Palestína

Palestína

Jerúsalem (yfirlýst höfuðborg Palestínumanna þó að fæst ríki heims viðurkenni það). Mannfjöldi: 5,7 milljónir (2025). Flatarmál: 6.020 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Minnst tólf létust í á­rásum Ísraelshers

Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum. 

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hand­takan þyrfti að byggja á al­þjóða­lögum

Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum.

Erlent
Fréttamynd

Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og á­rásir enn nær dag­legt brauð

Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust yfir tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins sem fórnarlömbin voru flutt á.

Erlent
Fréttamynd

Frétta­flutningur RÚV um „ó­háða“ skýrslu ísraelsks rann­sóknar­hóps

RÚV flutti nýlega fréttir um að „Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Þetta kemur fram í skýrslu sem er unnin af sjálfstæðri ísraelskri rannsóknarnefnd ... Ofbeldið einkenndist af mikilli grimmd og þjáningu og var beitt til að ógna og niðurlægja.“

Skoðun
Fréttamynd

Euro­vision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla

Eurovison, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fer fram 70. skiptið í ár en keppnin verður haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín, og hefst á þriðjudaginn, þann 12. maí.  Tölurnar sýna greinilega að lög þess árs ná ekki til áhorfenda á sama stigi og undanfarin ár en spilunartölur Eurovision á Spotify hafa nánast helmingast.

Tónlist
Fréttamynd

Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár

Sveitarstjórnarkosningar standa yfir í Palestínu í dag, bæði á hernumda Vesturbakka en einnig ganga örfáir að kjörborðinu á Gasaströndinni. Þetta er fyrsta sinn sem kosningar eru haldnar á Gasa frá því að Hamas vann þingkosningar 2006.

Erlent
Fréttamynd

Björk, Sigur Rós og ríf­lega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu

Björk, Ólafur Arnalds og Pálmi Gunnarsson eru meðal þeirra hundrað tuttugu og þriggja íslenskra listamanna sem hafa skrifað undir opið bréf þar sem aðdáendur eru hvattir til að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Alls eru á listanum undirskriftir ríflega ellefu hundruð tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Peter Gabriel, Massive Attack og Hot Chip.

Tónlist
Fréttamynd

Söngvari Massive Attack hand­tekinn á mót­mælum

Söngvari Massive Attack, Robert Del Naja, var handtekinn fyrir að sýna stuðning við samtökin Palestine Action á mótmælum gegn banni gegn samtökunum í miðborg London á laugardag. Handtakan gæti haft áhrif á tónleikaferðalag hljómsveitarinnar. 

Lífið
Fréttamynd

Dauða­refsing gegn börnum

Þann 30. mars 2026 samþykkti ísraelska þingið lög sem heimila dauðarefsingu. Dauðarefsing er umdeild í sjálfu sér en þessi lög eru enn óhugnanlegri í ljósi þess gegn hvaða þjóðfélagshópi þau beinast.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum

Íslendingar skipa sér í hóp með öfgaríkjum með þátttöku í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael að mati formanns Miðflokksins. Ákvörðunin muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn Íslendinga. Utanríkisráðherra segir Ísland vera að standa með alþjóðalögum.

Innlent
Fréttamynd

Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima

Sérfræðingar segja stjórnvöld í Ísrael hafa rofið samkomulag sem gilt hefur í um sex áratugi um bænir á svæðinu í Jerúsalem þar sem finna má bæði al-Aqsa moskuna og Musterishæðina, sem er heilög bæði gyðingum og múslimum.

Erlent
Fréttamynd

Um­deilt Friðarráð fundar í Washington í dag

Tugir þjóðarleiðtoga og sendinefnda munu mæta á stofnfund Friðarráðs Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands verða hins vegar fjarri góðu gamni, þar sem ríkin hafa afþakkað boð um sæti í ráðinu.

Erlent
Fréttamynd

Undir­búa nýja inn­rás til að af­vopna Hamas

Forsvarsmenn ísraelska hersins eru sagðir leggja drögin að nýrri innrás á Gasaströndina. Ráðamenn í Ísrael telja ólíklegt að leiðtogar Hamas-samtakanna muni samþykkja að leggja niður vopn og því þurfi að gera það með valdi. Að minnsta kosti sjö Palestínumenn hafa fallið í árásum Ísraela í dag.

Erlent
Fréttamynd

Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann

Embættismenn úr Hvíta húsinu eru sagðir hafa ítrekað við ísraelsk stjórnvöld þá afstöðu Trump forseta að Ísraelar megi ekki innlima Vesturbakkann eins og virðist stefna í að verði gert.

Erlent