Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Aron Guðmundsson skrifar 5. júní 2026 08:32 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir á góðri stundu með íslenska landsliðinu Stelpurnar okkar eru með örlögin í sínum höndum fyrir mikilvægan útileik í undankeppni HM í fótbolta í dag. Sérfræðingur telur möguleikana fyrir leikinn góðan en Ísland þarf að fylla upp í stórt skarð sem höggvið hefur verið í raðir liðsins.
Með því að forðast tap gegn Úkraínu í dag getur íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekið risastórt skref í átt að sínu fyrsta heimsmeistaramóti í Brasilíu á næsta ári og átt álitlegri leið í gegnum umspilið að mótinu. Þarf mikið að ganga upp Liðin mættust á Laugardalsvelli fyrr á árinu þar sem Stelpurnar okkar unnu sinn eina leik í undankeppninni til þessa með 1-0 sigri. Yfirburðirnir þá miklir Íslandi í hag en sigurinn með tæpasta mun. Nú í Póllandi, má gera ráð fyrir snúnu verkefni. „Ég held þetta verði aðeins jafnari leikur þarna úti. Mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Spái því þó að við tökum þennan sigur en það þarf alveg mikið að ganga upp.“ Heimaleikurinn var, jú það voru yfirburðir okkar megin en við vorum samt sem áður ekki alveg nógu klínískar og þurfum að nýta færin betur þegar við fáum þau. Úkraína er hættulegt lið. Sérstaklega þegar þær komast í skyndisóknir. Þær eru mjög hættulegar í föstum leikatriðum. Þetta eru gildi sem við þurfum að passa upp á. Verjast vel og ekki hleypa þeim inn í leikinn.“ Án Sveindísar Jane Íslenska landsliðið mun þurfa að spjara sig án hinnar ógnarsterku Sveindísar Jane Jónsdóttur sem glímir við meiðsli. „Auðvitað hefur þetta mikil áhrif og er mikið áfall fyrir liðið því Sveindís er ein af okkar bestu leikmönnum og við treystum svolítið mikið á hana í okkar spili og okkar föstu leikatriðum. Sveindís er ein af hröðustu leikmönnum í heimi. Auðvitað er áfall fyrir liðið að missa hana en á sama tíma er hægt að vinna með þetta. Hin átján ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir geti látið ljós sitt skína í fjarveru Sveindísar en Thelma, sem byrjaði sinn fyrsta A-landsleik fyrr í undankeppninni, hefur verið að gera flotta hluti með Hacken í Svíþjóð. Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliðinu í 1-0 sigrinum gegn Úkraínu í apríl. Hennar fyrsti byrjunarliðsleikur fyrir Íslands hönd. vísir/Diego „Hún er orðin þroskuð og maður sér það á henni að hún er búinn að þroskast ekkert smá mikið á síðustu tveimur árum. Ég held þetta sé bara frábært tækifæri fyrir hana án þess að vera setja einhverja pressu á hana. Grípa þetta tækifæri og vonandi fáum við að sjá bara eitthvað svona smá nýtt frá liðinu í dag. Við þurfum hraðann hennar fram á við á móti þessu liði. Ég ætla að skora á Steina að láta hana byrja.“ Risaskref sem hægt er að taka í átt að fyrsta heimsmeistaramóti íslenska kvennalandsliðsins. „Mér finnst við eiga landslið sem á að vera þarna miðað við gæðin sem við höfum. Við höfum komist oft á EM en nú er tímabært að koma okkur á HM. Það eru leikmenn þarna innanborðs sem hafa verið að bíða eftir þessu tækifæri. Við höfum verið nálægt því en núna þurfum við að grípa gæsina.“ Leikur Úkraínu og Íslands í undankeppni HM hefst klukkan fjögur í dag og verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið kvenna í fótbolta KSÍ HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira