Þriggja stjörnu diskórokk Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu. Tónlist 22. janúar 2009 03:30
D-A-D nýtir Íslandsferðina vel Danska rokksveitin D-A-D hyggst ekki sitja auðum höndum og eyða sínum tíma í einhverju vitleysu þegar þeir koma hingað til lands og spila á á Nasa. Þeir ætla sér að taka upp myndband við nýtt lag sveitarinnar og það staðfestir Finni Jóhannsson hjá True North fyrirtækinu sem mun aðstoða dönsku rokkarana við myndbandsgerðina. Tónlist 16. janúar 2009 04:30
Grapevine á Grand Fyrsta tölublað Grapevine með nýjum ritstjóra, Hauki S. Magnússyni, er komið á götuna. Til að fagna áfanganum verða haldnir ókeypis tónleikar á Grand Rokk í kvöld kl. 22. Hljómsveitirnar Agent Fresco, Reykjavík! og Sudden Weather Change koma fram, auk bandaríska tónskáldssins Nico Muhly, sem gaf út plötuna Mothertongue í fyrra og hefur dvalið hér langdvölum. Dj Sveppi P verður við fóninn svo ein mínúta fari ekki til spillis. Tónlist 16. janúar 2009 03:45
Undirbýr sólóplötu Corey Taylor, forsprakki grímurokkaranna í Slipknot, er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu. „Ég finn að ég þarf að gera þessa plötu," sagði Taylor í viðtali við Billboard. „Ég er þannig náungi að ef ég get ekki gert hana þá heldur það aftur af mér í öðru sem ég geri." Tónlist 15. janúar 2009 06:00
Kvennagrúppa spilar Kvennagrúppan Trio Nordica hefur um fimmtán ára skeið haldið saman og spilað margbreytilega tónlist fyrir landann og erlenda áheyrendur, tekið upp hljómplötur og gefið út. Á sunnudaginn koma þær fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju. Tónlist 15. janúar 2009 06:00
Bretar hrifnir af Hjaltalín Breskir gagnrýnendur eru ákaflega hrifnir af plötu íslensku hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Gagnrýnandi Guardian, Michael Hann, biður hlustendur um að standast þá freistingu að líkja hljómsveitinni við Sigur Rós, tónlist þeirra eigi fátt ef eitthvað sameiginlegt. Hann fer síðan fögrum orðum um plötuna og hrósar söngvaranum, Högna Egilssyni. „Hann er ekki fullkominn söngvari en það er einmitt þessi ófullkomleiki sem kemur í veg fyrir að platan lendi í sætabrauðsflokknum,“ skrifar Hann. Tónlist 13. janúar 2009 08:00
Tíunda sólóplatan Gítarleikari Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, gefur út sína tíundu sólóplötu 26. janúar. Platan nefnist The Empyrean og koma þar við sögu Flea, bassaleikari Red Hot, og Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths. Tónlist 13. janúar 2009 04:15
Nýtt lag frá Lifun Hljómsveitin Lifun vakti athygli síðasta sumar með laginu „Hörku djöfuls fanta ást“ eftir Björgvin Ívar Baldursson við texta Bjartmars Guðlaugssonar. Björgvin er sonarsonur Rúnars Júlíussonar. Tónlist 13. janúar 2009 03:30
Tónlistarárið mikla hafið Fjöldi hljómsveita verður á faraldsfæti árið 2009 og ætlar sér stóra hluti úti í hinum stóra heimi. Lay Low, Emilíana Torrini, Hjaltalín og Gus Gus verða öll áberandi. Tónlist 12. janúar 2009 06:00
Búlgaríuplata tafðist í kreppu Fyrsta plata hljómsveitar Hauks Gröndals, Narodna Muzika, tafðist í framleiðslu erlendis á síðasta ári og kom því ekki út fyrr en rétt fyrir jólin. „Svona þjóðlagamúsík er maður ekki að fara að selja eins og Bubbi Morthens hér á landi. Þeir eru ekki að setja þig í rosalegan forgang,“ segir hann og játar að vera pínulítið svekktur. Tónlist 12. janúar 2009 03:00
Plata með Timbaland Chris Cornell, fyrrum söngvari Soundgarden og Audioslave, hefur tekið upp nýja sólóplötu með hjálp upptökustjórans Timbaland. Platan nefnist Scream og kemur út 9. mars. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Fjórir trommarar á plötu Ske Fjórir trommarar spila inn á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Ske sem er væntanleg á næstu vikum. Aðaltrommari Ske og sá sem kemur mest við sögu á plötunni er Englendingurinn Paul Maguire sem hefur spilað með hljómsveitinni The La"s. Hinir þrír eru Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson og Kjartan Gunnarsson. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Little Boots slær í gegn á árinu Little Boots er talin líklegust til að slá í gegn á árinu 2009 að mati 134 breskra tónlistarspekinga. Hin 24 ára elektró-poppsöngkona heitir réttu nafni Victoria Hesketh og kemur frá Blackpool í Englandi. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Zeppelin hættir við Umboðsmaður Jimmys Page, Peter Mensch, hefur dregið til baka fyrri yfirlýsingar sínar og segir að Led Zeppelin muni ekki halda áfram störfum án söngvarans Robert Plant. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Íslendingar spila í Belgíu Hjaltalín, Dísa, Kira Kira, Sam Amidon og Rökkurró eru hluti af tónleikaröðinni 101 Reykjavík sem verður haldin í menningarsetri Belgíu í bænum Maldegem 17. janúar til 29. mars. Tónlist 10. janúar 2009 09:30
D-A-D aðdáendur spenntir Bergur Geirsson bassaleikari bíður spenntur eftir komu dönsku rokkaranna í D-A-D. Hann minnist þess að hafa enn verið með sítt hár þegar hann féll fyrir hljómsveitinni. Tónlist 10. janúar 2009 08:00
Hebbi endurgerður Party Zone, dansþáttur þjóðarinnar á Rás 2, byrjar í kvöld að spila fyrstu remixin sem komu í hús eftir að blásið var til heljarinnar Herberts Guðmundssonar endurhljóðblöndunarveislu í desember Tónlist 10. janúar 2009 06:00
Spennandi plötur streyma út Þrátt fyrir efnahagslegan samdrátt er auðvitað ekkert lát á útgáfu nýrra platna, enda engin sérstök kreppa á meðal listamanna. Tónlistaráhugafólk hefur yfir mörgu að hlakka á næstunni enda nóg af spennandi plötum að koma út. Tónlist 8. janúar 2009 08:15
Zeppelin heldur áfram Umboðsmaður Jimmy Page hefur staðfest að Led Zeppelin muni á næstunni fara á tónleikaferð og taka upp nýja plötu án söngvarans Roberts Plant. Sögusagnir hafa verið á kreiki að sú yrði raunin og eftir að Plant tilkynnti í desember að hann tæki ekki þátt í frekari endurfundum hefur allt verið sett á fullt í leit að nýjum söngvara. Tónlist 8. janúar 2009 07:00
Kassagítarrokk frá Kuroi Hljómsveitin Kuori heldur útgáfutónleika á Grand Rokki á laugardaginn til að kynna nýja EP-plötu sína. Sveitin leikur kassagítarrokk undir áhrifum frá sveitum á borð við Led Zeppelin, Sunny Day Real Estate og Alice in Chains. Tónlist 8. janúar 2009 06:00
Engar bollur í bandið „Gítarleikarinn okkar, þrusugítarfantur, Gunnar Hilmarsson, er í djassnámi. Og nú vantar okkur í Dresscode gítarleikara,“ segir Davíð Smári Harðarson, einkaþjálfari, tónlistarmaður og fyrrum Idol-stjarna. Tónlist 7. janúar 2009 09:00
Gítarleikari The Stooges látinn Í gær bárust þær sorgarfréttir að gítarleikarinn Ronald „Ron“ Asheton væri látinn. Lögreglan fann hann látinn á heimili hans í Ann Arbor í Michigan-ríki Bandaríkjanna eftir tilkynningu um að ekkert hefði til hans spurst dögum saman. Hann mun hafa verið látinn í nokkra daga en krufning mun leiða í ljós dánarorsökina. Ron var sextugur. Tónlist 7. janúar 2009 08:00
Familjen til Íslands Sænski raftónlistarmaðurinn Familjen, sem heitir réttu nafni Johan T. Karlsson, ætlar að troða upp á skemmtistaðnum Nasa föstudagskvöldið 6. febrúar. Tónlist 7. janúar 2009 06:00
Plötusala dregst enn saman Niðurstaða liggur fyrir um mest seldu plöturnar í Bandaríkjunum og Bretlandi á síðasta ári. Í Ameríku er plata rapparans Lil Wayne, Tha Carter III, sú mest selda, en velska söngkonan Duffy seldi mest í Bretlandi, af plötunni Rockferry. Tónlist 7. janúar 2009 05:00
Útón fjallar um netið Útón stendur fyrir fræðslukvöldi í Norræna húsinu í kvöld. Hjörtur Smárason, leiðsögumaður um frumskóga veraldarvefjarins, flytur erindi um hvernig hægt er að byggja upp sterkt orðspor á netinu og leitast við að svara spurningum um hvernig við getum haft áhrif á leitarvélar eins og Google og verndað nafn/vörumerki okkar. Tónlist 7. janúar 2009 05:00
Hraunað yfir Britpoppið Luke Haines sem var aðal í hljómsveitunum Auteurs og Black Box Recorder fer ófögrum orðum um samtíðarmenn sína í breska poppinu í ævisögu sinni Bad Vibes: Britpop And My Part In Its Downfall, sem nýkomin er út. Tónlist 6. janúar 2009 06:00
McCartney fær Bítlalögin í arf Popparinn Michael Jackson ætlar að ánafna Sir Paul McCartney sinn hluta af stefgjöldum Bítlalaganna í erfðaskrá sinni. Jackson, sem nýlega vísaði því á bug að hann væri alvarlega veikur, vonast til að með þessu nái hann sáttum við McCartney. Tónlist 6. janúar 2009 06:00
Bjartasta vonin Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi er valin af dómnefnd í samvinnu við fulltrúa ÍTR Tónlist 22. desember 2008 14:57
Plötur ársins: Jazz Þessar plötur eru tilnefndar sem Jazz plötur ársins Tónlist 22. desember 2008 14:57
Plötur ársins: Sígild og samtímatónlist Þessar plötur eru tilnefndar í flokki Sílgildrar og samtímatónlistar Tónlist 22. desember 2008 14:56