

Samkvæmislífið
Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Stjörnulífið: Blót, bóndadagur og börn
Stjörnur landsins dönsuðu sig í gegnum síðustu helgi janúarmánaðar og fer þessi langi mánuður senn að líða undir lok, mörgum til mikillar ánægju. Þorrablót, tónleikar, afmælisveislur og fleira fjör einkenndi helgina.

Prinsinn í Fram dreginn upp á svið og djammað á stólunum
Það voru spiluð miklu meiri stemmningslög en Fram, fram, fylking þegar Framarar troðfylltu íþróttahúsið í Úlfarsárdal og efndu til þorrablóts. Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður í handbolta og Framprins heiðraði uppeldisfélagið. Svo gaman var að sumir gestir stóðu uppi á stólum.

Myndaveisla: Ráðherrarnir létu sig ekki vanta á Kópavogsblótið
Kópavogsblótið var haldið síðastliðinn á föstudag, á sjálfan bóndadaginn, í Fífunni í Kópvogi. Rúmlega 2500 manns mættu á viðburðinn.

Öflugar konur úr atvinnulífinu fjölmenntu á Hótel Grand
Þrjár konur úr atvinnulífinu voru heiðraðar af Félagi kvenna í atvinnulífinu við hátíðlega athöfn í gær. Nánustu vinum og fjölskyldu verðlaunahafanna var boðið í gleðina.

Fullt hús á Fullu húsi
Fyrsta kvikmynd Sigurjóns Kjartanssonar í fullri lengd, Fullt hús, verður frumsýnd á morgun föstudag, en forsýning myndarinnar fór fram í Laugarásbíói í gærkvöldi.

Myndir frá fjölmennu kveðjupartýi borgarstjóra í Borgarleikhúsinu
Dagur B. Eggertsson hélt kveðjupartý í Borgarleikhúsinu síðastliðinn laugardag með glæsibrag. Fjöldi fólks mætti og fagnaði tímamótunum í lífi Dags.

Myndaveisla: Grafarvogsbúar með kennslustund í að skemmta sér
Fjölmennt var á Þorrablóti Grafarvogs sem fór fram í Egilshöll á laugardagskvöld. Um 1200 manns mættu og skemmtu sér konunglega og blítuðu Þorrann. Þema kvöldsins var níundi áratugurinn eða 80's tímabilið.

Myndaveisla: Túbering, glingur og 80's múndering
Annar þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 síðastliðinn föstudag. Sjö keppendur stigu þar á svið en aðeins sex komust áfram í lok kvölds.

Myndaveisla: Troðfullt hús þrátt fyrir leikinn
Franska kvikmyndahátíðin opnaði með pompi og prakt í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið og fjöldi fólks lagði leið sína á Hverfisgötuna til að horfa á kvikmyndina L’Innocent (Hinn Saklausi) eftir Louis Garrell.

Myndaveisla: Stjörnum prýdd frumsýning Lúnu
Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu síðastliðinn föstudaginn þegar sýningin Lúna var frumsýnd fyrir fullu húsi.

Myndaveisla: Dagur B fékk viðstadda til að sperra upp eyrun
Um sjö hundruð háskólanemar mættu í eina stærstu vísindaferð landsins til að kynna sér frumkvöðlakeppnina Gulleggið í Grósku á dögunum. KLAK - Icelandic Startups stóð fyrir viðburðinum sem hefur fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins.

Myndaveisla: Listrænt fjör í Marshallhúsinu
Margt var um manninn á sýningaropnun hjá Þulu Gallery í Marshallhúsinu síðastliðinn laugardag. Sýningin, sem ber heitið Árfarvegur, býður gestum að stíga inn í heim þar sem hið stóra og smáa mætist og er samsýning Kristins E. Hrafnssonar, Önnu Maggýjar, Hrafnkels Sigurðssonar og Vikram Pradhan.

Myndaveisla: Skvísur landsins skáluðu fyrir „Mean Girls“
Sérstök forsýning á bandarísku kvikmyndinni Mean Girls „Revenge Party“ fór fram í Sambíóunum Kringlunni um helgina.

Myndaveisla: Tróðu í sig þorramat og trölluðu fram á nótt í Vesturbænum
Fjölmennt var á þorrablóti Vesturbæjar sem fór fram í KR-heimilinu á laugardagskvöld. Forstjórar, stjörnulögfræðingar, sjónvarpsstjörnur og hörðustu KR-ingar landsins voru meðal gesta sem fögnuðu Þorranum vel og rækilega.

Dorrit og Michael Caine hress í Lundúnum
Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú birti í kvöld mynd af sér og breska stórleikaranum Michael Caine á Instagram. Þar virðast þau í góðum gír.

Myndaveisla: Ekkert til sparað í 22 ára afmæli Gústa B
Útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, þekktur sem Gústi B, fagnaði 22 ára afmæli sínu í Cavasalnum liðna helgi líkt og sannri stjörnu sæmir. Veislan var hin glæsilegasta í alla staði þar sem gala þema, töfrandi skreytingar og fljótandi veigar einkenndu kvöldið.

Myndaveisla: Andri Snær og Kristín Péturs heiðruðu íslenska jökla
Það var margt um manninn síðastliðinn fimmtudag þegar Fischersund frumsýndi aðra samstarfslínu sína með 66°Norður en um er að ræða ilminn Jöklalykt.

Myndaveisla: Hildur Yeoman fertug og fabjúlöss
Fatahönnuðurinn og ofurdívan Hildur Yeoman fagnaði fertugsafmæli sínu og nýju hátíðarlínunni síðastliðinn miðvikudag. Húsfyllir var í veislunni sem haldin var í versluninni Yeoman. Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, tróð upp og skemmti gestum.

Myndaveisla: Gerður í Blush og Sigurður Ingi skáluðu fyrir Teprunum
Sérstök hátíðarsýning á Teprunum fór fram í Borgarleikhúsinu liðna helgi. Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga létu sig ekki vanta og skáluðu í fallegan fordrykk fyrir sýninguna. Meðal gesta voru Gerður Huld Arinbjarnardóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Kolbrún Anna Vignisdóttir og Birna Rún Eiríksdóttir, svo fáir einir séu nefndir.

Fullt út úr dyrum og fólk beið í röð
Fullt var út úr dyrum þegar Jólasýningin í Ásmundarsal opnaði í sjötta sinn um helgina en samkvæmt forsvarsmönnum sýningarinnar var fólk byrjað að mynda röð hálftíma áður en sýningin opnaði.

Stjörnum prýdd frumsýning Fíusólar
Söngleikurinn Fíasól gefst aldrei upp var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins liðna helgi. Fíasól er löngu orðin sígild í íslenskri bókmenntasögu og á sér aðdáendur á öllum aldri. Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga létu sig ekki vanta á sýninguna. Þar má nefna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur, Elizu Reid, Berg Ebba Benediktsson og Unni Ösp Stefánsdóttur, svo fáir einir séu nefndir.

Myndaveisla: Glitrandi förðunarheimur og glamúr á HAX
Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir, betur þekkt sem Silla, snyrtivörudrottning og stofnandi Reykjavík Makeup School bauð í glitrandi glimmer partý á skemmtistaðnum HAX síðastliðinn fimmtudag.

Tónlistarveisla til heiðurs Agli Ólafssyni
Fjölmennt var á tónleikum til heiðurs Agli Ólafssyni í menningarhúsinu Hofi á Akureyri liðna helgi. Þar var farið yfir glæstan tónlistarferil Egils með sérstakri áherslu á Þursaflokksárin.

Logi Pedro og Elísabet Gunnars fögnuðu umræðunni um ofneyslu
Fjöldi hönnuða og áhugafólks um tísku mætti á málstofu, 66°Norður, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Festa, sem fór fram í Grósku í Vatnsmýri í gær undir yfirskriftinni, Erum við að kaupa til að henda?

Bókaormar framtíðarinnar fjölmenntu í útgáfuhóf
„Við erum í skýjunum með viðtökurnar,“ segir rithöfundurinn Bergrún Íris en hún ásamt leikaranum Þorvaldi Davíð fögnuðu útgáfu bókarinnar Sokkalabbarnir nýverið.

Myndaveisla: Stjörnum prýtt opnunarteiti Verona
Húsfyllir var í opnunarteiti verslunarinnar Verona í gær þar sem gestum gafst tækifæri á að leggjast í rúmin og hvíla sig á milli samtala. Meðal gesta voru Ragnhildur Gísladóttir, Birkir Kristinsson, Eva María Jónsdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Birgitta Haukdal, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Magnús Geir Þórðarson, Edda Hermannsdóttir og fleiri góðir gestir.

Myndaveisla: Upplifun á tilverunni í nýju ljósi
Listakonan Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Kjarvalsstöðum um síðustu helgi. Margt var um manninn á opnuninni þar sem listunnendur sameinuðust og gerðu sér glaðan og skapandi dag.

Myndaveisla: Frægir rithöfundar heiðruðu Gaiman
Breska sendiráðið hélt móttöku til heiðurs breska rithöfundarins Neil Gaiman. Margt var um manninn og létu ýmis þekkt andlit sjá sig en hér fyrir neðan má sjá myndir úr veislunni.

Gullfallegar mæður fögnuðu nýrri barnavöruverslun
Fríður hópur mætti í opnun barnavöruverslunarinnar Mía við Ármúla í vikunni og skálaði fyrir fallegum vörum sem eru tileinkaðir okkar mikilvægasta fólki.

„Saman erum við náttúruafl“
Norrænu tækniverðlaunin Nordic Women in Tech Awards 2023 voru afhent í Hörpu fyrr í mánuðinum. Verðlaunin eru tileinkuð kvenleiðtogum og nýjum leiðtogum í tækni á þvert á Norðurlöndin.