Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Vegurinn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum var opnaður rétt eftir klukkan sjö í morgun en snjóflóð féll á hann síðdegis í gær. Dynjandisheiðin er lokuð og sömu sögu er að segja af Kleifarheiði. Innlent 4.3.2026 07:24
Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Snjóflóð féll á veginn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum síðdegis í dag. Í kjölfarið var ákveðið að loka veginum, sem og Dynjandisheiði og Kleifaheiði til morguns Innlent 3.3.2026 17:28
Að standa af sér storminn Umræðan um sjókvíaeldi hefur verið þung og á köflum hörð. Hér fyrir vestan finnum við það vel. Margir íbúar hafa lýst því yfir að þeir upplifi umræðuna ekki aðeins sem gagnrýni á atvinnugrein heldur sem gagnrýni á samfélagið sjálft og fólkið sem hér býr og starfar. Skoðun 27.2.2026 19:31
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Skoðun 9.2.2026 17:01
Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Þann 30. desember flæddi yfir í keri Tunglsilungs í Tálknafirði með þeim afleiðingum að eldisbleikja komst út í sjó. Innlent 14. janúar 2026 11:52
Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rafmagnslaust hefur verið á Tálknafirði síðan á öðrum tímanum í nótt. Vonir standa til að rafmagn verði komið aftur á í þorpinu seinni partinn. Innlent 31. desember 2025 09:55
Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Hátt í þrjátíu þúsund fiskar Tungusilungs drápust í landeldi í Tálknafirði fyrir helgi eftir að rafmagni sló þar út. Rekstrarstjóri Tungusilungs segist hafa áttað sig á því að þessi staða gæti komið upp einn daginn því hann hafi ekki séð neinar framfarir í afhendingaröryggi raforku á svæðinu í áratugi. Vestfirðingar séu annars flokks þegar komi að innviðum. Innlent 17. desember 2025 14:18
Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Um tuttugu þúsund fiskar drápust í fiskeldi í Tálknafirði á föstudag. Lögreglu á Vestfjörðum barst tilkynning þessa efnis fyrir helgi. Innlent 17. desember 2025 07:21
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11. desember 2025 21:51
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. Innlent 3. desember 2025 21:10
Fljótagöng sett í forgang Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt verður í dag á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnir samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Undirbúningur við næstu jarðgöng hefst 2026 og verður byrjað að bora 2027. Innlent 3. desember 2025 10:30
Ókyrrð í lægri flughæðum raskar innanlandsfluginu Aflýsa þurfti fyrsta áætlunarflugi í sögu Norlandair til Vestmannaeyja í dag vegna hvassviðris. Allt innanlandsflug féll niður í gær vegna ókyrrðar í lofti og í dag hefur aðeins tekist að fljúga frá Reykjavík til Akureyrar og Bíldudals. Rétt fyrir fréttir stóðu þó vonir til að Egilsstaðir myndu einnig opnast í kvöld. Innlent 1. desember 2025 21:00
Óttast hópuppsögn sem samsvarar sextán þúsund höfuðborgarbúum Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur lýst yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum. Ástæðan er fyrirhugað afnám línuívilnunar, rækjubóta og skerðinga á byggðakvóta. Innlent 24. nóvember 2025 22:13
Handtekinn í Dölunum Lögregla handtók um helgina mann í Dölunum eftir að hann hafði ítrekað ekið bíl sínum á annan bíl á sunnanverðum Vestfjörðum. Innlent 17. nóvember 2025 09:04
Ákærður fyrir að skjóta að dróna Fiskistofu Skipverji á fiskiskipi hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot, með því að hafa skotið þremur skotum að dróna Fiskistofu, sem notaður var við veiðieftirlit, í nóvember í fyrra. Innlent 4. nóvember 2025 17:01
Séra Flosi Magnússon fallinn frá Séra Flosi Magnússon, fyrrverandi prófastur og sveitarstjóri á Bíldudal, lést á sjúkrahúsi í Lundi í Svíþjóð þann 11. október síðastliðinn. Innlent 30. október 2025 11:14
Myndu ekki vilja stýra sveitarfélagi sem þvingað væri til sameiningar Þvingaðar sameiningar sveitarfélaga eru ekki vænlegar til árangurs og óraunhæft að þær nái í gegn fyrir kosningar á næsta ári. Þetta segja leiðtogar sveitarfélaga sem þegar hafa gengið í gegnum sameiningu. Þar hafi vilji íbúa, góður undirbúningur og vönduð vinnubrögð skipt sköpum fyrir farsæla sameiningu. Innlent 13. október 2025 16:25
Fámennir hópar sagðir geta skuldbundið sveitarfélög með frumvarpi ráðherra Samband íslenskra sveitarfélaga vill að innviðaráðherra endurskoði ákvæði um lágmarksfjölda íbúa í sveitarfélögum í frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum þar sem þau gefi fámennum hópi íbúa í einu sveitarfélagi vald til þess að skuldbinda annað sveitarfélag til sameiningarviðræðna. Ekki sé heldur einhugur um ákvæði frumvarpsins um sameiningu sveitarfélaga. Innlent 13. október 2025 14:07
Vegabætur á Vestfjörðum opni tækifæri í vetrarferðamennsku Vestfjarðarstofa hefur hrundið af stað átaki til að auka vetrarferðamennsku á svæðinu. Verkefnisstjóri segir fjölmörg tækifæri birtast með vegabótum en framkvæmdir standa yfir víða á vegaköflum sem hingað til hafa verið lokaðir á veturna. Innlent 5. september 2025 14:37
Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi Stærðarinnar borgarísjaki sást frá skipi vestur af Látrabjargi í gærkvöldi. Innlent 13. ágúst 2025 13:41
Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Eldur kom upp í skemmu í Breiðavík í nótt en gosmóða gerði slökkviliðsmönnum erfiðara fyrir að mæta á vettvang. Engan sakaði en rífa þurfti skemmuna niður og kom bóndinn í næsta bæ slökkviliðsmönnum til aðstoðar. Innlent 19. júlí 2025 08:32
Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Mikið eldingaveður hefur verið á Norðurlandi vestra í morgun. Miklar þrumur og eldingar hófust skömmu fyrir klukkan átta í morgun við Húsafell. Þær hafa síðan breiðst út til Sælingsdals, Hrútafjarðar, hluta Strandasýslu og að Önundarfirði. Innlent 16. júlí 2025 11:52
Stór ferðahelgi framundan og bæjarhátíðir víða um land Ein stærsta ferðahelgi ársins er framundan og stórir viðburðir haldnir víða um land. Goslokahátíð í Vestmannaeyjum nær hápunkti á morgun og þá er búist við fjölmenni á Akranesi í tengslum við Írska daga. Innlent 4. júlí 2025 13:01
Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Magnús Þór Hafsteinsson hafði hund sinn með sér þegar strandveiðibátur hans sökk. Magnús var úrskurðaður látinn en hundurinn hefur ekki fundist. Formaður Dýrfinnu, samtaka sem hafa uppi á týndum gæludýrum, segir mögulegt að hundurinn sé enn á lífi og hafi rekið á land á Kópanesi. Innlent 3. júlí 2025 21:35
Þyrlan sækir slasaðan göngumann í Patreksfjörð Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til að sækja slasaðan göngumann í Kvígindisdal í Patreksfirði. Innlent 3. júlí 2025 16:08