Seltjarnarnes

Seltjarnarnes

Mannfjöldi: 4.585 (2025). Flatarmál: 2 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hnífstunga í heima­húsi í Ár­bæ

Einn maður var fluttur á bráðamóttöku í dag eftir hnífstungu í heimahúsi í Árbæ í Reykjavík. Annar maður var vistaður í fangageymslu og var sá í annarlegu ástandi að sögn lögreglu sem lítur á málið sem alvarlega líkamsárás.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Engin á­kvörðun tekin eftir upp­sögn dagdvalarsamnings

Eftir að Seltjarnarnesbær sagði upp dagdvalarsamningi við Vigdísarholt, sem sér um dagdvalar- og hjúkrunarrýmisþjónustu á Seltjörn, bíða forsvarsmenn eftir svörum frá bænum um hver taki við í lok árs. Mikil samlegð sé á milli dagdvalarinnar og hjúkrunarheimilisins svo staða þess síðarnefnda verður metin. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar ítrekar að ekkert rof verði á þjónustunni.

Innlent
Fréttamynd

„Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“

Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, var sérstakur gestur í golfhlaðvarpinu Seinni níu. Þar var farið yfir víðan völl en Þór er með 22 í forgjöf og liðtækur kylfingur. Ekki síst er það vegna þess að hann er með rándýran pútter í höndum sem hann nappaði úr nytjagámi í Sorpu.

Lífið
Fréttamynd

Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu

Máté Dalmay, körfuboltaþjálfari og stærsti eigandi Fótbolta.net, og Elísabet Charlotta Ásgeirsdóttir hafa sett 111 fermetra íbúð sína að Grænumýri 20 á Seltjarnarnesi á sölu.

Lífið
Fréttamynd

Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni

Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum

Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum.

Innlent
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­stjórinn einn á móti stækkun frið­lýsingar Gróttu og Seltjarnar

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti í fyrradag, með sex greiddum atkvæðum gegn einu, stækkun á friðlendi í Gróttu og Seltjarnar. Bæjarstjóri telur tillögu um friðlýsingu ganga of langt og segir afar skiptar skoðanir meðal íbúa. Unnið hefur verið að stækkun friðlendisins í um sex ár. Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í málinu og bæjarstjórinn greiddi einn atkvæði gegn tillögunni.

Innlent
Fréttamynd

Villi­götur eru ekki alltaf merktar – svar við skoðun Bjarna Torfa

Það er orðið nokkuð algengt að fyrrverandi sjálfstæðismenn lýsi pólitísku ferðalagi sínu til vinstri sem einhvers konar uppvakningu eða siðferðislegri endurfæðingu. Í slíkum pistlum er fortíðin gjarnan einfölduð og Sjálfstæðisflokkurinn gerður að vandamálinu sem þurfti að yfirgefa.

Skoðun
Fréttamynd

Þetta eru launin sem fram­bjóð­endur geta vænst með kjöri í vor

Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Þór leiðir aftur á Sel­tjarnar­nesi

Þór Sigurgeirsson var í dag endurkjörinn oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Í tilkynningu kemur fram að Þór hlaut 566 atkvæði í 1. sæti eða 71,4 prósent atkvæða. Hann hefur verið oddviti D-listans síðan 2022.

Innlent
Fréttamynd

Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025

Fasteignasalinn Páll Heiðar Pálsson tók saman sjö af dýrustu eignunum sem seldust á Íslandi árið 2025. Ódýrasta eignin af þeim seldist á 365 milljónir á meðan sú dýrasta seldist á 550 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Frá Sjálf­stæðis­flokki til Sam­fylkingar og ó­háðra – af hverju?

Allt hefur sinn tíma og nú er senn á enda seta mín í bæjarstjórn Seltjarnarness. Ég hlaut fyrst kosningu til þeirra setu fyrir tímabilið 2002–2006 á lista Sjálfstæðisflokksins og svo aftur fyrir öll kjörtímabilin frá 2010. Það hefur svo sannarlega margt breyst á þessum tíma en það er líka margt sem enn er á dagskrá.

Skoðun
Fréttamynd

Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri

Árleg vetrarhátíð hefst í kvöld á höfuðborgarsvæðinu þegar kveikt verður á ljóslistaverkum í miðborg Reykjavíkur. Viðburðarstjóri segir hátíðina aldrei hafa verið stærri, 150 viðburðir fara fram þar til á sunnudag en hátíðin samanstendur meðal annars af Safnanótt og Sundlauganótt.

Menning
Fréttamynd

Myndi kosta sveitar­fé­lögin 300 milljónir á ári

Áætlað er að það myndi kosta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu aukalega um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn, þar af 167 milljónir fyrir borgina. Borgarstjóri segir að boðaðar breytingarnar séu til þess fallnar að auka frelsi reykvískra barna.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn býður fram undir merkjum Sam­fylkingar

Á fjölmennum fundi í vallarhúsi Gróttu á Seltjarnarnesi var tekin ákvörðun um að Samfylkingin bjóði fram í samstarfi við Viðreisn og óflokksbundna Seltirninga undir merkjum Samfylkingar og óháðra í sveitarstjórnarkosningum í vor.

Innlent