Nokkur útköll vegna veðurs á norðvestanverðu landinu Björgunarsveitir hafa frá því í gærkvöldi sinnt útköllum vegna óveðurs á Bíldudal, Siglufirði, Suðureyri, Þingeyri og í Grundarfirði. Á Bíldudal losnaði flotbryggja skömmu fyrir miðnætti og þá fauk einnig svalahurð upp á Siglufirði. Innlent 22. janúar 2022 12:26
Ekkert ferðaveður fram á kvöld Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til klukkan sex í kvöld á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra. Innlent 22. janúar 2022 07:34
Leiðindaveður víða um land í nótt og á morgun Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norð-Vesturhluta landsins sem gilda til klukkan 18 á morgun. Þá eru gular viðvaranir í gildi víða um land. Veður 21. janúar 2022 22:54
Hiti komst í sautján stig á Austfjörðum í nótt Nóttin var hlý á landinu og komst hitinn þannig í sautján stig á Austfjörðum. Í dag er hins vegar spáð hvassri suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri, en stormi eða roki í kvöld og rigningu eða snjókomu um tíma. Veður 21. janúar 2022 07:11
Ekkert ferðaveður víða annað kvöld Appelsínugul viðvörun vegna veðurs tekur gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra annað kvöld. Innlent 20. janúar 2022 15:12
Stíf suðlæg átt og stormur á norðanverðu landinu í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir stífri suðlægri átt í dag og hvassviðri eða stormi á norðanverðu landinu seint í kvöld. Veður 20. janúar 2022 07:09
Bjart veður og kalt en hvessir annað kvöld Veðurstofan spáir vestlægri eða breytilegri átt í dag, golu eða kalda. Bjart veður og kalt, en sunnan kaldi og dálítil él vestast í kvöld. Veður 19. janúar 2022 07:08
Suðvestanátt og kólnandi veður Spáð er vestan eða suðvestan átt í dag, víða átta til fímmtán metrum á sekúndu, en þó hvassari á stöku stað, einkum á Norðurlandi og með suðausturströndinni. Veður 18. janúar 2022 07:13
„Þetta er bara spurning um tíma“ Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, hefur áhyggjur af viðvarandi snjóflóðahættu og segir það ekki spurningu um hvort heldur hvenær illa fer. Ítrekað hafi verið bent á nauðsyn þess að leggja jarðgöng að en íbúar tali fyrir daufum eyrum stjórnvalda. Innlent 17. janúar 2022 13:09
Hlý en hvöss suðvestanátt og vætusamt vestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hlýrri en hvassri suðvestanátt í dag. Vætusamt verður á vesturhelmingi landsins, en lengst af þurrt eystra. Veður 17. janúar 2022 07:08
Munaði örfáum sekúndum á að snjóflóð hefði fallið á bílinn Fjöldi snjóflóða hefur fallið niður á veg við Súðavíkurhlíð í kvöld. Vegagerðin lokaði veginum á tíunda tímanum í kvöld en þeir sem fóru veginn fyrr í kvöld furða sig á að honum hafi ekki verið lokað fyrr. Einn vegfarandi segist hafa rétt sloppið við snjóflóð sem féll á veginn nokkrum sekúndum áður en hann keyrði þar að. Innlent 16. janúar 2022 22:44
Gular viðvaranir á morgun Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á öllu Norður- og Norðvesturlandi á morgun vegna storms og mikilla rigninga. Óveðrið byrjar fyrst í Breiðafirði og á Vestfjörðum í kvöld. Innlent 16. janúar 2022 19:49
Slydda og él næstu daga Það verður ansi umhleypingasamt veður næstu daga ef marka má spár veðurfræðinga Veðurstofunnar. Hiti verður oftar en ekki undir frostmarki og er búist við norðlægum áttum með úrkomu oftast nær í formi snjókomu eða slyddu, stundum í éljaformi. Veður 15. janúar 2022 07:38
Gengur í suðaustankalda með snjókomu suðvestantil Það gengur í suðaustan átta til fimmtán metra á sekúndu með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil, en þrettán til átján metrar á sekúndu við suðurströndina. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig, hlýjast syðst. Veður 14. janúar 2022 07:18
Sjötta hlýjasta ár frá upphafi mælinga Árið 2021 var sjötta hlýjasta ár jarðar frá upphafi mælinga. Vísindamenn segja að hitastig fari almennt hækkandi og gera megi ráð fyrir því að komandi ár verði enn hlýrri. Árið fylgir því fast á hæla áranna 2016 og 2020 sem voru með þeim hlýjustu frá upphafi mælinga. Erlent 13. janúar 2022 19:29
Hitinn víða upp undir 50 stig Hitabylgja gengur nú yfir vesturhluta Ástralíu og víða hefur hitinn þar náð hæðum sem aldrei hafa sést áður. Í bænum Roebourne náði hitinn til að mynda 50 gráðum á celsíus kvarðanum en fyrra met féll árið 2011. Erlent 13. janúar 2022 07:21
Gengur á með stormi og éljagangi vestantil fram að hádegi Það gengur á með suðvestanhvassviðri eða stormi og éljagangi á vestanverðu landinu fram að hádegi, en síðan dregur talsvert úr vindi og éljum. Hægara og bjart með köflum eystra. Veður 13. janúar 2022 07:10
„Aðstæður hverju sinni eru grandskoðaðar til þess að finna lausn“ Isavia hefur fjölgað veðurmælum sem mæla vindhraða á Keflavíkurflugvelli. Þetta er gert til þess að skapa þann möguleika að í einhverjum tilfellum sé hægt sé að hleypa fólki frá borði í vonskuveðri með því að færa flugvélar um stæði. Innlent 12. janúar 2022 12:21
Suðvestan hvassviðri með éljagangi og gular viðvaranir Það gengur í suðvestan hvassviðri eða storm með éljagangi í dag, en heldur hægari vindur og úrkomulítið á Austurlandi. Veðurstofan spáir hita um eða yfir frostmarki. Veður 12. janúar 2022 07:09
Flutningabílar lentu utanvegar á Holtavörðuheiði Tveir flutningabílar fóru út af veginum á Holtavörðuheiði fyrr í kvöld en mikill vindur og hálka var á svæðinu. Færð hefur versnað víða um land og er vetrarfæri víðast. Heiðarnar á vestanverðu landinu eru erfiðar yfirferðar eða lokaðar. Innlent 11. janúar 2022 22:27
„Skítaveður“ í tveimur skömmtum væntanlegt Gular viðvaranir eru í gildi fyrir vestanvert landið í kvöld, nótt, morgundaginn og fram á fimmtudag. Reiknað er með hvassviðri og éljagangi í tveimur skömmtum. Innlent 11. janúar 2022 14:58
Hvöss suðvestanátt og rigning eða slydda víðast hvar Spáð er nokkuð hvassri suðvestanátt í dag og rigningu eða slyddu um mest allt land upp úr hádegi, en él seinni partinn. Hiti á landinu verður yfirleitt á bilinu núll til fimm stig. Veður 11. janúar 2022 07:12
Slökkviliðið hvetur fólk til að huga að niðurföllum í morgunsárið Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt í vatnsveðrinu sem gekk yfir borgina. Innlent 10. janúar 2022 07:42
Suðvestan vindur með skúrum og slydduéljum Veðurstofan spáir sunnan og suðvestan átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag með skúrum og slydduéljum, en léttir til á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu núll til fimm stig. Veður 10. janúar 2022 07:28
Farþegar sátu fastir í vélinni í einn og hálfan tíma Farþegar frá Kaupmannahöfn sátu fastir í flugvél Play þar sem ekki var hægt að nota landganga. Farþegar fá ekki töskur sínar fyrr en á morgun. Icelandair aflýsti tveimur flugferðum í kvöld vegna veðurs. Innlent 10. janúar 2022 00:53
Hefur áhyggjur af vetrinum og vill varnarvegg til að sporna við frekari skemmdum „Þetta er eiginlega meira tilfinningalegt tjón heldur en eitthvað annað,” segir Sigrún Harpa Harðardóttir, sem varð fyrir gríðarlegu eignartjóni í óveðrinu á fimmtudag. Fjárhús hennar við Grindavík stórskemmdist og hún þakkar fyrir að hafa farið með allar 25 kindur sínar í skjól áður en óveðrið skall á. Hún hefur áhyggjur af veðrinu og vill að varnarveggur verði settur upp á svæðinu. Innlent 9. janúar 2022 20:01
Lægðin fletti klæðningu af Nesvegi Kröftug lægð sem kom að landinu sunnaverðu í vikunni fletti vegklæðningu af um þrjú hundruð metra kafla Nesvegar sem liggur milli Grindavíkur og Reykjanesvita. Innlent 9. janúar 2022 12:38
Enn versnar veðrið: Fleiri gular viðvaranir Allt þangað til í morgun var útlit fyrir að lægð sem gengur yfir landið í kvöld myndi eingöngu láta til sín taka á suðvesturhorninu og Suðurlandi en nú er ljóst að fleiri landshlutar eru undir. Innlent 9. janúar 2022 12:08
Gular viðvaranir: Ekkert lát á vonskuveðri Gular viðvaranir taka gildi víðsvegar á landinu í dag en búist er við suðaustanstormi í nokkrum landshlutum. Innlent 9. janúar 2022 08:26
Með saltbragð í munninum út árið „Það er stórkostlegt að horfa á hafið, kraftinn í briminu,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari Vísis. Lífið 8. janúar 2022 09:01