Versti óttinn að raungerast Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segist hafa mjög takmarkað þol fyrir sterkum mat. Hún segist hinsvegar elska að stíga stundum út fyrir þægindarammann og skellir sér líka í störukeppni á meðan hún smakkar sterkustu sósuna. Lífið 6. nóvember 2024 07:01
Bein útsending: Frambjóðendur ræða málefni fatlaðs fólks ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir fundi með frambjóðendum þeirra flokka sem bjóða fram til Alþingis í kosningunum sem fara síðar í mánuðinum á Grand hótel í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Innlent 5. nóvember 2024 14:31
Bein útsending: Kosningafundur með formönnum flokkanna Samtök iðnaðarins hafa boðað til kosningafundar með formönnum þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Samtök iðnaðarins vilja með fundinum leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda kosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni Íslands. Innlent 5. nóvember 2024 11:31
„Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica sem fluttist á unglingsárum til Íslands frá Palestínu, segist vera dæmi um barn sem tók ekki í höndina á kvenkennara sínum. Sé rétt staðið að málum gæti barn sem ekki taki í höndina á kennara sínum einn daginn náð langt, jafnvel orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 5. nóvember 2024 10:17
Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir meðalhita á landinu ekki hafa verið minni frá árinu 1997. Það verði líklega hlýtt fram á miðjan mánuð en þá gæti veðrið breyst. Meðalhiti síðustu 12 mánaða er 4,4°C í Reykjavík. Veður 5. nóvember 2024 08:39
Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Um 92 prósent stjórnenda iðnfyrirtækja segja það skipta miklu máli fyrir rekstur þeirra að næsta ríkisstjórn skapi skilyrði fyrir lækkun vaxta og verðbólgu á næsta kjörtímabili. Um 79 prósent þeirra segja það skipta miklu máli að næsta ríkisstjórn leggi áherslu á að draga úr sköttum og gjöldum á fyrirtæki. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 5. nóvember 2024 07:50
Örvæntingarfullur maður sker út grasker Nú er kosningabarátta. Það sést best á allskyns greinum og mis skondnum myndböndum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er að reyna að hræða kjósendur til að kjósa sig. Um kunnuglega taktík er að ræða. Skoðun 5. nóvember 2024 07:01
Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt Ákvörðun Vinstri grænna um áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2021 var afdrifarík og orkar tvímælis. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, í kosningapallborðinu í dag. Innlent 4. nóvember 2024 20:00
Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin Svandís Svavarsdóttir segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi ekki látið í ljósi neinar mótbárur þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra talaði fyrir máli sem varðar lokuð búsetuúrræði hælisleitenda. Innlent 4. nóvember 2024 16:02
Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu Forystukonur hjá Vinstri grænum, Sósíalistum og Pírötum mæta í beina útsendingu í kosningapallborð fréttastofunnar klukkan 14. Innlent 4. nóvember 2024 12:15
Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar. Innlent 4. nóvember 2024 11:38
Bergþór hæðist að Bjarna og Sigurði Inga Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins hæðist að Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, í pistli í Morgunblaðinu í dag. Innlent 4. nóvember 2024 10:08
Hannes í leyfi Framkvæmdastjóri Körfuknattleikssamband Íslands fer í leyfi á morgun og snýr ekki til baka fyrr en í desember. Körfubolti 4. nóvember 2024 10:01
Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu Í hátt í fimmtíu manna sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu í Aserbaídsjan verður enginn kjörinn fulltrúi, hvorki ráðherra, þingmaður né sveitarstjórnarmaður. Ráðstefnunni lýkur átta dögum fyrir alþingiskosningar. Innlent 4. nóvember 2024 09:17
„Brottfararúrræði þurfa ekki að vera grimm eða harðneskjuleg” Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir ómannúðlegt að vista hælisleitendur sem hafa fengið endanlega synjun um vernd hér á landi í fangelsi. Á þessu ári hafi 40 einstaklingar verið vistaðir í fangelsi í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga. Innlent 4. nóvember 2024 08:40
Mannúðlegri úrræði Ísland stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum þegar kemur að móttöku og meðferð hælisleitenda, einkum þeirra sem hafa fengið synjun á umsókn sinni og ber því að yfirgefa landið í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Þrátt fyrir árangur í málaflokknum er ljóst að okkur skortir enn brottfararúrræði sem tryggir heildstæða og skilvirka stjórn í útlendingamálum. Skoðun 4. nóvember 2024 08:32
Íslensk verðtrygging á mannamáli! Það er alkunna hér að ungu fólki er refsað grimmilega af bankastofnunum, taki það ákvörðun að mennta sig á háskólastigi. Hérlendis er því reyndar haldið fram af mörgum að öll verðtrygging sé af hinu góða og kannski einnig bráðnauðsynleg. Skoðun 4. nóvember 2024 07:31
Mótum stefnu um iðn- og tæknimenntun á Íslandi Ljóst er að störf iðnaðarmanna eru ein stór stoð í samfélaginu hvort sem litið er til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis eða reksturs fyrirtækja. Nú þegar mikill skortur er á húsnæði hér á landi er ljóst að fjölga þarf iðnmenntuðu starfsfólki. Skoðun 4. nóvember 2024 07:02
Stýrir gervigreind málflutningi stjórnmálamanna og semur stefnur stjórnmálaflokkanna? Í aðdraganda Alþingiskosninga getur verið erfitt fyrir kjósendur að leggja mat á það hvort að málflutningur stjórnmálamanna byggi á staðreyndum eða rakalausum þvættingi og hvort að framkomnar stefnur stjórnmálaflokkanna í hinum ýmsu málaflokkum séu nýjar og ferskar eða byggi á endurnýtingu eldri stefna með aðstoð gervigreindar, jafnvel frá öðrum stjórnmálaflokkum. Skoðun 4. nóvember 2024 06:30
Kolkrabbinn og fjármálafjötrar Íslands Ímyndum okkur kolkrabba – með þungt höfuð og kalda fálmara sem smjúga inn í hvert horn samfélagsins. Angarnir teygja sig út um allt, vefja sig utan um okkur og sjúga til sín allt sem nærir þjóðina. Skoðun 4. nóvember 2024 06:17
Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar. Innlent 3. nóvember 2024 22:51
Verkin og vinnusemin tala sínu máli Ég hef hrifist af þeim fjölmörgu verkum sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur komið til leiða á undanförnum árum til að efla menningu og skapandi greinar á Íslandi, ásamt viðurkenningunni á að um sé að ræða alvöru atvinnugreinar sem skila verulegum efnahagslegum áhrifum til samfélagsins líkt og nýlegar úttektir á hafa staðfest. Skoðun 3. nóvember 2024 21:31
„Dæmi um hvernig rafræn skilríki geta verið útilokandi“ Skrifstofustjóri Sósíalistaflokksins segir að frambjóðendurnir þrír sem fengu framboð sín á lista flokksins ógild hafi lagt sig alla fram við að skila inn staðfestingu á samþykki með lögmætum hætti. Knappur tími og tæknileg vandræði hafi valdið því að samþykki þeirra fékkst ekki staðfest. Innlent 3. nóvember 2024 19:23
Þrír frambjóðendur detta út Þrír frambjóðendur Sósíalistaflokks í Suður- og Suðvesturkjördæmi voru felldir af listunum tveimur vegna ólögmætra undirskrifta á úrskurðarfundi landskjörstjórnar í dag. Hinir listarnir 59 voru samþykktir án athugasemda. Innlent 3. nóvember 2024 15:57
Bein útsending: Landskjörstjórn tilkynnir um gild framboð Úrskurðarfundur landskjörstjórnar um gildi framboða í kosningunum til Alþingis fer fram í Þjóðminjasafninu í dag klukkan þrjú. Fundinum verður streymt á Vísi. Innlent 3. nóvember 2024 14:01
Er ekki bara best að sýna heiðarleika? Þrumuræða Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins í leiðtogaumræðuþætti RÚV 1. nóvember hefur vakið mikla athygli sem er vel, því þar kom margt fram sem er þarft innlegg í þá umræðu um stöðu útlendingamála sem hefur farið hátt undanfarið. Skoðun 3. nóvember 2024 07:32
Sigurður hafi mögulega fengið sig fullsaddan Eldræða formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál hefur vakið mikla athygli. Formaður hjálparsamtaka segir ekkert við framferði hans gefa til kynna að flokkurinn standi fyrir mannúð en stjórnmálafræðingur telur formanninn mögulega hafa fengið sig fullsaddan af andúð annarra flokka. Innlent 2. nóvember 2024 21:02
„Auðvitað er ég að vísa í þá flokka sem stjórna hjá borginni“ Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins, segir ríkisstjórnarflokkana ekki bera höfuðábyrgð á stöðu verðbólgunnar heldur þá sem hafa verið við stjórn í Reykjavíkurborg. Húsnæðisskortur sé rót verðbólguvandans og verði ekki leystur nema með því að brjóta nýtt land. Innlent 2. nóvember 2024 17:22
„Við skulum ekki endurtaka gömlu mistökin“ Jón Gnarr segir „útlendingavandann“ minna um margt á gamla „unglingavandann“. Hvort tveggja byggist á fordómum og ranghugmyndum frekar en staðreyndum. Ekki eigi að kenna ákveðnum hópum um úrræðaleysi stjórnvalda og endurtaka þannig gömul mistök. Innlent 2. nóvember 2024 13:50
Sigurður hafi fært Framsókn fjær Bjarna og Sigmundi Stjórnmálafræðiprófessor telur eldræðu formanns Framsóknarflokksins vera að einhverju leyti til að fjarlægja flokkinn stefnu Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Framsókn geri sig líklega til að mynda ríkisstjórn af miðjunni til vinstri. Innlent 2. nóvember 2024 12:36