Svona var 158. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 1.2.2021 10:36
Leigja íbúð saman, út að borða saman en tveggja metra regla í pottinum Forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar segir fólk sem komi í hópum til Akureyrar, leigi saman íbúð og fari saman út að borða finnist að það megi vera saman í heitum potti í sundlaug. Lágar smittölur í landinu verði líka til þess að fólk passi sig minna. Þá verði að hafa í huga að heitir pottar undir berum himni séu ekki illa loftræst rými. 1.2.2021 10:27
Fór úr mjaðmarlið og beið í níutíu mínútur í kuldanum Þórður Mar Árnason má ekkert stíga í fótinn næstu sex vikurnar eftir að hafa farið úr mjaðmarlið í vélsleðaslysi á Tröllaskaga þann 15. janúar síðastliðinn. Hann þakkar fyrir að hafa ekki fengið vélsleðann ofan á sig þar sem hann rúllaði niður bratta fjallshlíð. Eða að æð hafi ekki farið í sundur í fæti hans. Þá hefði fátt komið í veg fyrir að honum hefði blætt út. 31.1.2021 19:56
Hafþór áfrýjaði og fékk þyngri dóm Hafþór Logi Hlynsson hefur verið dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti. Þyngdi Landsréttur þar með dóm yfir Hafþóri Loga sem hlaut tólf mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjavík í nóvember 2018. 29.1.2021 16:28
Sextán ára fangelsi fyrir morð í Úlfarsárdal Arturas Leimontas, Lithái á sextugsaldri, hefur verið dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að hafa banað landa sínum á sextugsaldri í Úlfarsárdal þann 8. desember 2019. Leimontas var sakfelldur fyrir að hafa hrint manninum fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss við Skyggnisbraut í Grafarholti. 29.1.2021 14:30
Fimm sagt upp og tugir í skert starfshlutfall Fimm manns hefur verið sagt upp stöðum hjá ríkisstofnuninni Íslenskar orkurannsóknir. Forstjóri ÍSOR segir aðhaldsaðgerðirnar nauðsynlegar vegna samdráttar á markaði. 29.1.2021 14:07
„Orðræðan er mjög harkaleg og oft hatursfull“ „Ég fordæmi þessa árás og finnst hún alvarleg, því þarna er verið að beita skotvopnum fyrir utan heimili stjórnmálamanns. Ég lít þetta alvarlegum augum,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárás á bíl borgarstjóra um liðna helgi sem lögregla hefur til skoðunar. 29.1.2021 12:33
Borgarstjóri fellur ekki undir lög um vernd æðstu stjórnar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hafa rætt við og fundað með Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra vegna skotárásar á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem lögregla hefur til rannsóknar. Áslaug Arna lítur málið alvarlegum augum. 29.1.2021 12:25
Fólk á tíræðisaldri boðað í bólusetningu Þriðjudaginn 2. febrúar mun heilsugæslan bjóða öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu 90 ára og eldri, þ.e. fæddir 1931 eða fyrr, COVID-19 bólusetningu á Suðurlandsbraut 34. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilsugæslunni. 29.1.2021 11:29
Eldur í bíl á Akranesi Slökkviliðið á Akranesi var kallað út um klukkan hálf níu í morgun vegna þess að kviknað hafði í vélarhúddi fólksbíls í bænum. Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri segir að eldur virðist hafa kviknað þegar bílstjóri ræsti bílinn. 29.1.2021 11:25