„Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag. Innlent 1. júní 2024 19:57
Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Þorgerður Björnsdóttir, Selfyssingur á áttræðisaldri, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar í ljós kom að hún var búin að kjósa í forsetakosningunum. Hún hafði þó ekki greitt atkvæði sjálf. Innlent 1. júní 2024 19:29
Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Mér finnst það góð pæling, að tala ekki bara um hvað maður hyggist kjósa heldur einnig hvers vegna. Aðeins snúnara í forsetakosningum vegna þess að embættið er ekki jafn pólitískt og t.d. Alþingi. Skoðun 1. júní 2024 18:07
Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Kjörsókn utankjörfundar var minni í forsetakosningunum nú samanborið við forsetaksoningarnar 2020, 2016 og 2012. Innlent 1. júní 2024 18:03
Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Það var mikið svekkelsi þegar Helgi Þorleifur Þórhallsson, nemi í fatahönnun við Háskóla Íslands, mætti á kjörstað í Mývatnssveit. Ástæðan var sú að hann fékk ekki að greiða atkvæði. Innlent 1. júní 2024 18:03
Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Guðni Th. Jóhannesson forseti segir það hafa verið ágæta tilfinningu að mæta á kjörstað til að greiða atkvæði í forsetakosningunum, þeim fyrstu í nokkurn tíma þar sem hann er ekki sjálfur á kjörseðlinum. Innlent 1. júní 2024 17:37
Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Kjörsókn hefur hingað til verið mun meiri en í síðustu forsetakosningunum árið 2020. Víða um land er kjörsókn orðin um 10 prósent meiri en fyrir fjórum árum. Prófessor í stjórnmálafræði segir tvær augljósar ástæður fyrir þessu. Innlent 1. júní 2024 16:38
Margir góðir frambjóðendur í boði Kjósendum fannst miserfitt að ákveða hvert atkvæði þeirra ætti að fara. Sumir tóku lokaákvörðun í kjörklefanum en aðrir segja valið hafa verið alveg ákveðið og ákvörðunin ekki erfið. Fréttamenn Stöðvar 2 fóru á stúfana í dag og tóku kjósendur tali. Innlent 1. júní 2024 14:25
Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Þetta var ekki erfitt val,“ sagði Jón Gnarr í sem kom atkvæði sínu til skila ásamt fjölskyldu sinni í Vesturbæjarskóla í dag. Innlent 1. júní 2024 14:06
„Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ „Ég efast um að ég fylgist mikið með kosningasjónvarpinu,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi og leikkona eftir að hafa komið sínu atkvæði til skila í Ráðhúsinu í dag. Innlent 1. júní 2024 13:08
„Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Halla Hrund Logadóttir segir að tilfinningin að mæta á kjörstað sé góð, dagurinn framundan sé spennandi en hún hvetur alla til að nýta sinn kosningarétt í dag. Hún hefur ekki áhyggjur af dvínandi fylgi sínu í skoðanakönnunum, en hún segir að væta hafi boðað grósku í hennar sveit og fer bjartsýn í daginn. Innlent 1. júní 2024 12:11
„Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi kaus í ráðhúsinu ásamt fjölskyldu sinni í dag. Hún segir ljóst að unga fólkið velji hennar framboð og vonar að það skili sér á kjörstað í dag. Innlent 1. júní 2024 12:02
Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Kjörsókn klukkan ellefu í morgun var aðeins meiri en í forsetakosningunum fyrir fjórum árum. Innlent 1. júní 2024 11:59
Gerum það! Mér hefur gramist herferð Morgunblaðsins gegn framboði Höllu Hrundar á liðnum vikum. Í gær slógu þeir ekki slöku við; tveir uppslættir með neikvæðum formerkjum, ofan á annað undanfarið. Maður hefði ætlað að þeir sýndu háttvísi rétt fyrir kjördag. En svo var ekki. Þetta er formlega orðið að einskonar atlögu. Skoðun 1. júní 2024 11:01
Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar „Það er ekki sjálfgefið að fá tækifæri til að breyta heiminum, en við getum það í dag.“ Þetta sagði Baldur Þórhallsson í samtali við fréttastofu þegar komið var að því að kjósa forseta í Hagaskóla. Innlent 1. júní 2024 10:42
Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið Ástþóri Magnússyni Wium forsetaframbjóðanda líður vel að kjósa friðarframboð í dag, að eigin sögn. Hann segir það eina vitið í þeirri stöðu sem við erum komin í núna. Kjósi fólk annað séu þau að kasta atkvæði sínu á glæ, á stríðsbálið. Hann kaus í Hagaskóla í morgun. Innlent 1. júní 2024 10:34
„Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi, mætti í Hagaskóla í morgun til þess kjósa nýjan forseta. Hún býst við spennandi kosninganótt. Innlent 1. júní 2024 09:36
Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Forsetakosningarnar í ár hafa verið þær skemmtilegustu sem ég man eftir. Margir að bjóða fram krafta sína og flestir af þeim hafa sitt hvað að bjóða. Jón Gnarr toppaði framboð sitt í gærkveldi með magnaðri frammistöðu og sýndi okkur hversu hæfur hann er í embættið. Katrín sýndi okkur líka að hún er öflug, glæsileg og skarpgreind kona sem stendur vel í fæturnar þrátt fyrir mikið mótlæti og óvenju hatursfulla og óbilgjarna orðræðu. Skoðun 1. júní 2024 09:31
Hæfasti einstaklingurinn Forsetakosningarnar sem fram fara í dag snúast fyrst og fremst um hæfasta einstaklinginn til þess að gegna embætti forseta Íslands að mati hvers og eins. Kosningarnar eru persónukjör. Þær eru í raun atvinnuviðtal eins og ýmsir hafa nefnt réttilega. Við kjósendur erum sameiginlega að ráða í starfið. Hver og einn greiðir atkvæði með þeim sem hann vill sjá sem forseta lýðveldisins og síðan liggur niðurstaðan fyrir. Skoðun 1. júní 2024 09:00
Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Nú er orðið ljóst að Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins. Áfram verður þó fylgst með gangi mála í forsetavaktinni. Innlent 1. júní 2024 07:06
Svona velur þú þér forseta í dag Nú kýs þjóðin sér forseta og ég þykist vita að mörg ykkar séu enn á báðum áttum með hvern frambjóðendanna þið ætlið að kjósa. Skoðun 1. júní 2024 06:30
Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Efstu frambjóðendur í skoðanakönnunum fyrir forsetakosningarnar voru ekki á einu máli um hvort rétt væri af Íslandi að styðja Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrás Rússa í kappræðum RÚV í kvöld. Halla Tómasdóttir lýsti einna mestum efasemdum um að styðja Úkraínu hernaðarlega. Innlent 31. maí 2024 23:04
Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Skiptar skoðanir eru um kosningabaráttu síðustu vikna meðal kjósenda sem fréttastofa ræddi við í dag. Sumir segja hana leiðinlega og óvægna en aðrir siðsamlega. Þá var allur gangur á því hvort fólk væri löngu búið að gera upp hug sinn eða hygðist ákveða hvern það kysi í kjörklefanum á morgun. Innlent 31. maí 2024 21:00
Um afrekskonuna Katrínu Steinunn Jóhannesdóttir skrifar stuttan pistil um afrek Katrínar Jakobsdóttur. Skoðun 31. maí 2024 18:01
Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Ísland hefur alltaf verið mér gott og haft nóg fyrir mig að gera. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að telja mig til þessarar merkilegu þjóðar. Skoðun 31. maí 2024 17:15
Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Á morgun 1. júní verður kosið til embættis forseta Íslands, þar sem við munum kjósa sjöunda forseta lýðveldisins. Í þessu samhengi skiptir máli að við unga fólkið skilum okkur á kjörstað og nýtum lýðræðislegan kosningarétt okkar. Við sem erum að kjósa í fyrsta skiptið fáum loksins að nýta kosningaréttinn, sem er mikið meira en bara réttur. Hann er tækifæri okkar til að láta rödd okkar heyrast og hafa áhrif á samfélagið. Skoðun 31. maí 2024 17:01
Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Katrín Jakobsdóttir er með 25,6 prósenta fylgi og Halla Tómasdóttir með 23,9 prósenta fylgi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Ekki er marktækur munur á þeim. Innlent 31. maí 2024 16:57
Með ósk um velgengni, Halla Hrund Þessi kosningabarátta hefur verið áhugaverð. Tími yfirvegaðra stefnuyfirlýsinga er löngu liðinn og við hefur tekið samfelldur kliður á samfélagsmiðlum sem fjölmiðlar sleikja upp í misjöfnum tilgangi. Stundum hefur þetta tekið á sig mynd hatrammra skothríða þar sem orðfæri hefur gengið fram af viðkvæmu og grandvöru fólki. Skoðun 31. maí 2024 16:46
Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Kjörstaðir um allt land verða opnaðir klukkan níu í fyrramálið og má búast við að meirihluti kosningabærra Íslendinga greiði atkvæði í forsetakosningunum sem stefnir í að verði æsispennandi. Innlent 31. maí 2024 16:31