„Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 15. febrúar 2026 17:11 Lilja Alfreðsdóttir var kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins og hafði betur gegn Ingibjörgu Isaksen. Vísir/Lýður Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður, Framsóknarflokksins segist ætla að vinna náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti þar sjálf. Hún líkir því að vera knattspyrnuþjálfari. Þingflokksformaðurinn laut í lægra haldi í formannskjörinu. „
Mér líður mjög vel, ég er svo tilbúin í þetta verkefni,“ sagði Lilja í samtali við Rafn Ágúst, fréttamann Vísis, eftir að úrslit höfðu verið tilkynnt á Hótel Hilton við Suðurlandsbraut á fjórða tímanum eftir hádegi. Lilja hlaut 58 prósent atkvæða af sex hundruð atkvæðum. Hún sagði að fyrsta skref nýs formanns myndi vera að hitta þingflokk Framsóknar á mánudag en Lilja viðurkennir að það sé óvenjulegt að hún sé sjálf ekki á þingi. Lilja hyggst eiga í nánu samstarfi með þingflokknum en Ingibjörg Isaksen, mótframbjóðandi hennar, er einmitt formaður þingflokksins. „Ég náttúrulega gjörþekki þingið. Ég verð bara eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum en er að vinna með sínu liði,“ bætti nýkjörni formaðurinn við, sem er fyrst kvenna til að vera kjörin formaður af flokksþingi. Lilja Alfreðsdóttir var kjörin ný formaður Framsóknarflokksins í dag. Ingibjörg Isaksen, sem stendur þarna á bakvið Lilju, laut í lægra haldi.Vísir/Lýður Lilja segir þetta þó ekki í fyrsta sinn í stjórnmálasögu landsins sem formaður flokksins er utan þings og nefnir Ragnar Arnalds, sem var formaður Alþýðubandalagsins utan þings um þriggja ára skeið frá 1968 þar til hann tók þingsæti á ný 1971. Stjórnmálafræðingur sem Vísir ræddi við í dag líkti því við akkilesarhæll að formaður flokks væri ekki sjálfur á þingi. „Hressandi barátta“ Formannsskipti hjá Framsóknarflokknum hafa verið fremur dramatísk það sem af er þessari öld, til dæmis þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nú formaður Miðflokksins, tók við formennsku Framsóknar 2009 og svo þegar Sigurður Ingi tók við af honum eftir sigur 2016. Ingibjörg nefndi í samtali við Sýn í dag að „alls konar hafi gengið á“ í kosningabaráttunni. „Mér fannst þetta mjög hressandi barátta,“ segir Lilja. „Við vorum auðvitað að ræða málefni og hvernig við getum bætt samfélag okkar, það skiptir auðvitað mestu máli. Hér voru auðvitað ólíkir frambjóðendur og ég fékk skýrt umboð til þess að leiða Framsóknarflokkinn inn í nýjan Framsóknaráratug.“ Sjá einnig: Flokksþing Framsóknar 2026. „Erum að undirbúa næstu kosningar“ Hvernig Framsóknarformaður telur þú þig munu vera? „Ég hef auðvitað mjög skýra sýn fyrir Ísland. Ég vil auðvitað að hér séu aukin lífskjör í landinu. Mér er mjög annt um það að unga fólkinu okkar takist að reisa hér hagkvæmari hús eða eignast íbúð. Og ég var að kynna hér í ræðu minni lífskjarasáttmála fyrir ungt fólk sem unga fólkið hér í flokknum er að fara að vinna með mér,“ segir hún. „Þannig að við erum að undirbúa næstu kosningar.“
Flokksþing Framsóknar 2026 Framsóknarflokkurinn Alþingi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira