Forsetinn hvetur ríkisstjórnina til að fara frá Alls þurftu 45 manns að leita aðhlynningar á sjúkrahúsi eftir að til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í búlgörsku höfuðborginni Sófíu í gær. 3.9.2020 14:35
Fimm börn fundust látin í íbúð í Þýskalandi Lögregla í Þýskalandi hefur staðfest að fimm börn hafi fundist látin í íbúð í bænum Solingen í Norðurrín-Vestfalíu. 3.9.2020 13:34
Guðmundur nýr stjórnarformaður CRI Guðmundur Þóroddsson er nýr stjórnarformaður íslenska tæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) en aðalfundur félagsins fór fram undir lok nýliðins ágústmánaðar. 3.9.2020 12:38
Reiðubúin að fara í stjórnarandstöðu eftir 30 ára valdatíð Lýðræðislegi sósíalistaflokkurinn í Svartfjallalandi (DPS) er reiðubúinn að fara í stjórnarandstöðu eftir að hafa verið við völd í landinu í um þrjátíu ár. Þingkosningar fóru fram í landinu um liðna helgi. 3.9.2020 12:30
Kveður Ísland og heldur til Pretóríu Håkan Juholt, sem gegnt hefur starfi sendiherra Svíþjóðar á Íslandi síðustu ár, vann sinn síðasta vinnudag í sendiráðinu í vikunni og hefur nú yfirgefið landið. Hann mun nú taka við starfi sendiherra Svíþjóðar í Suður-Afríku. 3.9.2020 11:28
Fjögur ný innanlandssmit Alls greindust fjórir með virkt kórónuveirusmit innanlands síðasta sólarhringinn. Tveir voru í sóttkví. 3.9.2020 11:07
Slasaðist á fjórhjóli sunnan við Mývatn Björgunarsveitir á Norðurlandi eystra voru kallaðar út á tíunda tímanum í morgun vegna fjórhjólaslyss á hálendinu sunnan við Mývatn. 3.9.2020 10:39
Útibúi lokað og þrettán í sóttkví vegna smits starfsmanns Þrettán starfsmenn Landsbankans í Mjódd eru komnir í sóttkví. Beðið er upplýsinga hvort að hafa þurfi samband við viðskiptavini sem mættu í útibúið fyrr í vikunni. 3.9.2020 09:48
Leita skips með 43 skipverjum og sex þúsund nautgripum Japanska strandgæslan leitar nú við afleit veðurskilyrði að 43 skipverjum flutningaskips sem talið er að hafi sokkið suðvestur af landinu. 3.9.2020 08:52
Pelosi segir atvikið á hárgreiðslustofunni hafa verið gildru Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings segist hafa verið leidd í gildru í heimsókn sinni á hárgreiðslustofu í San Francisco þar sem myndir náðust af henni án grímu. Var um brot á sóttvarnareglum að ræða. 3.9.2020 08:11