Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Stinning­skaldi og súld suð­vestan­lands

Í dag má búast við suðvestanátt á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu og súld um landið sunnan- og vestanvert. Draga á úr vætu í kvöld. Hiti verður á bilinu tíu til nítján stig, hlýjast austanlands.

Meghan snýr aftur á skjáinn

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

Blaut og vindasöm Menningar­nótt í vændum

Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 

Sveitar­fé­lögin séu ekki söku­dólgurinn

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna ekki vera sökudólg vaxtahækkana. Launafólki hafi þó fjölgað í opinberri þjónustu sveitarfélaganna fyrr á árinu. Sveitarfélögin séu jafnframt reiðubúin að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu og vandamálið verði ekki leyst nema með samvinnu.

Upp­hrópanir bæjar­ráðs séu ó­tíma­bærar

Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi.

Svona verður dag­skráin á Menningar­nótt

Haldið verður hátíðlega upp á afmæli Reykjavíkurborgar á Menningarnótt laugardaginn næstkomandi, 22. ágúst. Gestir og gangandi geta sótt ríflega fjögur hundruð viðburði á borð við bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð.

Eldur kviknaði við Stálhellu

Eldur kviknaði við Stálhellu í Hafnarfirði í kvöld. Slökkvilið var sent á vettvang til að ráða niðurlögum eldsins. 

Sjá meira