Víðir mælir með að vel búið göngufólk gangi frá Bláa lóninu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn beinir þeim tilmælum til fólks sem ætlar að fara að virða fyrir sér gosið í Geldingadal að gera sér grein fyrir ákveðnum staðreyndum. 20.3.2021 12:23
Almannavarnastig lækkað niður á hættustig Almannavarnastig hefur verið lækkað niður á hættustig vegna eldgoss í Geldingadal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Neyðtarstigi var lýst í gærkvöldi þegar ljóst var að byrjað var að gjósa. 20.3.2021 10:33
„Það er engin bráðahætta í gangi“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum var ræstur út í húsakynni Almannavarna í Skógarhlíð á tíunda tímanum í kvöld þegar flest benti til þess að eldgos væri hafið á Reykjanesi. Sú reyndist raunin. 20.3.2021 00:20
Aukafréttatími vegna eldgoss á Reykjanesi Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar blæs til aukafréttatíma eftir augnablik vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. 19.3.2021 23:26
Íslendingar missa sig yfir eldgosinu á samfélagsmiðlunum Eldgos er hafið í Fagradalsfjalli á Reykjanesi og eðlilega er Ísland á hliðinni. Margir hverjir liggja á vefmiðlunum og tjá sig á samfélagsmiðlum. 19.3.2021 23:05
Morðvopnið í Rauðagerðismálinu fundið Lögregla hefur lagt hald á byssu sem talið er að hafi verið notuð til að bana albönskum karlmanni í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. 19.3.2021 15:52
Dómur fyrir árás á öryggisvörð Landsbankans staðfestur Landsréttur staðfesti í dag tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Kristjáni Erni Elíassyni fyrir árás á öryggisvörð í Landsbankanum. Hann þarf að greiða öryggisverðinum hálfa milljón í miskabætur. Dómurinn var kveðinn upp eftir hádegi í dag. 19.3.2021 14:50
Ummæli í Hlíðamálinu dæmd ómerk en miskabætur lækkaðar Landsréttur dæmdi í dag Hildi Lilliendahl Viggósdóttur og Oddnýju Arnarsdóttur hvora um sig til að greiða tveimur karlmönnum 100 þúsund krónur í miskabætur ásamt vöxtum og greiðslu málskostnaðar vegna ummæla sem þær létu falla í tengslum við svokallaða Hlíðamál. Ein ummæli Hildar og fjögur ummæli Oddnýjar voru dæmd ómerk. 19.3.2021 14:45
Hreiðar og Magnús sakfelldir en Sigurður sýknaður í síðasta hrunmálinu Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson fyrrverandi stjórnendur hjá Kaupþingi voru í Landsrétti í dag sakfelldir fyrir aðild sína að CLN-málinu. Þeim var þó ekki gerði refsing vegna fyrri dóma sem þeir hafa hlotið. Sýknudómur Sigurðar Einarssonar úr héraði var staðfestur. 19.3.2021 14:21
Brutu upp dyr snemma morguns í miðbæ Reykjavíkur Sérsveit ríkislögreglustjóra braut upp útidyr í fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur í gærmorgun. Um var að ræða hluta af aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsóknina í Rauðagerðismálinu. 19.3.2021 12:05