Ninja Ýr tekur við sem forstöðumaður fjármála HR Ninja Ýr Gísladóttir hefur við ráðin forstöðumaður fjármála Háskólans í Reykjavík og hefur hafið störf. Viðskipti innlent 7. september 2021 13:53
Katrín Ósk og Olgeir til Aha Olgeir Pétursson og Katrín Ósk Einarsdóttir hafa verið ráðin til Aha.is. Olgeir hefur tekið við starfi viðskiptastjóra og Katrín Ósk sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs. Viðskipti innlent 7. september 2021 13:26
Eva Margrét aftur til LEX Eva Margrét Ævarsdóttir hefur verið ráðin til LEX Lögmannsstofu þar sem hún mun leiða uppbyggingu á þjónustu stofunnar á sviði sjálfbærni og UFS-ráðgjafar. Viðskipti innlent 7. september 2021 09:33
Kveður Landsbankann eftir ellefu viðburðarík ár Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum, hefur sagt starfi sínu lausu. Viðskipti innlent 6. september 2021 16:47
Breytingar á framkvæmdastjórn Arion banka Ólafur Hrafn Höskuldsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka og tekur við af Stefáni Péturssyni. Steinunn Hlíf Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina en um er að ræða nýtt svið hjá bankanum. Viðskipti innlent 6. september 2021 13:52
Ráðinn sjóðstjóri Kríu Sæmundur K. Finnbogason hefur verið ráðinn til Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Hann mun starfa sem sjóðstjóri Kríu, sem er nýr sprota- og nýsköpunarsjóður sem hefur það að markmiði að stuðla að uppbyggingu fjármögnunarumhverfis sprota-, tækni-, og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi. Viðskipti innlent 6. september 2021 13:37
Ingvar hættur hjá Orkuveitunni Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur til síðustu tíu ára, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Viðskipti innlent 3. september 2021 16:17
Nýr framkvæmdarstjóri Bandalags íslenskra skáta Helga Þórey Júlíudóttir tók í dag við sem nýr framkvæmdastjóri hjá skátunum og mun hún leiða breytingar á starfsemi Skátamiðstöðvar til að renna styrkari stoðum undir fræðslu, stuðning við dagskrá, miðlun og þjónustu við skátafélögin í landinu. Innlent 3. september 2021 15:04
Ráðin sérfræðingar hjá Expectus Giovanna Steinvör Cuda, Hafdís Mist Bergsteinsdóttir og Ottó Rafn Halldórsson hafa verið ráðin sérfræðingar hjá ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Expectus. Viðskipti innlent 3. september 2021 14:26
Ragnhildur Helgadóttir nýr rektor HR Stjórn Háskólans í Reykjavík hefur skipað Ragnhildi Helgadóttur, sviðsforseta samfélagssviðs og prófessor við lagadeild, nýjan rektor Háskólans í Reykjavík. Ragnhildur tekur við stöðunni af Ara Kristni Jónssyni, sem hefur gengt stöðunni undanfarin ellefu ár. Innlent 1. september 2021 13:45
Pétur Jakob Pétursson ráðinn til HPP, prótínverksmiðju Héðins Pétur Jakob Pétursson hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri hjá HPP, en HPP er háþróuð prótínverksmiðja sem hönnuð var frá grunni og smíðuð hjá Héðni. Með HPP geta sjávarútvegsfyrirtæki fullnýtt aflann hundrað prósent með framleiðslu á lýsi og fiskmjöli, jafnt á landi sem um borð í skipum. Viðskipti innlent 1. september 2021 12:10
Karl Eskil ráðinn til að stýra heimasíðu og miðlum Samherja Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samherja og mun hann miðla fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins, auk þess sem hann mun sinna innri vef Samherja þar sem upplýsingum og fræðsluefni er komið til starfsfólks. Viðskipti innlent 1. september 2021 11:39
Aríel tekur við formennsku í Sjómannadagsráði Aríel Pétursson, varaformaður Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins frá síðasta aðalfundi sem fram fór í vor, tók í dag við formennsku í ráðinu af Hálfdani Henrýssyni. Hálfdán hefur starfað með Sjómannadagsráði óslitið í 34 ár. Viðskipti innlent 1. september 2021 11:08
Lárus Sigurður tekur við formennsku í Garðyrkjufélaginu Lárus Sigurður Lárusson var kjörinn nýr formaður Garðyrkjufélags Íslands á aðalfundi félagsins í gærkvöld. Innlent 1. september 2021 08:11
Frosti nýr framkvæmdastjóri Olís Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. Viðskipti innlent 31. ágúst 2021 16:33
Ragnheiður Erlingsdóttir nýr framkvæmdastjóri Zik Zak Ragnheiður Erlingsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Zik Zak. Hún tekur við starfinu af Skúla Malmquist, sem var ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins í júlí. Viðskipti innlent 31. ágúst 2021 15:47
Ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Gunnar Örn Petersen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Hann tekur við starfinu af Elíasi Blöndal Guðjónssyni. Viðskipti innlent 31. ágúst 2021 10:58
Ráðinn viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera Datera hefur ráðið til sín Hjalta Má Einarsson sem viðskiptaþróunarstjóra og hefur hann þegar hafið störf. Viðskipti innlent 30. ágúst 2021 11:43
Þorsteinn nýr formaður Kærunefndar útlendingamála Þorsteinn Gunnarsson er nýr formaður Kærunefndar útlendingamála að skipan Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þorsteinn tekur við embættinu þann 1. september en hann var valinn úr sjö manna hópi umsækjenda. Hann hefur starfað í fjórtán ár hjá Útlendingastofnun, meðal annars sem settur forstjóri. Innlent 27. ágúst 2021 16:53
Eðvald fer fyrir nýrri deild Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn forstöðumaður hagdeildar á fjármálasviði Kviku banka en deildin er ný á fjármálasviði bankans. Viðskipti innlent 27. ágúst 2021 13:27
„Orðið fínt en brenn enn fyrir ÍSÍ og íþróttahreyfinguna“ Líney Rut Halldórsdóttir skilur sátt við ÍSÍ en hún lætur af starfi framkvæmdastjóra sambandsins 1. október. Hún segir að ákvörðunin að hætta hafi ekki verið tekin í flýti. Sport 27. ágúst 2021 12:01
Hörður og Ólöf leiða nýjan viðskiptamiðil á Vísi Nýr miðill sem sérhæfir sig einkum í fréttum um íslenskt viðskiptalíf og efnahagsmál hefur göngu sína á Vísi á næstunni. Fyrir miðlinum fara þau Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir en auk þeirra kemur til starfa viðskiptablaðamaðurinn Þorsteinn Friðrik Halldórsson. Um verður að ræða fréttamiðil í áskrift. Viðskipti innlent 27. ágúst 2021 11:02
Líney hættir sem framkvæmdastjóri ÍSÍ eftir fjórtán ára starf Líney Rut Halldórsdóttir lætur af störfum sem framkvæmdastjóri ÍSÍ 1. október. Greint var frá þessu á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í gær. Sport 27. ágúst 2021 10:37
Stofnandi Creditinfo ráðinn forstjóri SaltPay Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, hefur verið ráðinn nýr forstjóri greiðslumiðlunarfyrirtækisins SaltPay. Áður sat Reynir í stjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 26. ágúst 2021 18:27
Tjörvi hættir eftir nítján ár hjá Bændasamtökunum Tjörvi Bjarnason, sviðstjóri útgáfu- og kynningarsviðs Bændasamtakanna, hefur sagt upp störfum eftir nítján ár hjá samtökunum. Hann hefur stýrt rekstri Bændablaðsins í fjölda ára og unnið sem almannatengill fyrir bændur svo fátt eitt sé nefnt. Viðskipti innlent 26. ágúst 2021 18:26
Jóhann Óskar ráðinn yfirflugstjóri PLAY Jóhann Óskar Borgþórsson hefur verið ráðinn yfirflugstjóri hjá flugfélaginu PLAY. Jóhann hefur komið víða við í fluggeiranum en hann hefur starfað hjá fjórum öðrum flugfélögum ásamt því að hafa setið í stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Viðskipti innlent 26. ágúst 2021 17:42
Andri Ólafsson ráðinn til Landspítala Andri Ólafsson hefur verið ráðinn til að annast fjölmiðlasamskipti Landspítalans. Þetta staðfestir Andri í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 26. ágúst 2021 09:31
Þungavigtarfólk sækir um embætti skrifstofustjóra Forsætisráðuneytið hefur 22 umsóknir til skoðunar um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumála í forsætisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út þann 20. ágúst en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Innlent 25. ágúst 2021 15:16
Tekur við sem bankastjóri Blábankans á Þingeyri Stjórn Blábankans hefur ráðið Birtu Bjargardóttur sem næsta bankastjóra Blábankans á Þingeyri. Viðskipti 25. ágúst 2021 13:31
Framkvæmdastjóri sölusviðs Play hættur Þórður Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs flugfélagsins Play, er hættur hjá félaginu eftir að hafa verið sagt upp störfum. Viðskipti innlent 24. ágúst 2021 13:08