Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám

Samkvæmt útgönguspám SVT og TV4 í Svíþjóð er fylking Magdalenu Andersson og stjórnarandstöðunnar með naumt forskot á fylkingu núverandi forsætisráðherra, Ulf Kristersson. Svíþjóðardemókratar tapa fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga.

Prinsinn hefur nám við Eton-skóla

Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, hóf í dag skólagöngu sína í Eton-skólanum, einum dýrasta heimavistarskóla Bretlands. Hann fetar því í fótspor föður síns og frænda, Harrys hertoga af Sussex, auk margra fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfunda.

Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks

Rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair segist hafa neitað að skrifa undir fjörutíu milljóna dala þagnarsamning við auðjöfurinn Elon Musk, barnsföður sinn. Í dag var frumsýnd heimildarmynd um ævi og feril Musks, auðugasta manns heims.

Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp

Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu. 

Íkveikja í mið­borginni

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um íkveikju í íbúðarhúsi í miðbæ Reykjavíkur í dag. Gerandi er enn ókunnur en málið er í rannsókn. Minniháttar skemmdir urðu á húsinu. 

Á­varp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“

Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla og missir sem minni á hvað skipti mestu máli var meðal þess sem var forseta Íslands hugleikið í ávarpi sínu við þingsetningu í dag. Halla Tómasdóttir setti 158. löggjafarþing í dag. 

Funduðu í Moskvu um enda­lok stríðsins

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið.

Posarnir komnir í lag á ný

Posar Teya sem tengdir eru við kassakerfi eru komnir í lag á ný og kerfið sem olli biluninni er orðið stöðugt að sögn fjártæknifyrirtækisins. Langar raðir mynduðust víða vegna bilunarinnar sem kom upp um tuttugu mínútur í þrjú í dag. 

Sjá meira