Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Viktor Jónsson fór fyrir ÍA sem vann öruggan 4-0 sigur á Haukum í Akraneshöllinni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. HK fór áfram eftir dramatískan sigur á Fjölni. Íslenski boltinn 6.4.2026 15:01
Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Þjálfararnir Guðjón Pétur Lýðsson og Óskar Örn Hauksson eru á varamannabekk Hauka gegn ÍA í Mjólkurbikar karla í dag þar sem tveimur leikmönnum liðsins var snúið við í Mosfellsbæ vegna færðar. Stjórnarmaður hjá félaginu harmar að stuðningsmenn geti ekki séð leikinn. Íslenski boltinn 6.4.2026 12:53
„Þetta eru alltaf risastórir leikir“ Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, þekkir betur til en margur í Egilshöll þar sem hans menn mæta Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Hann hefur ekki áhyggjur af vorbrag á leik innandyra og segir ávallt von á hörku og skemmtun þegar liðin eigast við. Íslenski boltinn 6.4.2026 12:31
Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Víkingur er kominn áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 2-4 sigur á útivelli gegn Fram. Heimamenn í Úlfarsárdalnum jöfnuðu leikinn seint en gestirnir svöruðu ógnarsnöggt fyrir sig og sigldu sigrinum síðan örugglega í höfn. Íslenski boltinn 4. apríl 2026 16:16
Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram FH lenti undir gegn Þór í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í dag en kom til baka og vann 2-4 sigur. Adolf Daði Birgisson skoraði tvö mörk í leiknum í Boganum. Íslenski boltinn 4. apríl 2026 15:56
Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum Þróttur er kominn í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir sigur á ÍBV í vítaspyrnukeppni, 2-4. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 2-2. Íslenski boltinn 4. apríl 2026 14:53
Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Njarðvíkingar eru komnir áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta. Íslenski boltinn 3. apríl 2026 15:58
Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Afturelding varð í dag annað liðið til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Íslenski boltinn 3. apríl 2026 14:55
Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Það er mögulega einsdæmi að lið hafi skorað bæði innan- og utandyra í sama leiknum, í sitt hvoru sveitarfélaginu, en það gerðist í dag þegar Fylkir komst áfram í Mjólkurbikar karla í fótbolta með 2-0 sigri gegn KFA. Íslenski boltinn 2. apríl 2026 17:13
Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Leikur Fylkis og KFA í Mjólkurbikar karla í fótbolta hefur verið blásinn af vegna ofankomu. Liðin höfðu barist við veðurguðina í rúmar tuttugu mínútur þegar leikurinn var stöðvaður og menn sendir til búningsherbergja. Íslenski boltinn 2. apríl 2026 14:50
Davíð Smári hóf sína eigin bikarvörn á sigri Þrír leikir fóru fram í Mjólkurbikar karla í fótbolta í kvöld. Lærisveinar Davíðs Smára Lamude í Njarðvík komust nokkuð örugglega áfram í 32 liða úrslitin með sigri gegn Hvíta Riddaranum. Íslenski boltinn 30. mars 2026 21:38
Viðar með þrennu í fyrri hálfleik í bikarsigri Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum í kvöld þegar Selfyssingar tryggðu sér sæti í þriðju umferð Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 27. mars 2026 20:54
KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. Reykjavíkurstórveldin og erkifjendurnir KR og Valur drógust saman. Íslenski boltinn 24. mars 2026 12:26
Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Vestramenn tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með sigri á Val á Laugardalsvellinum á föstudaginn og það var afar vel tekið á móti þeim þegar þeir mættu með bikarinn heim á Ísafjörð. Íslenski boltinn 25. ágúst 2025 22:03
Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Bikarmeistarar Vestra fengu konunglegar móttökur á Silfurtorgi á Ísafirði í kvöld þegar þeir komu heim eftir frækinn sigur á Valsmönnum á Laugardalsvelli á föstudaginn. Lífið 24. ágúst 2025 22:50
Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Bikarmeisturum Vestra verður vel fagnað á Silfurtorgi á Ísafirði í kvöld þar sem til stendur að heiðra liðið sem tryggði sér titilinn með sigri á Valsmönnum á Laugardalsvelli á föstudaginn. Sigurinn er sögulegur fyrir félagið en Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, hvetur alla sem geta til að fjölmenna á Silfutorg á eftir. Innlent 24. ágúst 2025 15:03
Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Mjólkin flæddi og stemningin var rosaleg í stúkunni á Laugardalsvelli í gærkvöldi þegar Vestramenn urðu bikarmeistarar í fótbolta í fyrsta sinn. Í sannkölluðu gæsahúðarmyndbandi sem félagið birti í morgun má heyra úr ræðu þjálfarans Davíðs Smára Lamude, sjá aðdragandann og sigurstundina sjálfa. Fótbolti 23. ágúst 2025 09:57
Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Vestri varð í gær bikarmeistari karla í fótbolta í fyrsta sinn eftir sigur á Val, 1-0, á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 23. ágúst 2025 09:01
„Það er æfing á morgun“ Davíð Smári Lamude var í skýjunum eftir að hafa unnið Val 0-1 í úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill í sögu Vestra og Davíð var afar ánægður með að vera hluti af þeirri sögu. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 22:20
„Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Vestri vann 0-1 sigur gegn Val í úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill í sögu félagsins. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins og sagði að þetta hafi verið hans flottasta mark á ferlinum. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 22:00
Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Valsmaðurinn og markahrókurinn mikli Patrick Pedersen sleit hásin í bikarúrslitaleiknum gegn Vestra og verður frá út tímabilið hið minnsta. Slík meiðsli krefjast vanalega margra mánaða endurhæfingar. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 21:54
„Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ „Þetta er óraunveruleg upplifun. Ég neitaði að trúa þessu fyrr en dómarinn flautaði leikinn af“ sagði bikarmeistarinn Guy Smit, sem var að vinna sinn fyrsta titil hér á landi líkt og flestallir leikmenn Vestra. Hann segir það frekar sturlað að lið frá Ísafirði sé bikarmeistari. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 21:38
Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Vestri er bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 1-0 sigur gegn Val í úrslitaleik á Laugardalsvelli. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins með stórkostlegu langskoti, Valsmenn voru síðan með völdin á vellinum en urðu fyrir áfalli þegar eldri Pedersen bróðirinn Patrick var borinn meiddur af velli. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 21:30
„Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Minn fyrsti bikarúrslitaleikur hérna heima, þannig að menn eru spenntir“ segir Hólmar Örn Eyjólfsson fyrirliði Vals fyrir úrslitaleikinn gegn Vestra sem fer fram á Laugardalsvelli í kvöld. Hann stefnir á að lyfta báðum titlunum sem eru í boði í íslenska boltanum og vonar að skellurinn gegn ÍBV í síðasta leik lyfti liðinu upp á tærnar. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 10:31