Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Eyðimerkurepíkin Desert Warrior átti að vera fyrsti liðurinn í menningarátaki Sádi-Arabíu og stórmynd sem gæti keppt við það besta í Hollywood en stefnir í að verða eitt stærsta flopp sögunnar. Framleiðsla myndarinnar kostaði 150 milljónir Bandaríkjadala en eftir fyrstu vikuna er aðeins hálf milljón komin í kassann. Bíó og sjónvarp 30.4.2026 17:24
Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Cristiano Ronaldo skoraði sitt 970. mark á ferlinum í 2-0 sigri Al-Nassr gegn Al-Ahli í sádiarabísku úrvalsdeildinni en rifrildi hans við andstæðing vakti hvað mesta athygli. Fótbolti 30.4.2026 13:45
Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Móti LIV-golfmótaraðarinnar í Lúisíana í Bandaríkjunum hefur verið frestað og óvíst er hvort af því verði. Talið er að sádiarabískir bakhjarlar mótaraðarinnar ætli að ætta að halda henni uppi á næstunni. Golf 29.4.2026 14:52
Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um. Innlent 26. mars 2026 07:47
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. Viðskipti erlent 19. mars 2026 09:48
„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. Innlent 11. mars 2026 21:12
Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Innlent 7. mars 2026 11:12
Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum. Innlent 4. mars 2026 11:57
Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Knattspyrnuparið Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson býr með syninum Ragnari Frank í Sádi-Arabíu, nærri stríðsástandinu sem nú geisar í Mið-Austurlöndum. Fótbolti 1. mars 2026 12:57
Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er nýr styrktaraðili liðs á LIV-mótaröðinni í golfi. Sádar stofnuðu mótaröðina til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2022 til þess að fegra eigin ímynd með svokölluðu íþróttaþvætti. Viðskipti innlent 10. febrúar 2026 08:57
Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. Innlent 8. febrúar 2026 08:00
Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. Innlent 4. febrúar 2026 22:40
Verkfalli Ronaldo lokið Cristiano Ronaldo er mættur aftur til æfinga hjá Al-Nassr eftir að hafa ekki gefið kost á sér fyrir leik liðsins í Sádi-Arabíu í gær. Fótbolti 4. febrúar 2026 18:27
PGA-mótaröðin endurheimtir helsta skúrkinn af LIV Patrick Reed, siguvegari á Masters árið 2018, er hættur á LIV-mótaröðinni og fær að snúa aftur á PGA-mótaröðina seinna á þessu ári. Hann er annar þekkti kylfingurinn sem LIV missir á skömmum tíma en með honum endurheimtir PGA-mótaröðin eina umdeildustu stjörnu sína á síðari árum. Sport 30. janúar 2026 12:33
LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Engin af þeim þremur stjörnum LIV-mótaraðarinnar í golfi sem stendur tímabundið til boða að snúa aftur á PGA-mótaröðina ætla að taka boðinu. Brooks Koepka, margfaldur risamótsmeistari, fékk inngöngu á PGA-röðina á dögunum. Golf 14. janúar 2026 10:22
Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka snýr aftur á PGA-mótaröðina strax í lok þessa mánaðar eftir að hann samþykkti að gera yfirbót fyrir brotthvarf sitt til LIV-mótaraðarinnar. Undanþága sem er sérsniðin að stærstu stjörnum LIV stendur þeim tímabundið til boða. Golf 13. janúar 2026 15:00
Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu og sló andstæðing Cristiano Ronaldo skoraði eina mark Al-Nassr í 3-1 tapi liðsins gegn Al-Hilal í toppslag sádi-arabísku deildarinnar í kvöld. Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu í leiknum og fékk að líta rauða spjaldið. Fótbolti 12. janúar 2026 19:34
Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30. desember 2025 09:41
Pútín sagður hafa valið Witkoff Steve Witkoff, fasteignamógúll og golffélagi Donalds Trump til langs tíma, hafði starfað sem sérstakur erindreki forsetans í einungis nokkra daga þegar honum bárust skilaboð frá krónprins Sádi-Arabíu. Skilaboðin voru um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði áhuga á að hitta hann. Erlent 20. desember 2025 12:47
Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Aðstandendur fórnarlamba árásanna þann 11. september 2001 hafa árum saman barist fyrir því að fá að lögsækja Sádi-Arabíu vegna meints stuðnings ríkisins við hluta hryðjuverkamannanna. Nýlega birt gögn bandarískra yfirvalda hafa styrkt grunsemdir fjölskyldnanna enn frekar og samhliða halda málaferlin áfram að silast í gegnum dómskerfið, 24 árum eftir atburðina. Innlent 12. desember 2025 10:01
Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Framkvæmdastjóri sádi-arabísku deildarinnar segir félög þar vilja klófesta Mohamed Salah, leikmann Liverpool. Enski boltinn 10. desember 2025 22:45
Gerði lítið úr morðinu á Khashoggi á blaðamannafundi með bin Salman Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði lítið úr morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi þegar hann tók á móti Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, í Hvíta húsinu í gær. Erlent 19. nóvember 2025 06:31
Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Embættismenn innan varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir uggandi yfir sölu F-35 herþota til Sádi Arabaíu, þar sem líkur séu á að Kínverjar gætu nýtt sér tækifærið til að komast yfir tæknina sem vélarnar byggja á. Erlent 14. nóvember 2025 07:43
Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Gervigreindin er orðin það öflug og algeng að fólk þarf að efast um það sem það sér á netinu þótt það líti trúanlega út. Gott dæmi um það er meintur nýr knattspyrnuleikvangur sem átt að byggja fyrir HM í fótbolta 2034. Fótbolti 31. október 2025 06:31