Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul

Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur. 

Vara við manni sem hafi óskað eftir per­sónu­upp­lýsingum nem­enda

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema.

Banda­ríkjaher gerði á­rásir á þrjú írönsk skip

Bandaríkjaher hefur gert árás á þrjú írönsk olíuskip eftir að Íranir skutu skotflaugum að tveimur bandarískum herskipum, að sögn aðgerðarstjórnar hersins. Árásir milli ríkjanna tveggja hafa færst í aukana síðastliðna viku.

Bilun hjá Teya olli löngum röðum

Langar biðraðir mynduðust í Ikea og víða annars staðar í dag vegna bilunar hjá fjártæknifyrirtækinu Teya. Bilunin kom upp um tuttugu mínútur í þrjú.

Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs

Í gær var haldið opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs en það er sérhannað með þarfir kvenna og barna í huga. Anton Brink ljósmyndari var á staðnum og myndaði nýja athvarfið og gesti opnunarhófsins. 

Óttast að yfir átta­tíu hafi farist

Talið er að um 80 manns hafi týnt lífi á ferð yfir Atlantshafið frá Gambíu til Kanarí. Báturinn fannst við strendur Kanarí 27 dögum eftir að hann er talinn hafa lagt af stað með 127 farþega innbyrðis. 

Túlkunar­at­riði hvað eigi að gera við um­sóknina

Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan.

Hættir með stefnumótaþættina vin­sælu

Amelia Dimoldenberg hefur ákveðið að hætta með þættina geysivinsælu Chicken Shop Date. Hún hefur haldið úti þáttunum í rúman áratug og fengið til sín yfir hundrað gesti á „stefnumót.“ 

Fegursta flug­vél Ís­lands rifin

Niðurrif Boeing 757-þotunnar Heklu Auroru, eða Norðurljósaþotunnar, er hafið. Flugáhugamenn sögðu margir þotuna eina fegurstu flugvél heims en hún flaug sitt síðasta flug í október síðastliðnum. 

„Ekkert af þessu er bein­línis að hjálpa okkur“

Ríkissáttasemjari segir óljóst hvort kjarasamningar Icelandair og flugmanna náist fyrir 15. september eins og stefnt var að. Enn beri mikið á milli og deilan sé snúin. Kaup Icelandair á Play Europe og nýleg svefnkönnun Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjálpi ekki til í viðræðunum.

Sjá meira