Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu hefur ákveðið að segja skilið við við samtökin í haust. Auglýst hefur verið eftir nýjum framkvæmdastjóra og stefnt á að hann taki við 1. september næstkomandi. Viðskipti innlent 25. mars 2024 15:24
Fær um tólf milljónir í biðlaun sem skerðast ekki fái hann annað starf Geir Sveinsson fær greiddar um þrettán milljónir í nokkrum greiðslum sem hluta af starfslokasamningi. Greiðslur til Geirs skerðast ekki fái hann aðra vinnu þrátt fyrir bókun sem samþykkt var í bæjarráði um það. Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti starfslokasamning hans í dag. Innlent 22. mars 2024 14:45
Starfslok Geirs staðfest í bæjarstjórn Tillaga að starfslokasamningi Geirs Sveinssonar var samþykkt í bæjarstjórn í morgun. Geir hefur gegn starfi bæjarstjóra síðustu tvö ár og lætur strax af störfum. Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar, verður staðgengill bæjarstjóra þangað til nýr bæjarstjóri verður ráðinn. Innlent 22. mars 2024 10:31
Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra. Örn Viðar var á meðal 27 umsækjenda um starfið. Félaginu er ætlað að annast uppkaup ríkisins á fasteignum í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara á Reykjanesi. Viðskipti innlent 21. mars 2024 16:19
Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hann hefur setið í stjórninni síðan í ágúst 2022. Viðskipti innlent 21. mars 2024 14:47
Eydís og Þorvaldur til Genís Eydís Einarsdóttir og Þorvaldur Ingvarsson hafa verið ráðin til starfa hjá líftæknifyrirtækinu Genís á Siglufirði. Viðskipti innlent 21. mars 2024 12:11
Marta hafði betur gegn 38 sem vildu verða sérfræðingur Marta Nordal, fráfarandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, hafði betur gegn 38 umsækjendum um stöðu sérfræðings í sviðslistum hjá ráðuneyti menningarmála. Innlent 21. mars 2024 08:00
Geir hættir sem bæjarstjóri Hveragerðis Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar og Geir Sveinsson bæjarstjóri hafa náð samkomulagi um starfslok Geirs. Innlent 20. mars 2024 09:53
Ráðin innri endurskoðandi Kviku Hugrún Sif Harðardóttir hefur verið ráðin innri endurskoðandi Kviku banka hf. af stjórn bankans og hefur nú þegar hafið störf. Viðskipti innlent 19. mars 2024 13:47
Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu Marta Nordal hefur ákveðið að hætta sem leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Hún hefur gegnt stöðunni frá árinu 2018. Menning 19. mars 2024 11:22
Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sýn hf. Eðvald tekur við starfinu af Kristínu Friðgeirsdóttur sem lét af störfum fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar. Viðskipti innlent 19. mars 2024 09:48
Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Dagar hafa ráðið þau Guðfinnu Eyrúnu Ingjaldsdóttur, Brynhildi Guðmundsdóttur, Ísak Erni Kristinsson, Ingigerði Erlingsdóttur og Sigurð Hjaltalín Þórisson í stöður nýrra stjórnenda hjá fyrirtækinu. Þau taka einnig sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins og hafa þegar hafið störf. Viðskipti innlent 19. mars 2024 08:29
Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Þrír stjórnendur hafa verið ráðnir til Styrkáss. Allir koma þeir frá dótturfélögum innan samstæðu. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 18. mars 2024 13:31
27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Alls sóttu 27 manns um starf forstjóra fasteignafélagsins Þórkötlu. Umsóknarfrestur rann út 5. mars síðastliðinn. Viðskipti innlent 18. mars 2024 10:32
Forstjóraskipti hjá Play Stjórn Fly Play hf. og forstjóri félagsins, Birgir Jónsson, hafa í dag gert samkomulag um starfslok hans. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri PLAY. Viðskipti innlent 17. mars 2024 16:27
Jón kemur nýr inn í bankaráð Landsbankans og verður formaður Jón Þ. Sigurgeirsson, sem hefur undanfarin tvö ár verið efnahagsráðgjafi viðskiptaráðherra, er tilnefndur af Bankasýslu ríkisins sem annar af tveimur nýjum bankaráðsmönnum Landsbankans. Lagt er til að Jón, sem starfaði um langt árabil hjá Seðlabankanum, verði formaður bankaráðs. Innherji 15. mars 2024 17:14
Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Gunnar Alexander Ólafsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá ÖBÍ réttindasamtökum. Viðskipti innlent 15. mars 2024 12:29
Kolbrún tekin til starfa hjá Eurojust Kolbrún Benediktsdóttir hóf í dag störf sem fyrsti sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust í dag. Hún segir um að ræða mikilvægt skref fyrir Ísland. Innlent 12. mars 2024 19:09
Sigríður stefnir á ráðuneytisstjórann Sigríður Á. Andersson fyrrverandi dómsmálaráðherra er meðal átta sem sækja um embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Guðmundur Árnason, fráfarandi ráðuneytisstjóri, tekur senn við sendiherrastöðu í utanríkisþjónustunni. Innlent 12. mars 2024 15:37
Forstjóraskipti hjá Origo Ari Daníelsson mun taka við starfi forstjóra Origo, en núverandi forstjóri, Jón Björnsson, mun láta af störfum í lok apríl 2024. Ari hefur setið í stjórn Origo frá árinu 2022 og gegnt stöðu stjórnarformanns frá árinu 2023. Viðskipti innlent 12. mars 2024 15:03
Tímamót hjá Huga og Ásdísi Rögnu Ásdís Ragna Valdimarsdóttir og Hugi Halldórsson hafa verið ráðin til Samkaupa. Ásdís hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Kjör- og Krambúðanna og Hugi hefur tekið við stöðu viðskiptastjóra vildarkerfis Samkaupa. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla. Viðskipti innlent 12. mars 2024 11:18
Bjarndís tekur við af Álfi Bjarndís Helga Tómasdóttir er nýr formaður Samtakanna '78. Hún tekur við formennsku af Álfi Birki Bjarnasyni sem hefur verið formaður í tvö ár. Innlent 11. mars 2024 16:18
Örn Yngvi til atNorth frá Controlant Örn Ingvi Jónsson hefur verið ráðinn til gagnavers- og ofurtölvufyrirtækisins atNorth í stöðu rekstrarstjóra á Íslandi. Viðskipti innlent 11. mars 2024 10:01
Tveir sóttu um embætti héraðsdómara Þau Sindri M. Stephensen dósent við lagadeild HR og Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara sóttu um embætti héraðsdómara. Innlent 9. mars 2024 19:40
Peningar ekki vandamál í næsta verkefni Björns Zoëga Björn Zoëga verður framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu í apríl. Hann lætur senn af störfum sem forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Innlent 9. mars 2024 08:08
Hulda hættir hjá Sýn og sviðið lagt niður Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar og rekstrar hjá Sýn hf., hefur óskað eftir að láta af störfum. Ákveðið var í kjölfarið að ráðast í skipulagsbreytingar og leggja sviðið niður. Verkefni sviðsins verða flutt á aðra stjórnendur. Viðskipti innlent 8. mars 2024 09:38
Mariam stýrir markaðsmálum Standby Mariam Laperashvili hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsmála hjá fjártæknifyrirtækinu Standby. Viðskipti innlent 8. mars 2024 07:28
Endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins Árni Sigurjónsson hefur verið endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins, en hann var einn í framboði og hlaut 98,05 prósent atkvæða. Kosið var um formann og fimm stjórnarsæti. Viðskipti innlent 7. mars 2024 13:25
Magnús aðstoðar Finn í nýju hlutverki Magnús Magnússon hefur tekið við stöðu aðstoðarforstjóra Haga, en um nýtt hlutverk innan samstæðu Haga er að ræða. Viðskipti innlent 7. mars 2024 10:20
Hættir sem bæjarstjóri Vesturbyggðar Þórdís Sif Sigurðardóttir núverandi bæjarstjóri Vesturbyggðar segir í tilkynningu á Facebook að hún ætli ekki að gefa kost á sér í starf bæjarstjóra í kosningum sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í sumar. Innlent 6. mars 2024 15:03