Subway-deild kvenna

Subway-deild kvenna

Leikirnir




    Fréttamynd

    Amandine: Ein­víginu er ekki lokið

    Amandine Toi fór mikinn í fjórða leik Hauka og Njarðvíkur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Hún skoraði 17 stig og síðustu stig leiksins til að tryggja sínum konum áframhald í keppninni á sunnudaginn næsta. Haukar unnu leikinn 77-69.

    Körfubolti

    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    Upp­gjör: Haukar - Njarð­vík 77-69 | Haukar lifa

    Njarðvík tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna fyrr í kvöld. Haukar sáu til þess að úrslitaeinvígið fari í fjóra leiki allavega. Heimakonur læstu varnarleiknum algjörlega og fóru með 77-69 sigur. Fjórði leikurinn verður á sunnudag í Njarðvík.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin

    Hulda Marí Agnarsdóttir lagði sín lóð á vogaskálarnar til að tryggja Njarðvíkurkonum farseðil í úrslitaeinvígið gegn Haukum þetta tímabilið. Hún skoraði átta stig í 83-72 sigri Njarðvíkinga á Grindavík í oddaleik í undanúrslitum Bónus deildar kvenna.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Trúin og traustið innan hópsins eigi eftir að skila liðinu á­fram

    „Ég er bara fullur tilhlökkunar og ótrúlega spenntur fyrir kvöldinu. Þetta eru sérstakir leikir, oddaleikir, og við fórum í einn slíkan síðastliðið vor og mér finnst stelpurnar hafa sýnt mikla yfirvegun og mikið hugrekki í gegnum það mótlæti sem hefur mætt í þessari seríu,“ segir Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga fyrir oddaleikinn í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindavík í IceMar höllinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Íslands.

    Sport
    Fréttamynd

    Upp­gjörið: Kefla­vík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn

    Haukar sýndu mátt sinn og megin þegar liðið bar sigurorð af Keflavík, 72-98, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld. Haukar fara þar af leiðandi með 3-1 sigur af hólmi í einvígi liðinna og eru komnir í úrslit þar sem liðið mætir annað hvort Njarðvík eða Grindavík.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    „Ég má ekki segja leyndar­mál“

    Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum ánægður með öruggan sigur sinna kvenna á Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Einvígið er jafnt 1-1.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    „Í kvöld varð ég að stíga að­eins upp“

    Amandine Toi átti stórkostlegan leik í kvöld þegar Haukar tóku forystu í einvígi sínu gegn Keflavík með fjórtán stiga sigri 85-71. Amandine Toi skoraði 34 stig í leiknum og hún ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik.

    Sport
    Fréttamynd

    Of mikil pása gæti verið slæm

    „Þetta leggst bara rosa vel í okkur. Þær eru allar mjög spenntar og bara til í þetta,“ segir Emil Barja þjálfari Hauka fyrir fyrsta leik liðsins gegn Keflavík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í kvöld en leikurinn fer fram í Ólafssal og verður í beinni á Sýn Sport.

    Körfubolti