Meistaradeildin
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Leikirnir
Chelsea slapp með skrekkinn | Þáttur Þorsteins J. í heild sinni
Nú liggur endanlega ljóst fyrir hvaða lið mætast í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en fjórðungsúrslitin kláruðust í kvöld.
Mourinho á ekki von á því að mæta Chelsea í úrslitaleiknum
Jose Mourinho segir að honum þyki ólíklegt að Real Madrid og hans gamla félag, Chelsea, muni mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu vor.
Real Madrid ekki í vandræðum með Kýpverjana
Real Madrid hafði betur gegn APOEL frá Kýpur í fjórðungsúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld, 5-2, og tryggði sér sæti í undanúrslitum keppninnar með 8-2 samanlögðum sigri.
Chelsea komst naumlega áfram
Chelsea er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur á Benfica á heimavelli í kvöld. Chelsea vann samanlagt 3-1 sigur og mætir nú Barcelona í undanúrslitunum síðar í mánuðinum.
Maradona vill sjá tengdasoninn fara til Real Madrid
Diego Maradona er afar hrifinn af þeim plönum að Sergio Agüero, framherji Manchester City, snúi aftur í spænska boltann og gangi til liðs við Real Madrid. Agüero er eiginmaður dóttur Maradona og karlinn ætti því að hafa einhver ítök í stráknum.
Ramires: Allt Roberto Di Matteo að þakka
Ramires, miðjumaður Chelsea segir að uppkoma liðsins að undanförnu sé nýja stjóranum Roberto Di Matteo að þakka en hann tók við liðinu þegar André Villas-Boas var rekinn eftir aðeins átta mánuði í starfi.
Barcelona og Bayern áfram | Þáttur Þorsteins J. í heild sinni
Þorsteinn J. og gestir hans fóru ítarlega yfir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu en þá komust Barcelona og Bayern München áfram í undanúrslit keppninnar.
Guardiola: Hárréttur dómur
"Þegar menn gera sig sekan um peysutog inn í teignum á að dæma vítaspyrnu,“ sagði Pep Guardiola, stjóri Barcelona, eftir 3-1 sigur sinna manna á AC Milan í kvöld.
Zlatan: Seinna vítið eyðilagði leikinn
Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður AC Milan, var ekki ánægður með dómgæsluna í leik sinna manna gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Börsungar unnu 3-1 sigur en fengu tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik. Sigurinn tryggði Barcelona sæti í undanúrslitum keppninnar.
Mourinho: Ég ætla ekki að horfa á leik Barcelona og AC Milan
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag að hann ætlaði ekki að horfa á leik Barcelona og AC Milan í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en liðin mætast á Camp Nou í kvöld. AC Milan og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum og því mikil spenna fyrir leik kvöldsins.
Eru Ítalir bestir í því að stoppa Lionel Messi?
Lionel Messi verður í sviðsljósinu í kvöld þegar Barcelona tekur á móti AC Milan í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Mílanó og það er því mikil spenna fyrir þennan leik.
Bayern ekki í vandræðum með Marseille
Ivica Olic skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Bayern München gegn Marseille í kvöld. Bæjarar tryggðu sér því sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu með 4-0 samanlögðum sigri gegn franska liðinu.
Messi bætti met og Barcelona komst áfram
Lionel Messi skoraði tvívegis þegar að Barcelona tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu með 3-1 sigri á AC Milan í kvöld.
Zlatan: Ef Messi notaði líka hægri þá værum við fyrst í alvöru vandræðum
Zlatan Ibrahimovic hefur að sjálfsögðu verið spurður mikið út í Lionel Messi í aðdraganda leikja AC Milan og Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin gerður 0-0 jafntefli í Mílanó en mætast á Camp Nou í kvöld.
Cassano búinn að fá grænt ljós | Má spila með AC MIlan á ný
Antonio Cassano, framherji AC Milan og ítalska landsliðsins, má nú spila með liðinu á nýjan leik en hann hefur ekkert verið með síðan í lok október og hefur í millitíðinni gengist undir aðgerð á hjarta.
Kunnum bara að sækja til sigurs
Tveir leikir fara fram í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Um er að ræða síðari viðureignir í rimmum Barcelona og AC Milan annars vegar og Bayern og Marseille hins vegar. Bæjarar eru í góðri stöðu eftir 2-0 sigur á útivelli í fyrri leik liðanna en hin liðin skildu jöfn í fyrri leiknum sem fór fram á Ítalíu.
Marcelo: Við erum sigurstranglegir í Meistaradeildinni
Brasilíski bakvörðurinn hjá Real Madrid, Marcelo, segir að lið sitt sé eðlilega sigurstranglegt í Meistaradeildinni en minnir á að enn sé mikið verk óunnið.
Flugi AC Milan til Barcelona seinkað
Það gengur erfiðlega fyrir leikmenn AC Milan að komast til Barcelona þar sem liðið spilar í Meistaradeildinni á morgun. Flugi liðsins var seinkað í dag vegna verkfalls flugumferðarstjóra í Frakklandi.
Xavi gæti misst af seinni leiknum á móti AC Milan
Xavi Hernández, leikstjórnandi og varafyrirliði Barcelona, er meiddur á kálfa og það er óvíst hvort að hann geti spilað seinni leikinn á móti AC Milan á morgun en liðin keppa þar um sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum en Xavi spilaði 90 mínútur í þeim leik.
Halda strákarnir hans van Bommel ekki með liði pabba síns á móti Barca?
Mark van Bommel, miðjumaður AC Milan og fyrrum leikmaður Barcelona, var að sniglast í kringum æfingu Barcelona á San Siro á þriðjudagskvöldið en kvöldið eftir gerðu liðin markalaust jafntefli í fyrri leik sínum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Barcelona kvartar yfir grasinu á San Siro
Evrópumeistarar Barcelona voru allt annað en sáttir við ástand vallarins þegar þeir mættu AC Milan á San Siro í Meistaradeildinni í gær.
Wenger gæti fengið leikbann
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gæti farið í bann í Evrópukeppnninni vegna hegðunar sinnar í seinni leiknum gegn AC Milan í Meistaradeildinni.
Samantekt úr Meistaradeildarmörkunum | frábær varnarleikur AC Milan
Tveir leikir fóru fram í gær í átta liða úrslitum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Farið var yfir gang mála í Meistaradeildarmörkunum á Stöð 2 sport þar sem að Þorsteinn J og sérfræðingar þáttarins krufu leikina til mergjar. Evrópumeistaralið Barcelona sótti AC Milan heim til Ítalíu. Í Frakklandi áttust við Marseille og Bayern München frá Þýskalandi.
Zlatan: Ég er bjartsýnn fyrir seinni leikinn á móti Barcelona
Zlatan Ibrahimovic, framherji AC Milan, var ánægður með markalaust jafntefli á móti Barcelona í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en seinni leikurinn verður á heimavelli Barcelona í næstu viku.
Ribery: Þetta voru fullkomin úrslit
Franck Ribery, leikmaður þýska liðsins Bayern München, var mjög kátur eftir 2-0 útisigur á löndum sínum í Olympique de Marseille í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Bayern München vann 2-0 sigur í Frakklandi
Bayern München er á góðri leið inn í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 útisigur á franska liðinu Marseille í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Hollendingurinn Arjen Robben lagði upp fyrra markið og skoraði það síðara.
Markalaust hjá AC Milan og Barcelona
AC Milan og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik sínum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Mílanó í kvöld. Barcelona var fyrir leikinn búið að vinna sjö leiki í röð í Meistaradeildinni eða alla leiki sína frá því að Barca og AC Milan gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik sínum í riðlinum.
Mourinho: Vonandi verður dómarinn ekki í aðalhlutverki
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, ætlar sér að sitja límdur við skjáinn í kvöld þegar fyrri leikur AC Milan og Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram.
Guardiola: Zlatan átti stóran þátt í titlinum er hann lék með okkur
Það hefur andað köldu á milli Pep Guardiola, þjálfara Barcelona, og Zlatan Ibrahimovic, leikmanns AC Milan, nánast allt frá því að Zlatan gekk í raðir Barca árið 2010.
Meistaradeildin og handbolti í Boltanum á X-977 | í beinni 11-12
Meistaradeildin í fótbolta og handbolti kvenna verður aðalumræðuefnið í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu 977 á milli 11-12 í dag. Valtýr Björn Valtýsson ræðir við Heimi Guðjónsson um stórleiki kvöldsins í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Hafdís Guðjónsdóttir fer yfir stöðu mála í N1 deild kvenna í handbolta þar sem að Valur og Fram mætast í kvöld.