Yfirlæti forsetaframbjóðenda fer í taugarnar á Ragnari Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR tekur ekki undir með þeim sem pirra sig á þeim mikla fjölda frambjóðenda til embættis forseta sem borist hafa undanfarna mánuði. Hann segir það vera forréttindi að í landinu okkar geti nánast hver sem er gefið kost á sér án of þröngra skilyrða. Innlent 8. apríl 2024 23:41
Katrín minni á Ólaf Ragnar árið 2012 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir líklegast að Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr muni heyja baráttuna um Bessastaði. Þau þrjú mælast með mest fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Þó segir hann að mögulega geti einhver af þeim frambjóðendum sem komi næst á eftir þeim þremur blandað sér í slaginn. Innlent 8. apríl 2024 20:05
Alþingi óstarfhæft vegna óvissu um stjórnarmyndun Þingstörf eru í óvissu á meðan ekki hefur verið mynduð ný ríkisstjórn í landinu. Ekkert varð af þingfundi í dag þar sem þrettán stjórnarfrumvörp voru á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Innlent 8. apríl 2024 19:21
Katrín með forskot á Baldur Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi og forsætisráðherra er með 33 prósent fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og mótframbjóðandi mælist með 27 prósenta fylgi. Innlent 8. apríl 2024 16:36
„Kröftum mínum betur varið þar, að minnsta kosti að sinni“ Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs Rauða krossins, verður ekki í framboði til forseta lýðveldisins í þeim kosningunum sem fram fara 1. júní næstkomandi. Innlent 8. apríl 2024 13:47
Þessir líklegastir til að ná í gegn í baráttunni um Bessastaði Aðalsteinn Jörgensen briddsspilari með meiru dundar sér við að teikna í frístundum og nú slagurinn um Bessastaði efstur á blaði. Innlent 8. apríl 2024 13:41
Guðni hafi „skemmt“ hugmyndir um framboð Páll Pálsson fasteignasali hyggst ekki bjóða sig fram til forseta lýðveldisins í kosningunum fyrsta dag júnímánaðar. Þetta staðfestir Páll í samtali við fréttastofu. Innlent 8. apríl 2024 13:08
Telja að Þórdís Kolbrún verði forsætisráðherra Fyrrverandi þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna spá því að Sjálfstæðisflokkurinn taki við forsætisráðuneytinu. Þá telja þeir ólíklegt að formaður flokksins geri tilkall til forsætisráðherrastólsins og líklegra að varaformaðurinn setjist í það sæti. Innlent 8. apríl 2024 11:16
Erfið fæðing hjá nýrri ríkisstjórn Forystufólk stjórnarflokkanna situr enn á rökstólum um framtíð stjórnarsamstarfsins og hver verði næsti forsætisráðherra og kynna ef til vill niðurstöður sínar á reglulegum þingflokksfundum strax eftir hádegi. Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir segi af sér þingmennsku í dag. Innlent 8. apríl 2024 11:00
Alma fer ekki fram Alma L. Möller landlæknir hyggst ekki gefa kost á sér sem næst forseti lýðveldisins. Hún segir að hugleiðingar um framboð hafi ekki farið lengra en að íhuga að íhuga framboð eftir að fjölmargir hafi haft samband og hvatt hana til að bjóða fram krafta sína. Innlent 8. apríl 2024 10:29
Einföld greining á valdsviði forseta Löggjafarvald forsetans tekur til málskotsréttarins, heimildar til útgáfu bráðabirgðalaga – og formsatriða við stjórnarmyndun, stjórnarslit, þingsetningu og þingrof. Ráðherrar fara með framkvæmdarvald forsetans. Skoðun 8. apríl 2024 08:00
Ósanngjarnt gagnvart hinum hefji Katrín baráttuna strax Prófessor í stjórnmálafræði býst ekki við að biðin eftir tilkynningu um endurskipaða ríkisstjórn dragist á langinn. Hún segir það ósanngjarnt gagnvart öðrum frambjóðendum ef forsætisráðherra myndi hefja kosningabaráttuna að fullu meðan hún situr enn í ráðherrastóli. Innlent 7. apríl 2024 22:30
Halla Hrund komin með lágmarksfjölda meðmælenda Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri hefur safnað lágmarksfjölda meðmæla í meðmælendasöfnun forsetaframbjóðenda á vef Ísland.is. Þetta staðfestir Sunna Kristín Hilmarsdóttir, sem er í kosningateymi Höllu, í samtali við fréttastofu. Innlent 7. apríl 2024 20:13
Telur ekkert að því að sitjandi forsætisráðherra bjóði sig fram Forsætisráðherra baðst lausnar úr embætti sínu í dag til þess að bjóða sig fram til forseta Íslands. Fráfarandi forseti segir atburðarásina ekki óheppilega en ráðherra telur ríkisstjórnina ekki falla gangi hún frá borðinu. Innlent 7. apríl 2024 19:41
Ánægð með ákvörðun sína og hlakkar til framhaldsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það hafa legið ljóst fyrir þegar hún tók ákvörðun um að bjóða sig fram í embætti forseta að það að hún væri sitjandi forsætisráðherra kæmi til með að flækja málin. Ákvörðunin sitji vel í henni og hún hlakki til komandi kosningabaráttu. Innlent 7. apríl 2024 15:59
„Óneitanlega óvenjulegt“ Guðni Th. Jóhannesson ræddi við formenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka símleiðis og segist viss um að senn komi í ljós hverjar lyktir viðræðna stjórnarflokkanna verða og þar af leiðandi hver verður næsti forsætisráðherra Íslands. Innlent 7. apríl 2024 15:30
Katrín verður forsætisráðherra þangað til að ný stjórn er mynduð Fundi Guðna Th. Jóhannessonar og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra lauk rétt í þessu og í kjölfarið ávarpaði Guðni fjölmiðla á Bessastöðum. Hann flutti yfirlýsingu þar sem hann greindi frá því að hann hefði samþykkt lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur en falið henni og ráðuneyti hennar að sitja áfram þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Innlent 7. apríl 2024 14:54
Sver af sér rætna herferð gegn Baldri Ástþór Magnússon sver af sér öll tengsl við Facebook-síðuna Bessastaðabaráttan, þar sem rætinni herferð gegn Baldri Þórhallssyni hefur verið haldið úti. Sama dag og tengslin voru borin upp á Ástþór var síðunni eytt. Innlent 7. apríl 2024 13:03
Segir afsögn sína heillaspor fyrir VG Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir afsögn sína sem formanns flokksins gefa Vinstri grænum tækifæri og svigrúm til breytinga og að brottför sín úr flokknum verði heillaspor. Innlent 7. apríl 2024 12:10
Þjóðin geti krafist þess að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag Prófessor í stjórnmálafræði segir þjóðina geta sett þá kröfu á leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag. Hann telur líklegast að formaður Framsóknarflokksins taki við embættinu. Innlent 7. apríl 2024 12:08
Halla Hrund býður sig fram Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri ákvað um páskana að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Innlent 7. apríl 2024 10:01
Vaktin: Katrín situr áfram í bili Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með forseta Íslands og baðst lausnar. Hún mun sitja áfram í starfsstjórn. Innlent 7. apríl 2024 09:37
Homminn Baldur Tugir einstaklinga hafa lýst sig reiðubúna til að gegna því mikilvæga verkefni að vera forseti lýðveldisins. Það endurspeglar eflaust heilbrigt lýðræði hve margir eru boðnir og búnir í starfið þó sumum finnist það orðið skrípaleikur. Skoðun 7. apríl 2024 09:31
Skiptar skoðanir á útspili Katrínar Skiptar skoðanir eru á útspili Katrínar Jakobsdóttur fráfarandi forsætisráðherra í tengslum við forsetaframboð hennar. Einhverjir hlakka til að kjósa hana meðan aðrir saka hana um ábyrgðarleysi Innlent 6. apríl 2024 22:36
Katrín pakkar saman Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi pakkaði eigum sínum á skrifstofu forsætisráðherra fyrr í dag. Innlent 6. apríl 2024 20:36
„Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar. Innlent 6. apríl 2024 19:41
Lifði af sjóslys og tekur nú forsetaslaginn Eiríkur Ingi Jóhannsson sjómaður hefur gefið kost á sér til embættis forseta Íslands. Eiríkur öðlaðist landsfrægð árið 2012 þegar hann lifði af sjóslys undan ströndum Noregs og var valinn maður ársins á Bylgjunni og Rás 2. Hann segist tilbúinn að taka slaginn. Innlent 6. apríl 2024 17:59
Ákvörðun stjórnarflokkanna „alls ekki flókin“ Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir aðstæður sem upp eru komnar varðandi forsætisráðuneytið vera mjög óvanalegar. Þó séu fordæmi fyrir því að forsætisráðherra biðji lausnar fyrir sig án þess að biðja lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Hann býst við að niðurstaða muni liggja fyrir áður en Katrín fer á Bessastaði. Innlent 6. apríl 2024 17:18
Halla Hrund boðar til fundar á Kirkjubæjarklaustri Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mun tilkynna ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð á fundi á Kirkjubæjarklaustri klukkan 14 á morgun. Innlent 6. apríl 2024 15:15
Ríkisstjórnin hafi ekki nema sólarhring til að ráða ráðum sínum Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, er hugsi yfir því að fulltrúar stjórnarflokkanna virðist telja að þeir hafi góðan tíma til að ráða ráðum sínum um áframhald stjórnarsamstarfsins. Stjórnskipaninni samkvæmt hafi þeir ekki nema sólarhringinn til að leysa úr sínum málum. Innlent 6. apríl 2024 14:40