Takmörkunum aflétt á Grænlandi Ekki hafa komið upp nein ný tilfelli kórónuveirusmita í grænlensku höfuðborginni Nuuk og hefur landsstjórnin því ákveðið að aflétta þeim takmörkunum sem komið var á fyrir helgi. 1.6.2021 07:42
Tvær lægðir stjórna veðrinu á fyrsta degi júnímánaðar Tvær lægðir stjórna veðrinu á landinu í dag. Önnur þeirra er um 300 kílómetra vestur af Reykjanesi á hægri leið norður, en henni fylgja suðlægar áttir, fimm til þrettán metrar á sekúndu, með skúrum um vestanvert landið. 1.6.2021 07:20
Segir gróðureldavána komna til að vera Slökkviliðsmenn hafa nú þurft að glíma við á áttunda tug gróðurelda hér á landi frá 9. apríl. Forstöðumaður brunavarna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir gróðurelda vaxandi vá hér á landi og að efla þurfi viðbúnað og fræðslu. 30.5.2021 20:49
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 fjöllum við meðal annars um sveitarstjórnarmál og að meirihluti þingnefndar hafi ákveðið að falla frá kröfu um lágmarksfjölda íbúa í sveitarfélögum. 30.5.2021 17:54
Flutti útivistarmann frá Vestfjörðum og á Landspítala Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að flytja útivistarmann frá Vestfjörðum og á Landspítalann á öðrum tímanum í dag. 30.5.2021 16:11
Tekur við stöðu mannauðsstjóra Heilsuverndar Elín Hjálmsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra hjá Heilsuvernd. Hún mun starfa þvert á öll félög Heilsuverndar, leiða þar mannauðsmál og vinna að frekari uppbyggingu og þróun bæði í innri og ytri starfsemi. 30.5.2021 15:13
Slökkvilið kallað út vegna elds á trésmíðaverkstæði í Kópavogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 15 í dag vegna elds á trésmíðaverkstæði við Dalbrekku í Kópavogi. 29.5.2021 15:58
Gul viðvörun gefin út fyrir Breiðafjörð Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Breiðafjörð vegna sunnan hvassviðris eða storms. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta í kvöld og stendur til fimm í fyrramálið. 29.5.2021 13:41
Loka á öll flug til Nuuk og veitingastöðum lokað Grænlenska stjórnin hefur ákveðið að loka á allt flug til höfuðborgarinnar Nuuk fram á mánudag. Íþróttaviðburðir verða sömuleiðis bannaðir og veitingastöðum gert að loka. 28.5.2021 14:24
Andrea nýr formaður UAK Andrea Gunnarsdóttir var kjörin formaður Ungra athafnakvenna (UAK) á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Þar var sömuleiðis ný stjórn kjörin. 28.5.2021 14:00