Stjörnulífið

Stjörnulífið

Fréttir af því helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að deila á samfélagsmiðlum síðustu daga.

Fréttamynd

Stjörnulífið: Berir að ofan í brúð­kaupi

Liðin vika einkenndist af tímamótum í lífi íslenskra stjarna. Ástin sveif yfir ítölskum vötnum og gæsir nutu íslensku veðurblíðunnar í bland við óléttutilkynningar, útskriftir og fleira fjör. Það er sjaldan lognmolla á samfélagsmiðlunum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“

Reykjavíkurborg iðaði af lífi um helgina og kosningateiti, tónleikar, stórafmæli, brúðkaup og fleira spiluðu þar stórt hlutverk. Stjörnur landsins héldu áfram að skína skært á samfélagsmiðlum og skvísulætin fóru í hæstu hæðir.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“

Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið hvort sem það var á framandi slóðum eða með skvísulátum í borginni. Brúðkaupsundirbúningur, afmælisgleði, tónleikar í London og ástarmyndir frá París voru hluti af þeirri gleði sem einkenndi samfélagsmiðla undanfarna daga.  

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Bombur í Hörpu

Gríðarlega mikil gleði og fjör einkenndi samfélagsmiðlafærslur yfir síðastliðna viku og stjörnur landsins létu sig fæstar vanta á tónleika hjá stórstjörnunni okkar Laufeyju Lín. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Á rassinum með ref

Mars mánuður fer mjúklega af stað og vetur og vor etja kappi hvert við annað þar sem lengri dagar og snjóstormar blandast skemmtilega saman. Stjörnur lífsins eru stöðugt á spennandi flakki og halda áfram að veita innsýn í tilveru þeirra.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling

Einhver besti janúarmánuður í manna minnum er liðinn undir lok með mörgum blíðviðrisdögum, norðurljósadýrð, handboltaveislu og alvöru skvísupóstum á samfélagsmiðlum. Stjörnur landsins voru önnum kafnir við ýmislegt pæjulegt í liðinni viku og skelltu sér meðal annars á skíði erlendis, trúlofuðu sig í safaríferð í Afríku, unnu til tvennra Grammy verðlauna og sóluðu sig á Bahama-eyjum.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Fá­klædd í fimbul­kulda

Síðasta vika janúarmánaðar er gengin í garð og stjörnur landsins halda áfram að njóta lífsins til hins ítrasta, hvort sem það er á seiðandi suðrænum slóðum, í skíðaferðum á Norðurlandi eða í krúttlegum hversdagsleika. Bændur landsins fengu sætar kveðjur á samfélagsmiðlum á föstudag og Gugga í gúmmíbát heiðraði aðdáendur eftir nokkurra vikna fjarveru frá myndbirtingum. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Ás­laug náði ekki að tala Trump til

Janúarmánuður siglir áfram með blíðviðrisdögum og brjáluðum norðurljósum í bland við nokkrar lægðir. Nú er tími þorrablóta, glimmers og mikils partýstands en stjörnur landsins eru líka duglegar að hafa það náðugt heima fyrir eða skella sér í heitar laugar og birta bossamyndir. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Ár gellunnar

Nýja árið er farið á flug og glamúrinn og norðurljósadýrð einkenna þessar gullfallegu fyrstu vikur janúar í bland við flottheita skíðaferðir, sólarstrendur, gríðarleg gellulæti og blómstrandi ást hjá stjörnum landsins.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleði­legra jóla

Nú eru bara tveir dagar í jól, fólk ýmist í jólastresskasti eða komið í jólakósý. Tónlistarmenn landsins eru alveg að klára sína jólatónleikatörn til að eiga salt í möndlugrautinn og áhrifavaldar keppast við að fanga myrkrið á filmu.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin

Jólagleðin hefur tekið yfir andrúmsloftið og samfélagsmiðlar eru farnir að fyllast af glæsileika, glamúr og almennu fjöri í anda jólanna. Stjörnur landsins gefa ekkert eftir á þessum árstíma og hleypa landsmönnum inn í hin ýmsu skemmtilegu augnablik, hvort sem það er frá ferðalögum, partýstandi, huggulegheitum, ástinni eða öðru.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Ó­létta og ást í 23 ár

Desember er genginn í garð og það vantar sannarlega ekki tilefni til að gera sér glaðan dag í kringum aðventuna. Stjörnur landsins hafa vart undan við að birta myndir af skemmtilegum athöfnum. Hvort sem það séu tímamót, skvísustundir, sveitaferðir, útlönd, huggulegheit eða annað þá var Instagram stútfullt af fjölbreyttum færslum áhrifavaldanna um helgina.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: „Ég kikna í hnjánum“

Það var líf og fjör hjá stjörnum landsins í liðinni viku og jólaandinn virðist vera farinn að svífa yfir vötnum. Konungleg heimsókn forsetans til London, skvísuferð til Parísar og jólastemning einkenndi liðna viku sem var bæði hátíðleg og viðburðarík. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Kvaddi kollvikin í Istanbúl

Landsleikjasvekkelsi, rómantík á Kjarvalsstofu og afmælishátíð Stuðmanna settu svip sinn á vikuna hjá þekktu Íslendingum. Margir virðast jafnframt farnir að stíga fyrstu skrefin inn í jólaskapið.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Uniqlo á Suður­landi

Stjörnur landsins létu til sín taka um helgina. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fyllti miðbæinn af tónlist og góðri stemningu, Bríet gaf út nýja EP-plötu og stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir var tilnefnd til Grammy-verðlauna annað árið í röð. Þá var feðradagurinn var haldinn hátíðlegur í gær og nýttu margir tækifærið til að senda feðrum sínum hlýjar og fallegar kveðjur á samfélagsmiðlum.

Lífið