

Þróunarsamvinna
Heimsljós er upplýsingaveita utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Vísir og Heimsljós eru í samstarfi um birtingu frétta um þessi mál.

Nítján milljónir barna á vergangi í heimalandi sínu vegna átaka
Aldrei hafa fleiri börn verið á vergangi vegna átaka og ofbeldis í heimalandi þeirra samkvæmt skýrslu UNICEF.

Hæsta framlagið fjórða árið í röð frá UN Women á Íslandi
Landsnefnd UN Women á Íslandi sendi á síðasta ári rúmlega 127 milljónir króna til alþjóðlegra verkefna UN Women, hæsta fjárframlag allra landsnefnda.

Kvenleiðtogar sameinast í baráttunni gegn COVID-19
Sameinuðu þjóðirnar með kvenleiðtoga í fylkingarbrjósti hafa hleypt af stokkunum átakinu „Rise for All“ um félagslega og efnahagslega endurreisn vegna kórónafaraldursins.

COVID-19: Stuðningur Íslands við flóttamannabyggðir í Úganda
Stofnanir Sameinuðu þjóðanna í Úganda hafa í samstarfi við tuttugu samstarfsstofnanir birt ákall um 47 milljarða króna stuðning til að draga úr áhrifum COVID-19 farsóttarinnar.

Annað neyðarástand má ekki gleymast á tímum faraldursins
Heimsfaraldurinn sem nú geisar af völdum kórónaveirunnar er viðbót við annað neyðarástand víðs vegar um heiminn sem má ekki gleymast né draga úr stuðningi við.

Konur verði þungamiðja viðbragðsáætlana vegna faraldursins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat fjarfund kvenleiðtoga í vikunni þar sem ítrekað var mikilvægi þess að konur og stúlkur verði þungamiðja viðbragðsáætlana og aðgerðaáætlana í bataferli heimsbyggðarinnar vegna kórónuveirufaraldursins.

Óttast að tvöfalt fleiri verði við hungurmörk í árslok
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) varaði í dag við gífurlegri fjölgun hungraðra í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar.

Heimsfaraldur drepsóttar var það síðasta sem börnin þurftu
Staðfest smit kórónuveirunnar í Miðausturlöndum og Norður-Afríku eru rúmlega 105 þúsund og dauðsföllin 5.700. Hvergi í heiminum eru fleiri börn í neyð vegna stríðsátaka.

Áhrif COVID faraldursins á fátæk ríki helsta umræðuefnið
Áskoranir í tengslum við COVID-19 faraldurinn og áhrif hans á fátækari ríki heims voru efst á baugi á fundi þróunarnefndar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr í dag.

Verndum börnin okkar, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
Efnahagslegar afleiðingar vegna kórónaveirunnar gætu leitt til dauðsfalla hundruð þúsunda barna. Sá árangur sem náðst hefur við að draga úr barnadauða gæti horfið samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna.

Börn berskjölduð gagnvart skuggahliðum netsins í heimsfaraldri COVID-19
UNICEF varar við aukinni hættu á netofbeldi gagnvart börnum nú þegar stór hluti daglegs lífs hefur færst yfir í netheima vegna COVID-19.

Mannúðaraðstoð af hálfu stjórnvalda nýtur stuðnings 90% þjóðarinnar
Samkvæmt nýrri könnun fyrir utanríkisráðuneytið telja rúmlega níu af hverjum tíu Íslendingum (90,3%) mjög eða fremur mikilvægt að íslensk stjórnvöld veiti mannúðaraðstoð.

COVID-19: Óttast að þrjár milljónir láti lífið í þróunarríkjunum
Barnaheill – Save the Children hefur hrundið af stað umfangsmesta fjáröflunarátaki í hundrað ára sögu samtakanna til þess að styðja við börn og fjölskyldur þeirra í COVID-19 heimsfaraldrinum.

Heimilisofbeldi: Hættan mest þar sem öryggið ætti að vera mest
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallar eftir leiðum til að bregðast við gífurlegri fjölgun tilvika heimilisofbeldis gegn konum og stúlkum, í ljósi takmarkana á ferðum fólks og útgöngubanni.

Ellefu ríki hafa þegar fallist á vopnahlé
Ellefu ríki sem eiga aðild að stríðsátökum hafa fallist á að leggja niður vopn samkvæmt tilmælum Sameinuðu þjóðanna. Sjötíu ríki hafa lýst yfir stuðningi við vopnahlé á heimsvísu.

UNICEF óttast hrun heilbrigðiskerfisins í Kongó
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna óttast að COVID-19 verði til þess að heilbrigðiskerfi Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó hrynji. Laskað heilbrigðiskerfi þurfi verulegan stuðning til að halda uppi vörnum gegn yfirstandandi faraldri mislinga og kóleru sem hafi þegar orðið þúsundum barna að aldurtila.

Ísland styður ákall um vopnahlé á heimsvísu
Ísland tekur undir yfirlýsingu 53 ríkja sem lýsa stuðningi við ákall António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á heimsvísu.

Stafræn fjáröflunarherferð Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) hefur hrundið af stað stafrænni fjáröflunarherferð til stuðnings þeim sem þjást af ósýnilegum afleiðingum COVID-19 faraldursins

Óttast hræðilegar afleiðingar faraldursins í Afríku
Fulltrúar SOS Barnaþorpanna óttast hræðilegar afleiðingar faraldursins þegar hann leggst að fullum þunga á Áfríku. Heilbrigðiskerfi margra afrískra landa eru nú þegar sprungin af völdum annarra sjúkdóma.

Smitum fjölgar með ógnarhraða í Afríku
Alls hafa 2.412 tilfelli verið staðfest í 43 löndum í Afríku – en það er 500% aukning frá 17. mars. Gríðarlegt álag er á heilbrigðisstofnanir í álfunni

Sameinuðu þjóðirnar: Alþjóðleg aðgerðaráætlun vegna kórónaveirunnar
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fór í gær fram á 268 milljarða króna fjárhagsaðstoð til að standa straum af mannúðaraðstoð við þau ríki sem höllustum fæti standa gagnvart kórónafaraldrinum.

Kórónaveiran veikir stöðu kvenna
Fulltrúar UN Women í Asíu segja það staðreynd að í neyðaraðstæðum séu konur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi.

Tímabundið dregið úr starfsemi sendiráða Íslands í Afríku
Sendiráð Íslands í Úganda og Malaví munu draga úr starfsemi sinni næstu vikur vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Útsendir starfsmenn munu snúa heim tímabundið.

COVID 19: Aukin hætta á að börn sæti ofbeldi
UNICEF hvetur stjórnvöld um allan heim til að tryggja öryggi og velferð barna í því félags- og efnahagslega ástandi sem skapast hefur vegna Covid-19 heimsfaraldursins.

Við eigum í stríði við veiru
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti í gær þjóðir heims til að sameinast í baráttunni gegn kórónaveirunni og COVID-19. „Heimur okkar stendur andspænis sameiginlegum óvini."

Brýnt að halda áfram lífsbjargandi aðgerðum
Kórónaveiran hefur nú breiðst út til rúmlega 140 landa. Sumar þjóðanna sem glíma við veiruna áttu fyrir í harðri lífsbaráttu vegna vopnaðra átaka, náttúruhamfara og afleiðinga loftslagsbreytinga.

Áhersla lögð á að bæta aðstöðu og öryggi stúlkna
Aðgangur stúlkna að framhaldsskólum og háskólanámi kemur ekki einungis þeim til góða heldur líka fjölskyldum þeirra og samfélaginu. Utanríkisráðuneytið styrkir verkefni SÍK í Kenya.

Úganda: Stækkaður fiskmarkaður og endurbætt vatnsveita
Stækkaður fiskmarkaður og endurbætt vatnsveita voru tekin í notkun við Albertsvatn í Úganda í vikunni. Utanríkisráðuneytið, í gegnum sendiráðið í Kampala, fjármagnaði framkvæmdir.

Falsfréttum um kórónaveiruna dreift í nafni alþjóðastofnana
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) fordæmir dreifingu á falsfréttum og röngum upplýsingum um viðbrögð og varnir við Covid-19 veirunni.

Ári eftir Idai fellibylinn eiga margir enn um sárt að binda
Án fjármögnunar og aðgerða í loftslagsmálum verður ómögulegt að takmarka slæm áhrif loftslagsbreytinga á þau ríki sem eru viðkvæm fyrir að mati alþjóðlegu hjálparstofnananna, Save the Children, CARE international og Oxfam.