Chelsea komið í 3-1 Frank Lampard og Damien Duff komu Chelsea í 3-0 gegn Barcelona á Stanford Bridge í Lundúnum, en Ronaldinho minnkaði muninn. Fyrst átti Joe Cole rispu upp hægri kantinn á sautjándu mínútu, átti skot í Oleguer og Valdes, sem var lagður af stað í hitt hornið, náði að verja en hélt ekki boltanum og Lampard kom úr djúpinu og setti boltann í autt markið. Sport 8. mars 2005 00:01
Eiður byrjar hjá Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Barcelona á Stamford Bridge í Meistaradeild Evrópu í kvöld, en Eiður leikur frami ásamt Mateja Kezman í fjarveru Didier Drogba, en Frakkinn snjalli er í leikbanni. Sport 8. mars 2005 00:01
Ruud bjargvættur United? Hollendingurinn Ruud van Nistelroy telur sig geta hjálpað liði sínu, Manchester United, til að leggja AC Milan af velli og komast áfram í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Sport 8. mars 2005 00:01
Augenthaler framlengir Klaus Augenthaler hefur framlengt samning sinn við Bayer Leverkusen, en núverandi samningur hans gilti aðeins út þetta tímabil og hafði það ákvæði í sér að hann yrði aðeins framlengdur ef Leverkusen kæmist í Meistaradeild Evrópu að ári, en það er hvergi nærri öruggt þar sem liðið situr í sjöunda sæti í þýsku Bundesligunni. Sport 8. mars 2005 00:01
Flugeldasýning á Brúnni Leikur Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge í gær fer klárlega í sögubækurnar enda var hann stórkostleg skemmtun frá upphafi til enda. Einu sinni sem oftar var það Jose Mourinho sem fagnaði að lokum.Leikmenn Barcelona höfðu gert lítið úr sóknarleik Chelsea fyrir leikinn og sögðust ekki hafa mætt eins slöku sóknarliði í háa herrans tíð. Sport 8. mars 2005 00:01
Eiður Smári kemur Chelsea yfir Eiður Smári hefur komið Chelsea yfir gegn Barcelona strax á áttundu mínútu í Meistaradeild Evrópu, en leikið er á Stanford Bridge. Eiður fékk sendingu frá hægri frá hægri frá Mateja Kezman, lék á Gerard og skoraði framhjá Victor Valdes markverði Barcelona. Sport 8. mars 2005 00:01
Ótrúlegur leikur í Frakklandi Það er hreint út sagt ótrúlegur leikur í gangi á Stade de Gerland, heimavelli Lyon, en þar taka heimamenn á móti þýsku meisturunum í Werder Bremen. Staðan í hálfleik var 3-1, en Lyon er núna komið í 6-2. Sport 8. mars 2005 00:01
Ronaldinho minnkar í 3-2 Ronaldinho, Brasilíski töframaðurinn, hefur minnkað muninn á Stamford Bridge í hreint út sagt ótrúlegum leik. Chelsea komst í 3-0 eftir 19 mínútur en Barcelona hefur nú minnkað muninn í 3-2 með tveimur mörkum frá Ronaldinho. Eins og staðan er núna er Barcelona áfram á mörkum á útivelli. Sport 8. mars 2005 00:01
Lyon bustaði Bremen Lyon burstaði þýsku meistarana í Werder Bremen á Stade de Gerland í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld með sjö mörkum gegn tveimur. Sylvain Wiltord kom Frökkunum yfir strax á 9. mínútu og Mickael Essien bætti tveimur við áður en Johan Micoud minnkaði muninn eftir hálftíma leik. Sport 8. mars 2005 00:01
Erfitt hjá Arsenal Englandsmeistarar Arsenal eiga verulega erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar þeir taka á móti Bayern München en þeir töpuðu fyrri leiknum, 3–1. Til að bæta gráu ofan á svart eru margir leikmanna Arsenal í meiðslum þessa dagana. Fjórir leikir eru í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sport 8. mars 2005 00:01
Kewell ekki með gegn Leverkusen Harry Kewell, leikmaður Liverpool, mun ekki vera með í seinni leik liðsins gegn þýska liðinu Leverkusen í Meistaradeild Evrópu sem fram fer annað kvöld. Sport 8. mars 2005 00:01
Chelsea áfram eftir frábæran leik Chelsea er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir ótrúlegan 4-2 sigur á Barcelona á Stamford Bridge og 5-4 samanlagt. Sport 8. mars 2005 00:01
Börsungar drjúgir með sig Leikmenn Barcelona eru ekki í nokkrum vafa um að þeir muni komast áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar á kostnað Chelsea. Sport 7. mars 2005 00:01
Meiðsli hjá United Gary Neville og Louis Saha hjá Manchester United hafa báði verið útilokaðir frá leik liðsins við AC Milan í Meistaradeildinni. Sport 7. mars 2005 00:01
Gattuso leiðréttir sig Gennaro Gattuso, miðjumaðurinn sterki hjá AC Milan á Ítalíu, hefur sagt að rangt hafi verið haft eftir honum að hann vildi fara til Manchester United. Sport 7. mars 2005 00:01
Ekkert af ensku liðunum fer áfram! Brasilíska knattspyrnuundrið, Ronaldinho hjá Barcelona er ekkert að skafa utan af hlutunum í viðtali við breska blaðið Daily Mirror í dag þar sem hann heldur því fram að ekkert af ensku liðunum fjórum í Meistaradeildinni muni komast í 8 liða úrslitin en 16 liða úrslitunum lýkur á miðvikudag. Sport 7. mars 2005 00:01
UEFA segir Mourinho til syndanna Fulltrúi Knattspyrnusambands Evrópu hefur komið fram með yfirlýsingu vegna ummæla Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea eftir leik liðsins við Barcelona í Meistaradeildinni á dögunum. Sport 7. mars 2005 00:01
Chelsea hefur harma að hefna Það er alveg ljóst að það verður stríðsástand á Stamford Bridge í kvöld þegar Chelsea tekur á móti Barcelona. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur reitt alla leikmenn Barcelona til reiði með framkomu sinni eftir leikinn í Nou Camp fyrir tveimur vikum þegar hann neitaði að mæta á blaðamannafund eftir leikinn og ásakaði Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona, um að hafa rætt einslega við Andreas Frisk, dómara leiksins, í háflleik. Chelsea tapaði leiknum 2-1 og skapaði sér litla virðingu hjá leikmönnum spænska liðsins, sem fannst leikur liðsins leiðinlegur Sport 7. mars 2005 00:01
Henry trúir á sína menn Markahrókurinn Thierry Henry hjá Arsenal segir að lið sitt þurfi að sanna ástríðu sína til að eiga möguleika á að komast áfram í Meistaradeildinni. Sport 7. mars 2005 00:01
Neville og Saha ekki með í kvöld Gary Neville og Louis Saha munu ekki leika með Manchester United er liðið mætir AC Milan í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á San Siro-leikvanginum í kvöld. Sport 7. mars 2005 00:01
Benites fær menn úr meiðslum Lið Liverpool hefur verið meiðslum hrjáð á tímabilinu en fagnar því að lykilmenn liðsins verða leikfærir í síðari leikinn gegn Leverkusen í Meistaradeildinni. Sport 7. mars 2005 00:01
Collina dæmir á Stamford Bridge Ítalski knattspyrnudómarinn Pierluigi Collina mun dæma síðari leik Chelsea og Barcelona, sem fram fer í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld.<font face="Helv"></font> Sport 6. mars 2005 00:01
Engin værukærð gegn Man. Utd. Leikmenn ítalska knattspyrnuliðsins AC Milan ætla sér að halda einbeitingunni í lagi fyrir seinni leikinn gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Sport 3. mars 2005 00:01
10% líkur, segir Robben Arjen Robben telur litlar líkur á því að hann verði með gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Sport 2. mars 2005 00:01
Mourinho rýfur þögnina Jose Mourinho hefur loksins rofið þögn sína frá leiknum gegn Barcelona í síðustu viku. Sport 27. febrúar 2005 00:01
Arjen líklega með gegn Barcelona Góðar líkur eru á að Arjen Robben, leikmaður Chelsea, verði orðinn leikfær á ný þegar liðið mætir Barcelona á Stamford Bridge 8. mars í Meistaradeild Evrópu. Sport 27. febrúar 2005 00:01
Nedved illa meiddur Pavel Nedved hlaut slæm meiðsli í leik með liði sínu Juventus gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Sport 27. febrúar 2005 00:01
Ekkert óeðlilegt gerðist Anders Frisk, sænski dómarinn í leik Barcelona og Chelsea í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag, hefur skilað inn leikskýrslu sinni frá leiknum til UEFA. Sport 25. febrúar 2005 00:01
Klögumálin ganga á víxl Klögumálin ganga á víxl á milli herbúða Chelsea og Barcelona eftir leik liðanna í Meistaradeildinni á miðvikudaginn. Aðstoðarþjálfari Barcelona, Henk Ten Cate, sem er sakaður um að sparka í afturendann á Jose Mourinho í leikmannagöngunum eftir leikinn, segir þetta lygi. Sport 25. febrúar 2005 00:01
Rijkaard hugsanlega refsað Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona, gæti átt yfir höfði sér refsingu frá Knattspyrnusambandi Evrópu Sport 24. febrúar 2005 00:01