Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 13:32 Að landmönnum hafi fjölgað um fimmtíu þúsund segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vera eitt skýrasta dæmið um stefnuleysi í innflytjendamálum. Vísir/Bjarni Dómsmálaráðherra segir algjört stefnuleysi hafa ríkt um árabil í innflytjendamálum og að stéttskipting hafi í kjölfarið verið flutt inn. Mikilvægt sé að gera bæði kröfur til fólks sem hér sest að og til Íslendinga um móttöku þess fólks.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra var gestur í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar. Hún segir innflytjendamál hafa verið algjört forgangsverkefni þegar hún tók við starfinu. Breytt landslag sé á Alþingi hvað varðar málaflokkinn og bæði þig og þjóð séu sammála um að koma þurfi stjórn á hann og læra af því sem gerst hefur í löndunum í kringum okkur. „Það er oft hiti í þessum málaflokki sem snýr að innflytjendum, en það er breytt landslag niðri á þingi þegar kemur að þessum málaflokki. Þetta voru mjög miklir pólar og til einföldunar voru þetta annars vegar þeir sem vildu bara lokuð landamæri og hins vegar þeir sem vildu bara allt opið, sama hvað. En ég held að bæði þing og þjóð séu í dag komin inn á að það þurfi reglur um þetta eins og allt annað. Það þarf einhverja fúnksjón í regluverkinu hér eins og alls staðar annars staðar,“ segir Þorbjörg. Ísland sé fámenn eyja sem vilji laða fólk til landsins en nauðsynlegt sé að hafa stjórn á málaflokknum. „Við erum fámenn eyja og við þurfum fólk til landsins atvinnulífsins vegna. Við erum með háskóla hér og súrefni háskóla er alþjóðlegt samstarf. Við viljum laða fólk til landsins. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að við eigum sem þjóð að sýna það í verki að við viljum taka á móti fólki á flótta, en við verðum að hafa stjórn á þessum málaflokki eins og öllum öðrum,“ segir Þorbjörg Sigríður. „Þarna var verið að flytja inn stéttskiptingu“ Skýrasta dæmið um stefnuleysi sé að frá 2017 til 2025 hafi íbúum landsins fjölgað um fimmtíu þúsund manns. Sú fjölgun hafi orsakast af skorti á framtíðarsýn og stéttskipting hafi í kjölfarið verið flutt inn til landsins. „Þarna var verið að flytja inn stéttskiptingu. Þú ert að flytja inn fólk til að vinna í störfum þar sem laun eru lægri. Þetta fólk fer ekki á Kjarval eftir vinnu, situr ekki þar með tölvuna að drekka þúsund króna kaffibolla. Það er bara ekki að því. Það er heldur ekki að kaupa sér nautalund í Melabúðinni og er ekki með okkur í gusum.“ Hverfi séu orðin skipt, krakkar séu að koma inn í grunnskólana með afar ólíkar stuðningsþarfir og börn innflytjenda séu síðri til þess að taka þátt í íþróttastarfi. Bæði þurfi að gera kröfur til fólks sem komi til landsins og einnig til Íslands um móttöku fólks. „Allar þessar ákvarðanir skipta máli og þess vegna er ég að horfa á þetta þannig að það sé einhver stefna, að við horfum til reynslu annarra ríkja og hugsum þetta út frá jafnvægi í samfélaginu. Hvað viljum við? Hvað þolum við? Þá erum við að hugsa um ávinning þess að fá fólk til móts við einhver þyngsli á innviði. Og síðan það sem mér finnst vanta í samfélagið: Kröfur. Kröfur til fólks sem kemur hingað og kröfur til okkar um móttöku,“ segir dómsmálaráðherra. Alla þætti hlaðvarps Sölva Tryggvasonar má finna hér.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Podcast með Sölva Tryggva Innflytjendamál Vinnumarkaður Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Sjá meira