Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Andrea Marý Sigurjónsdóttir, leikmaður kvennaliðs FH í fótbolta sem hneig niður í leik liðsins gegn Breiðabliki í gær, er á batavegi. Hún undirgekkst rannsóknir í gær og í nótt og heilsaði svo upp á liðsfélaga sína í morgun. 4.5.2024 12:22
„Ég sakna hennar á hverjum degi“ Arnór Þór Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og núverandi þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Bergischer, segir tímann sem liðið hefur frá andláti eldri systur hans, Tinnu Bjargar Malmquist Gunnarsdóttur, hafa verið mjög erfiðan. Hann hugsar á hverjum degi til systur sinnar. Tekur á móti krefjandi dögum en einnig gleðidögum. Á þeim dögum standi það sterkt hversu góða manneskju Tinna Björg hafði að geyma. 4.5.2024 08:01
Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Sveindís Jane Jónsdóttir, er mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir að hafa glímt við axlarmeiðsli sem hún varð fyrir í landsleik gegn Þýskalandi í síðasta mánuði. 3.5.2024 15:58
Rúnar Már fann neistann Atvinnu- og landsliðsmaðurinn í fótbolta. Rúnar Már S. Sigurjónsson. Ætlar að láta til sín taka í Bestu deildinni í sumar. Hann fann að neistinn var til staðar til að snúa aftur heim í íslenska boltann. Hann er ekki mættur hingað til lands í frí og hefur skrifað undir samning við ÍA. Tíðindi sem var lengi beðið eftir en það var góð og gild ástæða fyrir því. 3.5.2024 11:28
Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Í gær bárust stórar fréttir úr heimi Formúlu 1. Adrian Newey, aðal hönnuðurinn að baki keppnisbílum Red Bull frá árinu 2006. Maðurinn sem er jafnan talinn vera heilinn að baki þeim þrettán heimsmeistaratitlum sem liðið hefur unnið síðan að hann gekk til liðs við það, er á förum í upphafi næsta árs. 2.5.2024 12:00
Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe, sem á vænan hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United, hefur komið því í gegn að starfsfólki félagsins verði meinað að vinna að heiman í störfum sínum fyrir félagið. 2.5.2024 10:30
Skúrkurinn endaði sem hetjan Það er óhætt að segja að Hannah Sharts, bandarískur miðvörður Bestu deildar liðs Stjörnunnar, hafi átt viðburðaríkan leik gegn Keflavík á dögunum. Eftir að hafa gerst sek um óvenjuleg mistök í fyrri hálfleik steig hún upp og bætti upp fyrir þau með hreint út sagt mögnuðum leik. 2.5.2024 10:01
Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Hinn 15 ára gamli Viktor Bjarki Daðason varð í gær yngsti markaskorari Fram í sögu efstu deildar er hann tryggði liðinu jafntefli undir lok leiks gegn Val í Bestu deildinni. Viktor er með báða fætur á jörðinni og heldur út í atvinnumennsku í sumar. 1.5.2024 10:00
Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson var á meðal áhorfenda á fyrsta leik Grindavíkur og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar karla í körfubolta í gær. Hrifning hans á einni af flottustu körfu leiksins leyndi sér ekki og voru sérfræðingar Körfuboltakvölds yfir sig hrifnir af viðbrögðum Guðna sömuleiðis. 1.5.2024 08:58
Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki „Þetta er bara komið gott,“ segir körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson sem hefur fengið sig fullsaddan af ófyrirleitnum skilaboðum. Aðkasti í garð dómara. Hann segir fyrst og fremst umbreytingu þurfa að eiga sér stað hjá dómurum. Svona áreiti eigi ekki að stinga í vasann. Hann vill skítkastið upp á yfirborðið. Þá fyrst sé möguleiki á því að þeir sem sendi slík skilaboð sjái að sér. 30.4.2024 10:30