Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Einum sleppt úr gæslu­varð­haldi og tveir eftir

Lögregla hefur sleppt einum þeirra þriggja sem úrskurðaðir voru í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu fíkniefna og peningaþvætti. Lögreglan  fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur til 2. október og þeim þriðja þangað til í dag.

Ekið á hjólreiðamann í Kópa­vogi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í dag þar sem ekið var á hjólamann í hverfi 200 í Kópavogi. Sá hlaut minni háttar áverka en var sendur á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu um störf dagsins.

Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta

Tíu ár eru liðin frá því að tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin gaf út sína fyrstu plötu, Þekkir Stráginn, þá aðeins sextán ára gamall. Til að fagna áratugnum í bransanum hélt Aron afmælistónleika í Laugardalshöll í gær þar sem síðustu tíu árin voru gerð upp.

Slökkvi­lið kallað út í Hafnar­fjörð

Tveir dælubílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og sjúkrabíll voru kallaðir að íbúðarhúsi á Norðurbakka í Hafnarfirði vegna tilkynningar um reyk frá fjölbýlishúsi. Þá reyndist reykurinn koma frá lyftu hússins. 

Loka Krambúðinni á Húsa­vík

Krambúðinni á Húsavík verður lokað í lok þessa árs. Framkvæmdastjóri verslana Samkaupa segir alltaf erfitt að taka ákvarðanir um að segja upp starfsfólki en reksturinn hafi reynst erfiður.

Beitti úðavopni á veg­far­endur

Í nótt kom til átaka milli fólks eftir að einn beitti úðavopni á vegfarendur í miðborg Reykjavíkur. Sá var handtekinn vegna málsins og reyndist hann eftirlýstur af lögreglu. 

Efna­hags­málin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengi­sandi

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Að vanda er dagskráin fjölbreytt en þáttur dagsins einkennist af alvöru og gamni.

Heimili rýmd nærri herflugstöð

Heimili nærri herflugstöð í Gloucester-skíri á Englandi voru rýmd í morgun að sögn lögreglu þar í landi. Nokkrir voru handteknir grunaðir um brot á lögum er varða sprengiefni nærri stöðinni en bandaríski flugherinn hefur þar aðsetur.

Á­fram spáð tals­verðri úr­komu norðvestan­lands

Búast má við talsverðri úrkomu á norðvesturhluta landsins, rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomulítið verður annars staðar á landinu, þó má búast við vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu þrjú til ellefu stig, svalast á Vestfjörðum.

Sjá meira