Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kjós­endur á loka­sprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“

Bjarki Sigurðsson var staddur í bæði Ráðhúsinu í Reykjavík og fyrir utan Hagaskóla í Vesturbæ rétt upp úr klukkan níu og ræddi við kjósendur á lokasprettinum en síðustu kjörstöðum var lokað klukkan tíu í kvöld. Sumir gleymdu sér en aðrir nutu veðurblíðu dagsins. Flestir kjósendur voru sammála um að það hefði ekki tekið þá langan tíma að gera upp hug sinn.

„Verkinu er haldið í gíslingu“

Hrafnhildur Arnardóttir, þekkt sem listamaðurinn Shoplifter, segir að verk hennar Chromo Sapiens sé nú til sýningar í Höfuðstöðinni í hennar óþökk. Hún hafi ekki lengur aðgang að sýningarrýminu auk vinnustofu sinnar á svæðinu en búið sé að skipta um lása á byggingunni. Hrafnhildur segir málið hreinan listaverkastuld, enda sé hún réttmætur eigandi verksins.

Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir

Útvarps- og tónlistarmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson var heiðraður í vikunni fyrir framlag sitt til íslensks útvarps og einstakan þátt í sögu Bylgjunnar. Útvarpsstöðin fagnar fjörutíu ára afmæli sínu á morgun.

Marg­menni fyrir utan höllina og blóm­vendir upp­seldir

Mikill fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan Konungshöllina í Ósló í dag og beið fregna af Haraldi Noregskonungi en heilsufarsástand hans hrakar enn og er sagt „mjög alvarlegt.“ Íslendingur sem staddur er í Ósló segir að blómvendir þar í borg hafi klárast í búðum og lýsir ástandinu fyrir framan höllina eins og á þjóðhátíðardegi.

Sam­ræmdar reglur um símafrí settar

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Markmið reglugerðarinnar er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag en samkvæmt reglugerðinni mega börn og unglingar ekki nota síma á skólatíma. 

„Hjá­kát­legt“ sé að ræða verð á kaffi­bollum í Búda­pest

Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins.

Beint streymi: Háskóla­menntaðir á húsnæðis­markaði

Niðurstöður könnunar um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði verða kynntar á morgun á fundi BHM og félaga háskólamenntaðra í Norræna húsinu. Hér að neðan má fylgjast með fundinum í beinu streymi. 

Eigin­maður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra

Seiðmaðurinn og eiginmaður Mörtu Lovísu Noregsprinsessu, Durek Verrett, hefur gengist undir nýrnaígræðslu á Ríkisspítalanum í Ósló. Ígræðslan er sögð hafa gengið vel eftir langa bið eftir líffæragjafa. Hann var 28 ára gamall þegar hann greindist með ólæknandi nýrnasjúkdóm.

Svona verður at­kvæða­greiðslan á laugar­daginn

Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar.

Sjá meira