Fyrsta konan til að gegna stöðu skólastjóra Guðrún Inga Sívertsen hefur verið ráðin nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands (VÍ) og tekur við af Inga Ólafssyni. Hún er fyrsta konan til að gegna starfinu í rúmlega 110 ára sögu VÍ og jafnframt fyrsti skólastjórinn sem hefur útskrifast úr skólanum. Innlent 21. maí 2021 15:10
Sigurlína nýr stjórnarformaður Solid Clouds Sigurlína Ingvarsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Solid Clouds, framleiðanda fjölspilunartölvuleiksins Starborne. Viðskipti innlent 21. maí 2021 10:16
Sigríður Hrund nýr formaður FKA Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og eigandi Vinnupalla, var kosin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Siguríður Hrund var kosin formaður til tveggja ára og tekur við stöðunni af Huldu Ragnheiði Árnadóttur. Viðskipti innlent 20. maí 2021 12:39
Þrettán sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30. apríl 2021. Innlent 20. maí 2021 12:03
Tryggvi áfram formaður í nýskipuðu Hugverkaráði SI Tryggvi Hjaltason hjá CCP hefur skipaður formaður í nýju Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 20. maí 2021 11:19
Valeria til Advania Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni. Viðskipti innlent 19. maí 2021 15:40
Árni Huldar til KPMG Law Árni Huldar Sveinbjörnsson hefur hafið störf hjá KPMG Law. Hann starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lykils fjármögnunar hf. og nú síðast sem sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils. Viðskipti innlent 18. maí 2021 14:03
Ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins Kristín Inga Jónsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsdeildar Póstsins. Hún hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2019 sem markaðssérfræðingur. Viðskipti innlent 18. maí 2021 11:54
Erfið ákvörðun að hætta hjá Icelandair Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Eva Sóley hóf störf í byrjun árs 2019 og hefur að sögn félagsins verið í lykilhlutverki við að koma því í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður. Viðskipti innlent 14. maí 2021 19:01
Jóhanna Margrét til Skeljungs Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Skeljungi. Viðskipti innlent 14. maí 2021 15:36
Björn Þorfinnsson nýr ritstjóri DV Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Hann tekur við starfinu af Tobbu Marinós sem lét nýlega af störfum. Viðskipti innlent 14. maí 2021 13:23
Hörður tekur við starfi yfirmanns markaðs- og samskiptasviðs Sýnar Hörður Harðarson hefur verið ráðinn nýr yfirmaður markaðs- og samskiptasviðs Sýnar. Viðskipti innlent 12. maí 2021 14:56
Ráðin lögfræðingur hjá Nasdaq á Íslandi Adela Lubina hefur verið ráðin sem lögfræðingur á lögfræðisviði hjá Nasdaq kauphöllinni á Íslandi og Nasdaq verðbréfamiðstöð. Viðskipti innlent 12. maí 2021 14:19
Unnur Ásta nýr meðeigandi hjá MAGNA Lögmönnum Unnur Ásta Bergsteinsdóttir hefur nú gengið í hóp eigenda Magna Lögmanna. Unnur hefur starfað hjá stofunni og forvera þess, Lögmönnum Höfðabakka, frá árinu 2012. Viðskipti innlent 12. maí 2021 11:28
Þóra fer frá Icelandair yfir til Play Þóra Eggertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play. Mun hún bera ábyrgð á að byggja upp fjármálasvið flugfélagsins sem og að leiða skráningu Play á Nasdaq First North Iceland markaðinn. Viðskipti innlent 10. maí 2021 17:32
Maríjon snýr aftur í einkageirann Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis og kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kvis. Viðskipti innlent 10. maí 2021 09:16
Sigurður nýr forstöðumaður hjá Landsvirkjun Sigurður Markússon hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 7. maí 2021 12:34
Fimm ráðin til Arnarlax Arnarlax ráðið þau Jón Garðar Jörundsson, Kjersti Haugen, Johnny Indergård, Hjörtur Methúsalemsson og Rúnar Inga Pétursson til starfa innan félagsins. Viðskipti innlent 7. maí 2021 11:20
Ásdís Hjálmsdóttir er nýr formaður íþróttamannanefndar ÍSÍ Ný Íþróttamannanefnd ÍSÍ hefur verið kosin og nefndin valdi sér nýjan formann á fyrsta fundi sínum á dögunum. Sport 7. maí 2021 10:30
Grjótharður KR-ingur verður framkvæmdastjóri hjá Play Georg Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs flugfélagsins Play. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að hann taki til starfa á næstu vikum. Viðskipti innlent 6. maí 2021 14:37
Óli Jóns kominn yfir til Birtingahússins Ólafur Jónsson hefur verið ráðinn til Birtingahússins þar sem hann mun sinna ráðgjöf og þróunarvinnu í tengslum við netmarkaðsmál fyrir viðskiptavini félagsins. Viðskipti innlent 6. maí 2021 14:16
Kristín Hrefna til Origo Kristín Hrefna Halldórsdóttir hefur verið ráðin til Origo þess að leiða teymi gæðalausna hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 6. maí 2021 12:12
Ingibjörg til liðs við KOM Ingibjörg Hjálmfríðardóttir hefur verið ráðin til KOM sem verkefnastjóri hjá nýrri ráðstefnudeild KOM ráðgjafar. Viðskipti innlent 6. maí 2021 10:20
Erla Ósk færir sig um set í hótelbransanum Erla Ósk Ásgeirsdóttir hefur látið af störfum sem forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Icelandair hótelum eftir rúmlega sex ára starf. Hún tekur við sem forstöðumaður mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition, hóteli við hliðina á Hörpu. Viðskipti innlent 5. maí 2021 14:48
„Okkur er einfaldlega hent út með skít og skömm“ Mikil reiði ríkir meðal kórfélaga og velunnara Mótettukórsins vegna þess hvernig mál hafa þróast í Hallgrímskirkju sem endaði með starfslokum Harðar Áskelssonar tónlistarstjóra kirkjunnar til fjörutíu ára. Menning 5. maí 2021 13:55
Fjögur ráðin til Kviku eignastýringar Andri Stefan Guðrúnarson, Helen Ólafsdóttir, Pétur Richter og Sigurður Pétur Magnússon hafa öll verið ráðin til Kviku eignastýringar. Viðskipti innlent 5. maí 2021 10:36
Samskipti við sóknarnefnd kólnandi þar til fraus í hylnum Brotthvarf tónlistarstjóra Hallgrímskirkju, Harðar Áskelssonar, er tónelskum áfall. Menning 5. maí 2021 06:16
Ráðinn listrænn stjórnandi hjá H:N Magnús Hreggviðsson hefur verið ráðinn til H:N Markaðssamskipta sem listrænn stjórnandi. Viðskipti innlent 3. maí 2021 13:30
Tekur við sem fjármála- og rekstrarstjóri Aha.is Ísak Gunnarsson hefur verið ráðinn í starf fjármála- og rekstrarstjóra aha.is. Viðskipti innlent 3. maí 2021 10:26
Guðjón ráðinn birtingastjóri Guðjón A. Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf birtingastjóra birtingafyrirtækisins Datera. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri VERT markaðsstofu síðustu ár. Viðskipti innlent 3. maí 2021 10:03