Stjörnulífið

Stjörnulífið

Fréttir af því helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að deila á samfélagsmiðlum síðustu daga.

Fréttamynd

Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert

Júní mánuður er að líða undir lok og stjörnur landsins virðast njóta löngu daganna til hins ítrasta með ferðalögum og fjöri. Rapparar náðu sögulegum sáttum, stjörnuparið Helen og Ruben fóru í sleik á Bergmálstónleikunum, Mari Jarsk er komin 34 vikur og skokkaði upp Esjuna og Bríet var dugleg að baða sig. 

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stjörnulífið: Sjóð­heit skvísuferð til Ibiza

Bongó blíða, brúðkaup og bombur tóku yfir samfélagsmiðla í síðastliðinni viku samhliða einhverri svakalegustu skvísuferð ársins þar sem áhrifavaldarnir Tara Sif, Birgitta Líf, Svanhildur Heiða og Telma Fanney skelltu sér á sólríku partýeyjuna Ibiza. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól

Sumarið mætti síðastliðinn fimmtudag og stjörnur landsins fögnuðu því með stæl yfir sólríka helgina. Mari Järsk bíður spennt eftir sumarbarni, Júnía og Laufey fögnuðu 27 ára afmæli, Unnur Borg er að opna vefsíðu og ástin blómstrar hjá Höllu Vilhjálms og Eiði Smára.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“

Sólin lét sannarlega sjá sig um helgina og stjörnur landsins voru í vorfíling hvort sem þær voru í sundlaugum og heitum lónum eða að spóka sig um í blíðviðrinu. Crossfit stjörnur náðu góðum árangri í opnu móti, Guðmundur Emil hélt aftur gleðitárum í fitness, Herra hnetusmjör sló tónlistarmet og fjöldi regnboga tóku sömuleiðis yfir á Instagram á síðustu dögum.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Helen og Ruben ást­fangin á Ítalíu

Glamúr, gleði, árshátíðir og fjör einkenndu síðastliðna viku á klakanum og samfélagsmiðlar fylltust af glæsilegum myndum frá stjörnum landsins í fjöri. Sömuleiðis sóttu sumar þeirra í suðrænar slóðir og tóku forskot á sumarið.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Sjóð­heit skvísuviðvörun

Reykjavíkurborg iðaði af lífi, fjöri og veðurviðvörunum um helgina og stjörnur landsins deildu alls konar gleði á samfélagsmiðlum. Skvísumyndir, glamúr, afmælisfjör og bikinímyndir báru þar hæst. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“

Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið hvort sem það var á framandi slóðum eða með skvísulátum í borginni. Brúðkaupsundirbúningur, afmælisgleði, tónleikar í London og ástarmyndir frá París voru hluti af þeirri gleði sem einkenndi samfélagsmiðla undanfarna daga.  

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Bombur í Hörpu

Gríðarlega mikil gleði og fjör einkenndi samfélagsmiðlafærslur yfir síðastliðna viku og stjörnur landsins létu sig fæstar vanta á tónleika hjá stórstjörnunni okkar Laufeyju Lín. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Á rassinum með ref

Mars mánuður fer mjúklega af stað og vetur og vor etja kappi hvert við annað þar sem lengri dagar og snjóstormar blandast skemmtilega saman. Stjörnur lífsins eru stöðugt á spennandi flakki og halda áfram að veita innsýn í tilveru þeirra.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling

Einhver besti janúarmánuður í manna minnum er liðinn undir lok með mörgum blíðviðrisdögum, norðurljósadýrð, handboltaveislu og alvöru skvísupóstum á samfélagsmiðlum. Stjörnur landsins voru önnum kafnir við ýmislegt pæjulegt í liðinni viku og skelltu sér meðal annars á skíði erlendis, trúlofuðu sig í safaríferð í Afríku, unnu til tvennra Grammy verðlauna og sóluðu sig á Bahama-eyjum.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Fá­klædd í fimbul­kulda

Síðasta vika janúarmánaðar er gengin í garð og stjörnur landsins halda áfram að njóta lífsins til hins ítrasta, hvort sem það er á seiðandi suðrænum slóðum, í skíðaferðum á Norðurlandi eða í krúttlegum hversdagsleika. Bændur landsins fengu sætar kveðjur á samfélagsmiðlum á föstudag og Gugga í gúmmíbát heiðraði aðdáendur eftir nokkurra vikna fjarveru frá myndbirtingum. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Ás­laug náði ekki að tala Trump til

Janúarmánuður siglir áfram með blíðviðrisdögum og brjáluðum norðurljósum í bland við nokkrar lægðir. Nú er tími þorrablóta, glimmers og mikils partýstands en stjörnur landsins eru líka duglegar að hafa það náðugt heima fyrir eða skella sér í heitar laugar og birta bossamyndir. 

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Ár gellunnar

Nýja árið er farið á flug og glamúrinn og norðurljósadýrð einkenna þessar gullfallegu fyrstu vikur janúar í bland við flottheita skíðaferðir, sólarstrendur, gríðarleg gellulæti og blómstrandi ást hjá stjörnum landsins.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleði­legra jóla

Nú eru bara tveir dagar í jól, fólk ýmist í jólastresskasti eða komið í jólakósý. Tónlistarmenn landsins eru alveg að klára sína jólatónleikatörn til að eiga salt í möndlugrautinn og áhrifavaldar keppast við að fanga myrkrið á filmu.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin

Jólagleðin hefur tekið yfir andrúmsloftið og samfélagsmiðlar eru farnir að fyllast af glæsileika, glamúr og almennu fjöri í anda jólanna. Stjörnur landsins gefa ekkert eftir á þessum árstíma og hleypa landsmönnum inn í hin ýmsu skemmtilegu augnablik, hvort sem það er frá ferðalögum, partýstandi, huggulegheitum, ástinni eða öðru.

Lífið