsta sinn í nokkur ár hækkað minna en verðbólga. Húsnæðismarkaðurinn sýnir merki um áframhaldandi kólnun og fleiri íbúðir seljast nú undir auglýstu söluverði að því er nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. 19.2.2026 13:01
Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Ekki er útlit fyrir að frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu verði afgreitt úr þingnefnd fyrr en í fyrsta lagi í byrjun mars. Hart hefur verið tekist á um málið þrátt fyrir að það snúi í meginatriðum um að breyta einu orði. Stjórnarandstaðan segir fjölga í hópi gagnrýnenda. 18.2.2026 20:23
„Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Kona á níræðisaldri með Alzheimer gæti þurft að bíða í allt að fjögur ár eftir að komast á hjúkrunarheimili. Sonur hennar segir sárt að horfa upp á að ekki hafi verið brugðist fyrr við, þrátt fyrir að í mörg ár hafi legið fyrir að þörf væri fyrir fleiri rými. 18.2.2026 20:01
Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Vísbendingar eru um að um þúsund börn á Íslandi sæki ekki grunnskóla, þrátt fyrir skólaskyldu. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um það hversu víðtækt vandamál er um að ræða en margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að börn sæki ekki skóla. 18.2.2026 12:56