Stýrir háttsemiseftirliti Seðlabankans Linda Kolbrún Björgvinsdóttir hefur verið sett framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 7. júní 2023 10:37
Ráðin skólastjóri Listdansskólans Elizabeth Greasley hefur verið ráðin skólastjóri Listdansskóla Íslands og tekur hún við stöðunni af Guðmundi Helgasyni. Innlent 7. júní 2023 07:42
Nýir skólastjórar úr ólíkum áttum hjá Kópavogsbæ Brynjar Marinó Ólafsson, Guðný Sigurjónsdóttir og Margrét Ármann eru nýir skólastjórar í Kópavogi. Brynjar er nýr skólastjóri Snælandsskóla, Guðný í Kópavogsskóla og Margrét í Lindaskóla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Innlent 5. júní 2023 16:44
Silja ráðin samskiptastjóri HA Silja Jóhannesar Ástudóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastjóra Háskólans á Akureyri. Viðskipti innlent 5. júní 2023 12:48
Agnes frá Össuri til Samorku Agnes Ástvaldsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri faghópa hjá Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja og hefur hún þegar hafið störf. Viðskipti innlent 2. júní 2023 11:04
Fimm sækjast eftir embætti forstjóra Þjóðskrár Fimm einstaklingar sækjast eftir embætti forstjóra Þjóðskrár Íslands sem auglýst var í apríl síðastliðnum. Alls bárust átta umsóknir en þrír hafa dregið umsóknir sínar til baka. Innviðaráðherra skipar í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar. Innlent 1. júní 2023 22:58
Helgi Andri segir upp og biður konunnar Helgi Andri Jónsson, stofnandi og forstjóri SalesCloud, hefur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Í yfirlýsingu segist hann ætla að setja fjölskylduna í fyrsta sætið en yfirlýsingin endar á: „Takk fyrir allt elskan mín. Og þig langar mig að spyrja – Viltu giftast mér?“ Viðskipti innlent 1. júní 2023 22:04
Garðar og Smári bætast í hópinn hjá Endor Garðar Rúnarsson netsérfræðingur og Smári Ívarsson netöryggissérfræðingur hafa gengið til liðs við Endor. Frá þessu segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. Viðskipti innlent 1. júní 2023 15:03
Hjörvar nýr framkvæmdastjóri hjá Taktikal Hjörvar Jóhannesson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptaþróunar hjá Taktikal. Hann mun bera ábyrgð á viðskiptaþróun, sölu og ráðgjöf til lykilviðskiptavina Taktikal. Viðskipti innlent 1. júní 2023 09:55
Fimm konur í stjórn Svars Sex manna stjórn tæknifyrirtækisins Svar er skipuð fimm konum. Eigandi fyrirtækisins segir enga sérstaka ákvörðun um að raða svona í stjórnina hafa verið tekna. Áhugi kvenna á tæknimálum sé alltaf að aukast. Viðskipti innlent 31. maí 2023 21:01
Raj Soni nýr framkvæmdastjóri Meniga Fjártæknifyrirtækið Meniga hefur skipað Dheeraj (Raj) Soni sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Í tilkynningu segir að Soni hafi víðtæka reynslu af stjórnun vaxtarfyrirtækja og muni stýra Meniga í gegnum tímabil vaxtar og langtímaþróunar. Viðskipti innlent 31. maí 2023 15:56
Erfiðast að hafa ekki getað sagt bless við fólkið hjá Festi Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðukona markaðssviðs N1, segir erfiðast við nýtilkomin starfslok hjá Festi að hafa ekki getað sagt bless við fólkið sitt. Festi tilkynnti um sjö uppsagnir til Kauphallar í gær. Viðskipti innlent 31. maí 2023 15:33
Aðalsteinn hættir tveimur árum á undan áætlun Aðalsteinn Leifsson lætur af embætti ríkissáttasemjara frá og með morgundeginum, 1. júní. Embættið verður auglýst til umsóknar á næstu dögum. Hann segist hafa átt frumkvæðið að því að hætta sjálfur. Aðalsteinn var skipaður ríkissáttasemjari til fimm ára í febrúar árið 2020. Innlent 31. maí 2023 14:42
Rúnar Örn og Hafsteinn Esekíel nýir forstöðumenn hjá VÍS Rúnar Örn Ágústsson hefur verið ráðinn forstöðumaður stofnstýringar og verðlagningar hjá VÍS og Hafsteinn Esekíel Hafsteinsson forstöðumaður einstaklingsviðskipta hjá VÍS. Þeir hafa Viðskipti innlent 31. maí 2023 11:06
Eva Ýr ráðin mannauðsstjóri Alvotech Eva Ýr Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdarstjóri mannauðsmála hjá Alvotech. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 31. maí 2023 10:11
Hjörvar Blær tekur við sem forstöðumaður útflutnings hjá Eimskip Hjörvar Blær Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður útflutningsdeildar hjá Eimskip. Viðskipti innlent 31. maí 2023 08:05
Sjö láta af störfum í skipulagsbreytingum hjá Festi Sjö láta af störfum og tvö hafa verið ráðin til félagsins Festi í skipulagsbreytingum. Þá hafa ýmis svið verið sameinuð. Viðskipti innlent 30. maí 2023 22:49
Kristinn ráðinn framkvæmdastjóri Sólheima Kristinn Ólafsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Sólheima ses. til fimm ára frá og með 1. júní næstkomandi. Viðskipti innlent 29. maí 2023 18:00
Fer frá Arion til Arctica Finance Þórbergur Guðjónsson, reynslumesti starfsmaður Arion í fyrirtækjaráðgjöf, hefur sagt upp stöfum hjá bankanum og ráðið sig yfir til Arctica Finance. Innherji 26. maí 2023 16:30
Embætti forstjóra Heilsugæslunnar laust til umsóknar Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið auglýst laust til umsóknar af heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 26. maí 2023 15:03
Logi Bergmann aftur á skjánum Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sneri aftur á sjónvarpsskjáinn í gærkvöldi þegar hann stýrði upphitunarþætti fyrir leik Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á Símanum Sport í gærkvöldi. Innlent 26. maí 2023 08:01
Tekur við sem þjálfari Kokkalandsliðsins Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður hefur verið valin þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur. Matur 25. maí 2023 09:10
Ingi Björn Guðnason ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri Ingi Björn Guðnason, bókmenntafræðingur, hefur verið ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hann var ráðinn úr hópi sautján umsækjenda og tók við starfinu í síðasta mánuði. Innlent 24. maí 2023 21:32
Kveður Borgarverk eftir átta ára starf og ráðin til FSRE Stefanía Nindel hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri fjármála og stafrænna innviða hjá Framkvæmdasýslunni Ríkiseignum. Hún hóf störf í upphafi mánaðar. Viðskipti innlent 23. maí 2023 12:58
Ólafur Egill tekur við formennskunni af Kolbrúnu Ólafur Egill Egilsson tók í gærkvöldi við embætti formanns Félags leikstjóra á Íslandi. Ólafur tekur við formennsku af Kolbrúnu Halldórsdóttur sem tekur við stöðu formanns BHM síðar í vikunni. Menning 23. maí 2023 08:48
Þórdís ráðin forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar Þórdís Valsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar. Útvarpsstöðvarnar sem Þórdís mun stýra eru Bylgjan, FM957, X977, Gullbylgjan, Léttbylgjan og Íslenska bylgjan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn. Viðskipti innlent 22. maí 2023 12:02
Ráðin nýr verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni Heiðdís Inga Hilmarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni. Viðskipti innlent 22. maí 2023 11:24
Ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Kynnisferðum Hilmar Stefánsson, Þóra Eggertsdóttir og Ófeigur Friðriksson hafa öll verið ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Kynnisferðum. Viðskipti innlent 19. maí 2023 13:19
Monika tekur við formennsku af Hannesi Monika Hjálmtýsdóttir hefur tekið verið formennsku í Félagi fasteignasala. Hún tekur við af Hannesi Steindórssyni sem hafði gegnt embættinu frá 2021. Viðskipti innlent 19. maí 2023 11:06
Nicole Leigh Mosty ráðin leikskólastjóri í Vík í Mýrdal Nicole Leigh Mosty hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Mánalands í Vík í Mýrdal. Innlent 18. maí 2023 12:15