Umboðsmaður segir heimildir til framsals löggæsluverkefna of rúmar Umboðsmaður Alþingis hefur sent forseta Alþingis ábendingu þess efnis að orðalag í lögreglulögum um heimildir ríkislögreglustjóra til að fela erlendum ríkisborgurum framkvæmd löggæsluverkefna á Íslandi sé of rúmt. Innlent 18. ágúst 2023 06:49
Próflaus og ölvaður með farþega í skottinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi. Voru þeir handteknir og færðir til blóðsýnatöku. Innlent 18. ágúst 2023 06:27
Fundu allsbera manneskju í Breiðholtinu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um allsbera manneskju í Breiðholtinu í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar var hún færð á spítala vegna notkunar á fíkniefnum. Innlent 17. ágúst 2023 23:03
Skreið nakinn um garðinn og tíndi gras Landsréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem er meðal annars sakaður um að hafa brotist tvisvar inn á heimili á höfuðborgarsvæðinu og beitt fólk þar ofbeldi. Sá er einnig grunaður um ítrekaðan þjófnað og að hafa valdið hneykslan á almannafæri þegar hann skreið allsnakinn um garð í Reykjavík og tíndi gras. Innlent 17. ágúst 2023 12:16
Rafhlaupahjólaþjófur gómaður Það var nokkuð um þjófnað og innbrot ef marka má dagbók lögreglu fyrir gærkvöldið. Lögreglunni var tilkynnt um einstakling sem bar nokkur rafmagnshlaupahjól inn í húsnæði. Hjólin reyndust vera þýfi og voru haldlögð af lögreglunni. Innlent 17. ágúst 2023 06:36
Tuttugu tilkynningar um hatursglæpi á Hinsegin dögum Samtökunum ´78 bárust tuttugu tilkynningar um hatursglæpi í aðdraganda og á meðan Hinsegin dögum stóð, sú alvarlegasta varðar líkamsrás. Lögregla rannsakar ellefu tilvik hatursglæpa á sama tímabili. Innlent 16. ágúst 2023 19:23
Fallist á lengra gæsluvarðhald: Vonast eftir niðurstöðu krufningar um mánaðamótin Landsréttur féllst í dag á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um manndráp í heimahúsi á Selfossi. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 27. apríl síðastliðnum og mun sæta því áfram til 31. þessa mánaðar hið skemmsta. Innlent 16. ágúst 2023 18:29
Fá að skoða síma í þágu rannsóknar á hefndarklámi Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á efni farsíma manns sem lagt var hald á í þágu rannsóknar á hefndarklámi. Innlent 16. ágúst 2023 11:48
Reyndi að stela steikarhnífum í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í ýmsu í gærkvöldi. Henni bárust nokkrar tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir þar sem menn reyndu að komast inn í bifreiðar. Þá reyndi annar maður að stela steikarhnífum af veitingastað í miðbænum. Innlent 16. ágúst 2023 06:36
Grunsamlegur maður með ryksugu Það var tíðindalítið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má dagbók hennar frá gærkvöldinu og nóttinni. Henni barst tilkynning um grunsamlegan mann í miðborginni og æstan mann í Breiðholtinu. Innlent 15. ágúst 2023 06:29
Kæra bónda fyrir flutning á dráttarvél Matvælastofnun hefur kært flutning á dráttarvél frá riðusvæði á Norðurlandi vestra til riðulauss svæðis á Vesturlandi fyrr í sumar til lögreglu. Að sögn stofnunarinnar fór flutningurinn fram án lögbundinna þrifa og sótthreinsunar og án samþykkis héraðsdýralæknis. Innlent 14. ágúst 2023 10:47
EncroChat Eftir því sem næst verður komist lagði franska lögreglan í samstarfi við hollensku lögregluna til atlögu við fjarskiptafyrirtækið EncroChat árið 2019 með því brjótast inn í fjarskiptakerfi fyrirtækisins og koma fyrir hugbúnaði sem gerði frönsku lögreglunni kleift að hlaða niður skilaboðum og myndum um 60 þúsunda viðskiptavina EncroChat. Skoðun 14. ágúst 2023 08:01
Líðan hins slasaða sögð stöðug Líðan mannsins sem fluttur var alvarlega slasaður á slysadeild, eftir bílveltu á Ólafsfjarðarvegi, er stöðug samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Innlent 13. ágúst 2023 21:03
Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu við Krýsuvíkurveg Tveir voru fluttir á slysadeild eftir bílslys við Krýsuvíkurveg upp úr klukkan sex í dag. Innlent 13. ágúst 2023 18:39
Hópslagsmál og hávaðatilkynningar í nótt Lögreglan var kölluð til í Reykjavík og í Kópavogi í nótt vegna hópslagsmála. Alls voru 77 mál skráð hjá lögreglu yfir hálfan sólarhring, frá fimm síðdegis þar til í nótt. Innlent 13. ágúst 2023 08:38
Alvarlega slasaður eftir bílveltu á Ólafsfjarðarvegi Einn slasaðist alvarlega í bílveltu á Ólafsfjarðarvegi við Kambhól um klukkan hálf eitt í nótt. Innlent 13. ágúst 2023 07:37
Vöknuðu upp við vondan draum vegna „aumingja“ á Egilsstöðum Búið var að slíta regnbogafánann niður bæði við Safnahúsið og Vilhjálmsvöll á Egilsstöðum í morgun og skemma hann. Um er að ræða enn eitt skiptið sem unnin eru skemmdarverk á hinsegin fánanum í aðdraganda eða á meðan Hinsegin dögum stendur. Innlent 12. ágúst 2023 11:33
Hrækti á lögreglubíl og neitaði að yfirgefa lögreglustöð Maður var handtekinn í nótt eftir að hafa hrækt á lögreglubifreið og neitað í framhaldinu að segja til nafns. Sami maður var fluttur á lögreglustöð en neitaði að fara þaðan og var fluttur af „athafnasvæði lögreglu“ í þrígang. Innlent 12. ágúst 2023 09:32
Neitar að tjá sig um meint innbrot á Lambeyrum Barnamálaráðherra neitar að tjá sig um meint innbrot hans á jörðinni Lambeyrum og segir fyrri yfirlýsingu standa. Hann segist ekki hafa haft áhrif á vinnubrögð lögreglu í málinu. Innlent 12. ágúst 2023 07:00
Brýnir hagsmunir halda þeim grunaða á Selfossi bak við lás og slá Lögreglustjórinn á Suðurlandi gerði í dag enn einu gæsluvarðhaldskröfuna fyrir héraðsdómi yfir manni sem grunaður er um manndráp. Maðurinn var handtekinn 27. apríl síðastliðinn en krafan er lögð fram á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna þar sem endanleg niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir. Innlent 11. ágúst 2023 18:01
Aflýsa hættustigi vegna gossins við Litla-Hrút Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að færa hættustig almannavarna vegna eldgossins sem hófst við Litla-Hrút niður á óvissustig. Innlent 11. ágúst 2023 13:55
Blindaðist af sól og klessti á ljósastaur Það var heldur rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má dagbók lögreglu fyrir gærkvöldið og nóttina. Nokkur mál komu upp vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og voru tveir kærðir fyrir að aka réttindalausir. Innlent 11. ágúst 2023 08:51
Rannsókn lokið á manndrápi í Drangahrauni Rannsókn lögreglu á manndrápi þann 17. júní síðastliðinn í Drangahrauni í Hafnarfirði er lokið og málið komið til ákærusviðs. Lögregla telur líklegt að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum grunaða. Innlent 11. ágúst 2023 06:45
Erlendu ferðamennirnir við Kerlingafjöll fundnir Erlendir ferðamenn sem leitað var að í Kerlingafjöllum í gærkvöld fundust heilir á húfi eftir miðnætti í nótt. Innlent 11. ágúst 2023 00:18
Bíða enn eftir niðurstöðum krufningar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bíður enn eftir endanlegri niðurstöðu krufningar vegna andláts karlmanns sem lést í kjölfar höfuðhöggs á skemmtistaðnum Lúx aðfaranótt þess 24. júní síðastliðinn. Innlent 10. ágúst 2023 16:13
Hnífamaðurinn enn laus meira en mánuði síðar Maður sem stakk annan mann á Laugavegi í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt þriðjudagsins 4. júlí síðastliðinn er enn ófundinn. Lögregla segir það óvenjulegt. Innlent 10. ágúst 2023 12:18
Fjórir handteknir vegna þjófnaða í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í Kópavogi í gær sem grunaður er um þjófnað. Var hann staðinn að því að fela verkfæri í runna og gat hvorki gert grein fyrir sér né var með nokkur skilríki á sér. Innlent 10. ágúst 2023 06:26
Ógnandi hegðun á almannafæri og líkamsárás með hamri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gær eftir að hann sýndi „ógnandi hegðun á almannafæri“. Fór maðurinn ekki að fyrirmælum lögreglu og sagðist meðal annars geta lamið lögreglumenn. Innlent 9. ágúst 2023 06:30
Karl Gauti kannast ekkert við kæru Forstjóri Umhverfisstofnunar segir Umhverfisstofnun hafa kært mann, sem fór í óleyfi út í Surtsey og birti myndband af ferðinni á samfélagsmiðlinum TikTok, til lögreglu. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum kannast ekkert við kæruna. Innlent 8. ágúst 2023 17:11
Kæra mann fyrir kajakferð út í Surtsey Umhverfisstofnun hefur kært mann sem fór í óleyfi út í Surtsey og birti myndband af ferðinni á samfélagsmiðlinum TikTok, til lögreglu. Forstjóri Umhverfisstofnunar beinir því til fólks að virða eyjuna. Ferðir þangað í leyfisleysi geti varðað fangelsi. Innlent 8. ágúst 2023 13:03