Hulda Elsa aðstoðarlögreglustjóri komin í leyfi frá störfum Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta gerist eftir að sálfræðistofa gerði úttekt hjá starfinu á ákærusviðinu og skilaði í framhaldinu skýrslu. 8.12.2022 14:48
Framkvæmdastjóri Ölmu í felum og neitar að svara spurningum Framkvæmdastjóri leigufélagsins Ölmu hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Fjármálaráðherra segir hækkunina óforsvaranlega og formaður VR hefur kallað eftir neyðarlögum á leigufélög. 8.12.2022 13:14
Gekk vel að slökkva eldinn í Skorradal Slökkviliðsmönnum í Borgarbyggð gekk mjög vel að slökkva eld sem kviknaði í sumarbústað í Skorradal í morgun. Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, segir áhöfn fyrsta bílsins sem mætti á vettvang hafa verið fljóta að ná tökum á eldinum. 8.12.2022 10:30
Fóru offari við löglegar uppsagnir og greiða starfsmönnum bætur Stéttarfélagið Efling hefur verið dæmt til að greiða þremur fyrrverandi starfsmönnum félagsins samanlagt tæplega þrjár milljónir króna auk málskostnaðar. Dómurinn mat uppsagnir þeirra árið 2018 lögmætar en Efling væri þó skaðabótaskyld vegna bágrar framkomu gagnvart starfsmönnunum þremur. 7.12.2022 17:09
Steinunn Ása heiðruð með Kærleikskúlunni Tuttugasta Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn. Ár hvert velur Styrktarfélagið handhafa Kærleikskúlunnar, einhvern sem hefur með verkum sínum breytt viðhorfum og bætt líf samborgara sinna og samfélag, vakið athygli á mikilvægum gildum og sjálfsögðum réttindum. 7.12.2022 12:49
Anna Svava og Gylfi Þór setja einbýlið í Norðurmýrinni á sölu Hjónin Anna Svava Knútsdóttir og Gylfi Þór Valdimarsson hafa sett einbýlishús sitt við Hrefnugötu í Norðurmýrinni á sölu. Verðmiðinn á 300 fermetra húsið er 225 milljónir króna. 7.12.2022 12:32
Vin á Hverfisgötu heyrir sögunni til Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að leggja niður starfsemi Vinjar á Hverfisgötu. Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir sem hefur verið rekið í um þrjátíu ár. Fyrrverandi forstöðumaður Rauða krossins í Reykjavík er meðal þeirra sem gagnrýnir lokunina harðlega. 7.12.2022 11:39
Samþykkt að selja sumarbústað borgarstjórnar Sumarhús borgarstjórnar við Úlfljótsvatn verður selt. Tillaga Sjálfstæðisflokksins þess efnis var samþykkt á löngum fundi borgarstjórnar í gær. 7.12.2022 11:11
Bæjarstjóranum í Eyjum blöskrar skoðun kollega síns í Ísafjarðarbæ Bæjarstjóri Vestmannaeyja furðar sig á því að bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar telji Vestmannaeyinga geta siglt með Herjólfi til og frá Þorlákshöfn svo flýta megi dýpkun hafnar Ísfirðinga fyrir komu skemmtiferðaskipa. 7.12.2022 10:41
Tvær til þrjár ruslatunnur við sérbýli Tvær til þrjár tunnur verða við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu með lögum um hringrásarkerfi sem taka gildi um áramótin. Íbúum verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili; pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaður úrgangur. 6.12.2022 17:13